Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Kristján Einar er í haldi lögreglu á Spáni: „Tek aðeins einn dag í einu“

Kristján Einar Sigurbjörnsson
Kristján Einar Sig­ur­björns­son Mynd: Instagram-skjáskot

Kristján Einar Sigurbjörnsson hefur verið á milli tannanna á fólki síðustu daga eftir að fréttir bárust af handtöku hans á Spáni en þar er hann enn í haldi. En hver er Kristján Einar sem stundum gengur undir nafninu Kleini?

Eruð þið að sjá þessar línur?

Rómantíski sjómaðurinn

Kristján Einar, 24 ára, er fæddur og uppalinn á Húsavík en býr nú í Hafnar­firði ásamt unnustu sinni, Svölu Björgvins­dóttur söngkonu en samband þeirra hefur vakið athygli vegna 21 árs aldurs­munar parsins. Á hann fimm ára dóttur úr fyrra sambandi. Auk þess að vera áhrifa­valdur, en hann heldur úti bæði Instagram-síðu og tiktok aðgangi, er hann sjómaður. Í viðtali við Frétta­blaðið árið 2021, segist Kristján una sér vel á sjónum: „Ég er uppalinn í miklum útgerðarbæ og hef upp síðkastið starfað á því magnaða skipi, Helgu Maríu í eigu Brims. Sjórinn herðir mann og þetta er erfið vinna, en hún gefur mikið og þarna getur maður kúplað sig út úr lífinu í borginni og núll­stillt hugann, sem mér finnst nauðsynlegt af og til. Ég er mjög ánægður með að vera sjómaður eins og er, en hver veit nema lífið taki aðra stefnu einn daginn.“

Sjálfur lýsir hann sér sem „fyndnum, metnaðar­fullum, einlægum, hreinskilnum og rómantískum“. Þá sagðist hann einnig í viðtalinu hafa stóra drauma. „Ég er ungur maður með stóra drauma, vinur vina minna og sem fylgir hjartanu.“

Í viðtalinu kemur fram að Kristján sé rómantískur en hann bað Svölu á afar rómantískan hátt. „Ég vil nú helst ekki segja frá bónorðinu í smáatriðum, en ég get vottað að þar var mikið af rósum, kertum og rómantík upp á tíu.“ Algjör draumur sem sagt.

Kleini

Stundum gengur Kristján Einar undir nafninu Kleini en hvaðan kemur það? „Þegar ég var yngri átti ég það oft til að hjálpa ömmu Svönu að baka kleinur og segjum sem svo að ef við ætluðum að baka hundrað kleinur varð hún alltaf jafn hissa þegar aðeins sjötíu kleinur skiluðu sér úr bakstrinum. Eftir að föður­bróðir minn sá mig svo stela kleinum hægri, vinstri, ákvað hann að byrja að kalla mig Kleina og það bara festist við mig,“ sagði Kristján í viðtalinu við Frétta­blaðið sem áður var minnst á. Þar segir hann ennfremur að hann hafi verið erfiður krakki, með ADHD og því fyrir­ferðamikill. Segist hann ennfremur hafa lifað „rokkara­lífi“ sem hann hafi nú lokið.

Dómarnir

Þessi rómantíski sjómaður á sér sínar dökku hliðar. Hefur hann verið opinn um fortíð sína sem hann segir ekki alveg uppgerða: „Ég hef mark­visst unnið í sjálf­um mér og náð ár­angri. Ég er ekki kom­inn á leiðar­enda, tek aðeins einn dag í einu. Ég hlaut dóm á síðasta ári. Ég undi ekki niður­stöðu þess dóms og hef áfrýjað hon­um til Lands­rétt­ar. Þeirr­ar niður­stöðu bíð ég. Af til­lits­semi við aðila læt ég vera að fjalla sér­stak­lega um málið. Þeir sem áhuga hafa á því geta kynnt sér málið og um leið varn­ir mín­ar,“ skrifaði Kristján á Instagram síðu sinni en DV sagði frá því. Lands­réttur sýknaði síðar Kristján af líkams­árásinni en áður hafði hann verið dæmdur fyrir fíkniefna- og vopna­lagabrot. Þá var hann einnig ákærður fyrir að hóta lögreglunni lífláti á Hótel Barón á Barónstíg, árið 2020. „Einn daginn mun ég drepa einn af ykkur,“ á hann að hafa sagt við þrjá lögreglu­menn sem voru við skyldu­störf. Ekki hefur enn verið dæmt í málinu, samkvæmt bestu vitund Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá