Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Skyri slett á forsetahjón Íslands og biskupinn: „Grípið manninn, grípið manninn!“

Lögregluþjónarnir taka við sér.
Lög­reglu­þjón­arnir taka við sér. Mynd: Tíminn – Gunnar

Þann 11. október gengu ráðamenn landsins, þingmenn, ráðherrar, biskup og forseta­hjónin til fylktu liði frá Dómkirkjunni í sínu fínasta pússi en verið var að setja þingið. Virðu­legir lögreglu­þjónar stóðu heiðurs­vörð við Alþingi. Allt í einu birtist eldri karlmaður í gæruúlpu og með sérsaumaða gúmmí­hanska og fötu í hendi. Í fötunni var skyr. Hljóp hann sem harðast í átt að ráða­mönnum þjóðarinnar og tók að jósa úr fötunni yfir mann­skapinn. Áður en yfir var staðið höfðu alls um 20 manns fengið yfir sig skyr­skvettu, þar með talin forseta­hjónin og biskupinn. Árið var 1972 og maðurinn sem átti skyrið og skvetti, hét Helgi Hóseasson.

Tíminn skrifaði frétt um atburðinn á sínum tíma en hér fyrir neðan má lesa þá frétt og sjá ljós­myndir af atganginum:

„Grípið manninn, grípið manninn!“

var hrópað, þegar herfjöturinn raknaði af stjörfum heioursverðinum

Þeir sletta skyrinu, sem eiga — það sannaðist við þing­setninguna í gær. Þegar ráðherrar og þingmenn með forseta­hjónin og biskup landsins, í brjósti fylkingar, voru á leið milli kirkju og þingsins að lokinni þingmessu, hljóp fram maður með fötu í hendi og jós úr henni skyr­blöndu, að menn ætla, yfir þá sem fremstir fóru. Þannig hélt hann síðan áfram aftur með fylkingunni, unz hann hafði náð að skvetta á tuttugu menn, eða þar yfir. Aldrei hefur neitt þessu líkt gerzt fyrr við þing­setningu. Aftur á móti minnir þetta mjög á það atvik, er stúlkan skvetti bleki á Heath, forsætisrá&herra Breta, í Brussel fyrr á þessu ári. Maður sá, sem þarna var að verki, var Helgi Hóseasson húsasmiða­meistari, sem oftsinnis hefur brugðið fyrir sig ýmsu harla óvenju­legu sökum þess, að hann hefur ekki fengið ógiltan skírnar­sáttmála sinn á lögform­legan hátt.

Helgi og skyrið

Viðhöfn, sem rauk út i veður og vind

Eins og áður segir var þingmessa úti. Forseti og biskup gengu fremstir, eins og venja er
til við slíka athöfn, og voru komnir nokkur skref upp á gangstéttina við horn þing­hússins. Næstir á eftir þeim gengu forseta­frúin og presturinn, sem predikaði við þing­setningu, séra Guðmundur Þorsteinsson, þá forsætis­ráðherra og forseti Sameinaðs þings, síðan ráðherrar tveir og tveir og loks þingmenn hver af öðrum, einnig tveir og tveir hlið við hlið. Tólf manna heiðurs­vörður lögreglu­þjóna hafði skipað sér i röð á miðju Kirkju­stræti með fingur hægri handar til húfu­skyggni og var vestastur fánaberi, en beint fyrir framan hann stóð fyrirliði
heiðursvarðarins, Sigurður M. Þorsteinsson, hinn þrettándi í sveitinni, sem á næst á gangbrautinni, er þarna er yfir Kirkju­stræti. Tveir lögreglu­þjónar stóðu við þing­húsdyr og
tveir við kirkjudyr, og auk þess voru nokkrir fleiri fjær við umferðar­stjórn og eftirlit.

Illa farið með gott skyr?

