Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Birkir Kristján hundaröltari: „Ég missti alla hundana mína á tímabili“

„Þetta er ekki alltaf auðveld vinna. Hundarnir eru ekki allir jafn­stilltir og sumir eru mjög erfiðir í taumi eða krefjandi á annan hátt. Ég hef verið að sjá um nokkra hunda sem geta alls ekki verið í hópi og hef þurft að taka þá einn og einn í einu. Ég labba í mesta lagi með þrjá í taumgöngu en leyfi mér að taka fjóra saman þegar ég fer með þá á hunda­svæði í lausa­hlaup. Svo eru sumir hundar flottir í hópi en ómögulegir með einhverjum öðrum ákveðnum hundi. Það býður til dæmis oft upp á vandræði að láta tvo ógelda rakka og eina tík leika saman. En yfirleitt gengur þetta bara rosalega vel og allir eru ánægðir,“ segir Birkir Kristján Guðmundsson sem hefur í mörg ár unnið við að fara í göngutúra með hunda.

Þegar ég var lít­ill var ég mjög oft að banka upp á hjá nágrönn­unum og bjóð­ast til að labba með hundana þeirra.

„Ég hef elskað hunda alveg frá því að ég man eftir mér. Ég átti samt aldrei hund sjálfur þegar ég var að alast upp. Þegar ég var lítill var ég mjög oft að banka upp á hjá nágrönnunum og bjóðast til að labba með hundana þeirra. Þá var ég ekki enn búinn að átta mig á því að ég gæti fengið borgað fyrir það.

Ég eignaðist minn fyrsta hund þegar ég var sautján ára en þá eignaðist ég kærustu og hundurinn hennar, Figo, fylgdi með í kaupbæti. Við byrjuðum fljótlega að búa saman og Fígó varð eins og barnið mitt á skömmum tíma. Stuttu eftir að hann dó sótti ég mér nýjan hund úr sveitinni sem hafði verið auglýstur á Dýrahjálp. Það er hann Tinni minn sem er Border Collie/Labrador-blanda og kemur með mér í nánast allar hunda­göngurnar mínar. Ég fór þá á mitt fyrsta námskeið í Hunda­Akademíunni og fékk þá enn meiri áhuga á hundum og atferlis­fræði hunda. Ég fór svo á þrjú önnur námskeið með Tinna í Hunda­Akademíunni en að ala hann upp var mjög krefjandi verkefni þar sem hann var alltof lengi í sveitinni. Öll þessi vinna borgaði sig samt því hann er mjög stilltur og góður strákur í dag og ég lærði helling sem gagnast mér mikið í vinnunni.“

Allt í allt hef ég örugg­lega unnið fyrir 30-40 aðila þó ég hafi nú aldrei tekið það saman.

Birkir segir að þegar Tinni var nýkominn til hans hafi önnur fjöl­skylda í hverfinu líka verið með nýja hvolp. Þetta var árið 2014. „Við hittumst oft á opnu svæði og leyfðum hundunum að leika sér. Eigandi hvolpsins bauð mér svo einn daginn að taka sinn hund með þegar ég og Tinni færum í hádegis­gönguna okkar og borga mér fyrir. Svo það má segja að ég hafi bara algjör­lega slysast út í þessa vinnu. Svo fór orðið að berast út meðal hunda­eiganda í hverfinu og fleiri og fleiri fóru að bætast við. Rétt áður en Covid skall á var ég farinn að labba með sex til sjö hunda alla virka daga. Allt í allt hef ég örugglega unnið fyrir 30-40 aðila þó ég hafi nú aldrei tekið það saman. En eftir að Covid skall á fóru allir að vinna heima hjá sér, ég missti alla hundana mína á tímabili og fór að vinna bæði hjá félags­þjónustu eldri borgara á Seltjarnarnesi og á skyndibita­stað. Hundarnir komu svo hægt og rólega til baka og það er eiginlega bara nýlega orðið aftur eitthvað að gera hjá mér í þessu þó mínir bestu dagar í dag séu ekkert miðað við hvernig þeir voru fyrir Covid.“

Hunda­vinnan er samt lang­skemmti­leg­asta vinna sem ég hef nokkurn tím­ann unnið.

Birkir segir að áður en hann fór út í þessa atvinnu­grein hafi hann meðal annars unnið við bókhald, sem plötu­snúður og viðburða­stjóri, þjálfað knatt­spyrnu og rekið íþróttahús og keyrt út pítsur. „Ég byrjaði mjög snemma að vinna á kassa í Bónus og einu sinni var ég að selja heimagert vegan-mæjónes þannig að ég hef prófað ýmsa hluti. Hunda­vinnan er samt lang­skemmtilegasta vinna sem ég hef nokkurn tímann unnið. Ég hef líka haldið fleiri tónleika en ég gæti talið, bæði fyrir sjálfan mig og aðra tónlistar­menn, en ég hef verið að gefa út tónlist undir nafninu Bróðir BIG frá 2015.“

Áhuga­samir geta leitað að Birkir Dogwalker á Facebook.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá