Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Hallfríður: „Innflytjendalandið Ísland – 70 þúsund innflytjendur á Íslandi í dag“

„Áhuga minn á fólki úr annarri menningu má sennilega rekja til þess að ég er uppalin á mörkum ólíkra menninga, í Njarðvíkum á Kalda­stríðs árunum þegar umsvif bandaríska hersins voru hvað mest. Það ríkti einhverskonar skitsófrenískt samband milli Íslendinga og fólksins á herstöðinni – aðdáun og undrun annars vegar og hins vegar fyrir­litning ótti við einhverskonar hugsanlega menningar­lega mengun. Á þeim árum var það ekki hátt skrifað á Íslandi. Sem unglingur hlustaði ég líka á og þýddi texta Bob Marleys og Stevie Wonders, sem hvor um sig sungu hástöfum um ójafnrétti, kúgun og rasisma. Það hafði mikil áhrif á mig.

Mikil þungavigt var í pólitískum og menningar­legum áhrifum Banda­ríkjanna á þessum tíma en jafnframt var þjóðernis­hyggjan alls­ráðandi í íslenskri menningar­pólitík og viðhorfum Íslendinga gagnvart sjálfum sér og öðrum og ekki örgrannt um að þeir finndu til yfirburða sinna saman­borið við fólk úr annarri menningu.“

Mannlíf hitti Dr. Hallfríði Þórarins­dóttur í spjall, en hún er stofnandi og framkvæmda­stjóri Mirru, fræðslu- og rannsóknar­seturs, sem sérhæfir sig í innflytjendum og marg­menningu á Íslandi. Hall­fríður er einn frumkvöðla í rann­sóknum á innflytjendum á Íslandi, einkum innflytjendum á vinnu­markaði og jafnframt einn frumkvöðla í fræðslu um innflytjenda­landið Ísland. Hall­fríður er með doktors­próf í menningar­mannfræði frá The New School for Social Research í New York borg.

Samfélagið ákaflega einsleitt

„Tæplega tvítug fór ég svo að vinna í Stokk­hólmi og vann m.a. með fólki, frá Finnlandi, Gambíu, Chile, Banda­ríkjunum og mörgum fleiri löndum. Þetta var um 1980 og innflytjendur skiptu þegar hundruðum þúsunda í Svíþjóð, en á Íslandi voru þeir hins vegar teljandi á fingrum annarrar handar, samfélagið ákaflega einsleitt og smátt og viðbrigðin því mikil en jafnframt mjög heillandi.

Stuttu eftir Svíþjóðar­dvölina lagði ég aftur land undir fót og fór til Frakk­lands þar sem ég var í tæpt ár og kynntist þá líka fólki víðsvegar að m.a. frá Venesúela, Senegal, Simbabve, Bretlandi, Banda­ríkjunum, Danmörku og mörgum fleiri löndum. Ég hafði ætlað að fara í mann­fræðinám í Frakk­landi en venti mínu kvæði í kross, innritaðist í HÍ og lauk þaðan B.A. prófi nokkrum árum síðar. Fékk svo rektors­styrk frá New School og var boðið þar í framhaldsnám. Lauk fyrst M.A gráðu og var svo boðið í doktorsnám, sem ég lauk í fyllingu tímans.“

Endalaus menningarleg fjölbreytni

Hall­fríður eða Fríða eins og hún er oftast kölluð segir að:

„stúdera menningar­mannfræði í New York er eins og að sitja á menningarlegri gullnámu. Fyrir utan öll söfnin, leikhúsin, jazzinn, klassíkina og lista­lífið þá er í þessari innflytjenda­höfuðborg heimsins, saman­komið fólk úr öllum heims­hornum. Hreint stórkostlegt dæmi um sambýli fólks úr ólíkri menningu sem gengur þrátt fyrir allt.

New York, er eins og margir vita borg enda­lausrar menningalegrar fjöl­breytni og þar ílengdist ég til fjölda ára og kenndi þar m.a. við háskóla í nokkur ár. Nemendur mínir voru margir af innflytjenda­uppruna og tilheyrðu ólíkum trúar­brögðum. Voru gyðingar, múslimar, úr margskonar kristnum söfnuðum o.s.frv. það var iðulega þannig að einhver í kúrsinum gat sagt frá eigin reynslu þegar dæmi komu upp í mann­fræðinni t.d. um skipulögð hjónabönd, mismun milli trúar­bragða o.fl..

Auk þess kynntist ég fólki hvaðanæva úr veröldinni, af öllum hugsanlegum litum, stærðum, gerðum og trúar­brögðum. Búsetan í New York, þeir menningar­straumar sem þar lágu, ásamt mikilli pólitískri vakningu og baráttu ýmissa jaðar­settra hópa og róttækum hugmyndum í fræðilegri orðræðu höfðu djúpstæð áhrif á mig bæði persónu­lega og fræðilega. Það voru gífurleg viðbrigði að flytja svo aftur til litla einsleita Íslands. Ég saknaði fjöl­breyti­leikans og því ekki undarlegt að ég fann mig fljótt á kafi í fræðslu um fjöl­menningu og innflytjendur.“

Innflytjendalandið Ísland

Mirra var stofnuð 2007 í Reykja­víkur­Akademíunni, en varð svo að einka­fyrirtæki síðar. Mirra hefur staðið fyrir margskonar rann­sóknum á innflytjendum á Íslandi og jafnframt tekið þátt í alþjóð­legum rann­sóknum, sem m.a. lúta að samburði milli landa á stöðu innflytjenda á vinnu­markaði.