Óvænt atlaga aðvífandi manns

Skyndi­lega kom Helgi Hóseasson aðvífandi utan af Austur­velli með dall i hendi. Hann var í gæruúlpu og með gúmvettlingana, og hafði hann saumað pjötlu i lófa hægri handar, svo að hann gæti notað hana eins og ausu. Hann hljóp undir fánann, sem fána­berinn hélt hátt á loft, fram fyrir fyrir­liðann og upp að gangstéttinni. Jós hann umsvifa­laust úr dalli sínum á forseta og biskup og síðan á hvern af öðrum aftur eftir fylkingunni. Þetta gerðist allt mjög óvænt, og brugðust menn við á ýmsa vegu. Riðlaðist talsvert gangan, þvi að sumir, sem ráðrúm fengu til þess, reyndu að vikja sér undan, en aðrir héldu ótrauðir áfram, og varð ekki séð, að þeim brygði að ráði eða fataðist. Á sumum brá jafnvel fyrir brosi. Þeir, sem ekki voru komnir út á götuna, staðnæmdust i kirkju­dyrum, og biðu þar átekta.

Allt í einu áttuðu þeir sig

Heiðurs­vörðurinn stóð í fyrstu sem stjarfur með hönd á húfu meðan Helgi hljóp með fylkingunni og jós á hana. Loks var eins og hnútur raknaði, og einn lögreglu­þjónanna, Þórir Þorsteinsson, kunnur íþrótta­maður, hljóp fram, og á eftir fylgdu fleiri. Í næstu andrá hrópaði fyrir­liðinn: „Gripið manninn! Gripið manninn!“ Og aðrir tóku undir. „Þeir, sem austastir stóðu, stukku á hann aftan frá“, sagði Guðmundur Hermannsson aðstoðar­yfir­lögreglu­þjónn, er Tíminn ræddi við hann eftir atburðinn. „Við það byltist hann á
grúfu á götuna“. Þá helltust leifarnar úr dallinum á götuna.

Laganna verðir hand­taka Helga

Varð fyrst fyrir að verka sig

Föt margra þingmanna voru illa leikin, er þeir komu inn i þinghúsið, því að allir þeir, sem
fremstir fóru, höfðu eitthvað fengið á sig úr dalli Helga. Gilti það jafnt um forseta­hjónin, biskup, og prest, ráðherra og þing­forseta. Meðal þingmanna, sem glöggt mátti sjá, að fyrir þessu urðu, voru Gunnar Thoroddsen, Magnús Jónsson, Björn Jónsson, Jón Skaftason, Þórarinn Þórarinsson, Matthias Matthiesen, Gils Guðmundsson, Oddur Ólafsson og Matthias Bjarnason. Varð nokkur töf á þing­setningu, því að öllum varð fyrst fyrir að verka sig til bráða­birgða. Engin tök voru þó á að afmá sletturnar í skyndi, og varð við svo búið að sitja. Aldurs­forseti þingsins, Hannibal Valdimarsson, var meðal þeirra, sem verst höfðu orðið úti, og hvar hann næsta illa til reika, er hann tók við fundar­stjórn að lokinni setningar­ræðu
forsetans. En sumir, sem í salnum sátu, höfðu litlu betur sloppið.

„Virðist vera dasaður“

Helgi Hóseasson var fluttur í fanga­klefa i nýju lögreglu­stöðinni við Hverfis­götu. „Hann er mjög miður sin, virðist vera dasaður“, sagði Guðmundur Hermannsson. Hann sagði, að málinu yrði visað til rannsóknar­lögreglunnar. Magnús Eggertsson, yfir­lögreglu­þjónn í rannsóknar­lögreglunni, sagði blaðinu i gærkvöldi að yfirheyrslur færu ekki fram fyrr
en í dag. Búizt er við að Helgi verði látinn sæta geðrannsókn.

Helgi Hóseasson var í kjölfarið nauðungar­vistaður á Kleppi en geðlæknir hans sagði í skýrslu sinni um hann að hann teldi Helga ekki geðveikan en mögulega haldinn kverúlant-paranoju, byggi við sérvisku­lega heimsmynd og notaði sérkennilegt orðfæri. Skýrlan átti að vera trúnaðarmál en Helgi stal henni, fjöl­ritaði og seldi gegn vægu verði á Lækjar­götu. Aðspurður um það á Útvarpi Sögu árið 2007, af hverju hann hafi slett skyri en ekki einhverju öðru, kvaðst hann ekki hafa viljað skaða augu ráðamanna með því að sletta sýru eða einhverju álíka yfir þá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá