Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Margir minnast Leifs – stórmerkilegur ferill einstaks manns

Leifur Hauksson útvarps­maður lést á laugar­daginn, sjötugur að aldri, eftir veikindi. Leifur fæddist 11. október 1951 í Kópavogi, en Guðrún Bachmann, ekkja Leifs, greindi frá and­láti hans.

Leifur sinnti dagskrár­gerð á báðum rásum Ríkis­útvarpsins um margra ára skeið og var einn af reyndustu útvarps­mönnum landsins. Hann var þekktur fyrir áhuga sinn á fólki og einstakri natni við að taka viðtöl. Stjórnaði hann meðal annars morgun­útvarpi Rásar 2 ásamt Kristínu Ólafs­dóttur og Samfélaginu í nærmynd á Rás eitt ásamt fleira dagskrár­gerðar­fólki útvarpsins.

Þótt flestir minnist hans fyrir þætti hans á ríkis­útvarpinu var hann einnig tónlistar­maður og leikari.

Þá var Leifur meðlimur í hljómsveitunum Þokkabót og Hrekkjusvín en síðarnefnda hljóm­sveitin var samstarfs­verkefni Þokka­bótar og Spilverks þjóðanna. Plata þeirra Valgeirs Guðjóns­sonar; Lög unga fólksins naut tölu­verðra vinsælda á sínum tíma. Hann lék á gít­ar í hljóm­sveit­inni Þokka­bót og var einn leik­ara í söng­leikn­um Hár­inu þegar hann var sýnd­ur í Glaum­bæ.

Leifur lék einnig í kvik­myndum og kom fram í sjónvarps­þáttunum. Hann lék til að mynda Baldur, eitt aðal­hlutverkið, í Litlu hryllings­búðinni í Íslensku óperunni árið 1985.og í sjónvarps­þáttunum Kötlu sem frum­sýndir voru síðasta sumar.

Þau Guðrún bjuggu norður á Ströndum um tíma þar sem Leifur kenndi við Klúku­skóla. Hann var jafnframt skóla­stjóri þar um hríð. Þau hjónin ráku einnig garðyrkju­býli á bænum Bakka í Bjarnar­firði ásamt vinafólki sínu. Leifur lék eitt burðar­hlut­verkanna í Litlu hryllings­búðinni þegar hún var sett upp um miðjan níunda áratuginn og var í hljóm­sveitinni Þyrlum frá Hólmavík.

Leifur og Guðrún elskuðu að ferðast en þau lýstu ferða­lögum sínum í viðtali hjá Lifðu núna árið 2017. Þar segja þau frá ferðum sínu og hvað þau voru ánægð með að geta nýtt sér fyrir­komulagið heimila­skipti á ferðum sínum. Þau segjast hafa: „ferðast mikið um dagana og hefðu upplifað ferðalög þar sem gist var á tjald­stæði eða farfugla­heimilum, á hótelum og Airbnb íbúðum; „Við sjáum þetta sem tækifæri til að ferðast meira, án þess að borga stórfé í gistingu og ég er ekki spennt fyrir því lengur gista á tjald­stæðum“, sagði Guðrún í viðtalinu þegar þú voru spurð út í heimiliskiptin.  „Auk þess viljum við frekar nota peningana í að gera eitthvað skemmtilegt í ferðinni en borga fyrir dýra gistingu.“

Árið 2016 hlytu Leifur ásamt Þórhildi Ólafs­dóttur og Birni Þór Sigbjörns­syni fjölmiðla­verðlaun umhverfis- og auðlinda­ráðuneytisins á Degi íslenskrar náttúru fjölmiðla­verðlaun fyrir útvarps­þáttinn sinn Samfélagið sem var á dagskrá Rásar 1.

Í rökstuðningi dómnefndar segir m.a.: Samfélagið á Rás 1, RÚV hljóð­varpi, hlýtur fjölmiðla­verðlaun umhverfis- og auðlinda­ráðuneytisins árið 2016 fyrir að gefa íslenskri náttúru rödd á öldum ljós­vakans með því að gera umhverfismál að þunga­miðju í ritstjórnar­stefnu sinni. Umsjónar­menn þáttarins, þau Leifur Hauksson, Þórhildur Ólafs­dóttir og Björn Þór Sigbjörnsson, hafa ásamt sérfræðingum, sem þau hafa fengið til liðs við sig unnið fram­úrskarandi starf við að fjalla um náttúru­vernd í víðum skilningi og benda á ógnir sem steðja að nátt­úrunni, en einnig að tengja þá umfjöllun öðrum málefnum, sem eru efst á baugi, og vekja hlustendur til vitundar um hve mikilvæg umhverfismál eru í daglegu lífi þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá