Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Hornsteinn lagður að nýrri götu í Fellabæ: „Gaman að taka þátt í þessu í þessu fína vorviðri““

Í dag var lagður hornsteinn að nýrri götu í Fellabæ. Gatan er í svokölluðum Brúnum í bænum og mun hljóta nafnið Selbrún. Búist er við að fyrstu íbúðirnar við götuna verði tilbúnar til búsetu eftir um það bil ár.

Fellabær er í þriggja kílómetra fjarlægð frá Egils­stöðum en þar bjuggu um 400 manns árið 2020. Samkvæmt Austur­frétt áformar fyrir­tækið Hrafns­hóll að byggja 40 íbúðir við hina nýju götu. Hrafns­hóll hefur undan­farin ár sérhæft sig í að nýta öll þau úrræði sem ríkið býður upp á til að örva húsnæðis­markaðinn á lands­byggðinni síðustu ár. Hefur fyrir­tækið til að mynda byggt hús á Vopna­firði.

„Við höfum byggt á annað hundrað íbúðir í kringum Ísland. Við byggjum bara hagkvæmar íbúðir úti á landi,“ sagði Sigurður Garðarsson, eigandi og framkvæmda­stjóri Hrafns­hóls við athöfnina í dag.

Það sem gera íbúðirnar við Selbrún nokkuð sérstæðar er það að þær eru sérstak­lega hannaðar fyrir hlutdeildarlán, úrræði sem á að nýtast tekju­lægri einstaklingum. Hafa slík lán ekki verið veitt áður til framkvæmda á Austur­landi  „Við höfum verið að nýta okkur þessar leiðir sem í goði eru. Þetta eru samfélags­verkefni sem við höfum tekist á við með Húsnæðis- og mannvirkja­stofnun, ráðuneytinu og sveitar­félögunum,“ sagði Sigurður við Austur­frétt.

Sigurður Ingi Jóhannesson innviða­ráðherra, var einn þeirra sem lagði handarfar sitt í steypuna sem verður hornsteinn Selbrúnar. „Það er mjög mikilvægt fyrir ríkis­valdið og stjórn­völd að hafa mismun­andi verkfæri til að bregðast við framboðs eða eftir­spurnar­hliðinni,“ sagði hann í athöfninni og bætti við: „Það er gaman að taka þátt í þessu í þessu fína vorviðri.“

Bæjar­stjóri Múlaþings, Björn Ingimarsson, lagði einnig sitt handarfar í steypuna. „Ég fagna því að þetta góða verkefni sé loks að komast af stað. Selbrúnin hefur verið tilbúin til framkvæmda í nokkurn tíma. Þegar fulltrúar Hrafnhóls komu til fundar við okkur og við bentum á þennan stað vaknaði strax áhugi. Síðan hafa verið í gangi hugmyndir um útfærslur sem loks sér nú fyrir endann á,“ sagði hann.

Þriðja og síðasta lófann í hornsteininn lagði Hermann Jónasson, forstjóri Húsnæðis- og mannvirkja­stofnunar.

Þriðja lófann í hornsteininum á Hermann Jónasson, forstjóri Húsnæðis- og mannvirkja­stofnunar. „Við leggjum metnað okkar í að styðja við sveitar­félögin. Í fyrra settum við af stað stórt verkefni, Tryggð byggð, sem er samstarf ríkis og sveitar­félaga. Á vegum þess eru 400 íbúðir í byggingu með þeim tækjum sem stjórn­völd hafa lagt til.“

Framkvæmdir við Selbrún hefjast ekki strax, þrátt fyrir hornsteininn en deili­skipulag svæðisins er enn í ferli. Klárist það á eðlilegum tíma, stefnir Hrafnhóll á að hefja framkvæmdir efir verslunar­manna­helgina. Náist það má búast við að hægt verði að flytja inn í fyrstu íbúðirnar eftir páska á næsta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Annars staðar má víða búast við skúrum eða slydduéljum

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