Auk rannsókna hefur Fríða unnið að fræðslu í formi fyrir­lestra og námskeiða um innflytjenda­landið Ísland, marg­menningu og þjálfun í s.k. menningar­færni. Vitundar­vakning um mikilvægi þess að marg­breyti­leikinn fái notið sín, verður sífellt háværari. Það er ekki nóg að segjast vera jafnréttis­sinnaður heldur verður það að sjást í verki. Jafnrétti einskorðast ekki við kynja­jafnrétti það er miklu víðtækara. Það þarf að taka tillit til menningar­legs uppruna, aldurs og fleiri þátta.

70 þúsund innflytjendur á Íslandi í dag

Fríða er aðspurð hvað henni finndist mætti gera betur í þessum mála­flokki hérlendis, og hún nefnir nokkur atriði.

„Í fyrsta lagi þá þurfum við heimafólk að átta okkur á þeim grundvallar­breytingum sem eru að verða á íslensku samfélagi, með aðkomu tugþúsunda fólks úr öðrum menningar­samfélögum. Fjölgun innflytjenda á Íslandi hefur verið ótrúlega hröð. Á aðeins tveimur áratugum hefur þeim fjölgað um 85% og eru nú hátt í sjötíu þúsund. Þetta er fjölskrúðugur hópur fólks, sem hefur ákveðið að helga íslensku samfélagi krafta sína.

Einkennandi fyrir alþjóð­lega fólks­flutninga til Íslands er að flest fólk kemur hingað í atvinnu­leit þar af flestir frá ríkjum Evrópu­sambandsins, en flótta­fólk er hlutfalls­lega fátt. Fimmti hver starfandi á vinnu­markaði á Íslandi í dag er innflytjandi og þeir eru mjög fjölmennir í ákveðnum starfs­greinum s.s. byggingar­iðnaði, umönnun, ferða­þjónustu og mörgum fleiri greinum. Mirra hefur t.a.m. rannsakað og kortlagt innflytjendur í ferða­þjónustu og vinnur nú að rannsókn á konum í umönnun.

Breytingarnar kalla á uppstokkun gamalla viðhorfa. Við heimamenn þurfum að átta okkur á betur á hlutverki okkar sem móttak­endur og gest­gjafar. Það er ekki nóg að aðfluttir leggi sig fram setji sig inn í aðstæður hér. Líkt og í hverri annarri sambúð þarf fólk að mætast á miðri leið.

Íslendingar hafa aldrei fyrr í sögunni þurft að deila sínu samfélagi með hópum fólks sem hefur aðra menningu eða trúar­brögð. Gest­gjafinn er óhjá­kvæmilega leiðandi og við eigum hér óunnið verk bæði hvað varðar samskipti milli einstaklinga úr ólíkum bakgrunni sem og hvað varðar viðhorf stjórn­enda á vinnu­stöðum, í félögum og stofnunum. Eftir höfðinu dansa limirnir segir máltækið, þess vegna er mikilvægt að stjórn­endur hafi sans fyrir mikilvægi þess að praktísera jafnrétti á sínum vettvangi.

Þrátt fyrir fjöldann eru innflytjendur á jaðrinum í pólitískri og samfélagslegri umræðu. Rödd þeirra er lágstemmd en mun verða hástemmdari eftir því sem rætur þeirra í landinu dýpka.

Það sem einkennt hefur afstöðu stjórn­valda er að líta fyrst og fremst á innflytjendur sem vinnuafl, sem mætir „þörfum atvinnu­lífsins“, en ekki fyrst og fremst sem fólk með allskonar hæfni og getu þar sem þátttaka á vinnu­markaði er aðeins einn flötur á lífi þeirra, líkt og heima­manna.

Íslenskur vinnu­markaður er sem betur fer – þökk sé mikilli baráttu – ákaflega vel skipulagður og réttindi og skyldur launa­fólks og atvinnu­rekenda bundin í lög. En það eru göt lögunum. Þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar – einkum og sérílagi launþega­hreyfingarinnar – hafa viðbrögð yfirvalda gegn kerfis­bundnum brotum á innflytjendum á vinnu­markaði, einkum launa­þjófnaði, og vinnu­mansali því miður verið hæg. Launa­þjófnaður er lögum samkvæmt ekki refsivert athæfi, líkt og launþega­hreyfingin hefur ítrekað gagnrýnt. Staða launa­fólks á Íslandi er um margt betri en gerist í heima­löndum marga innflytjenda en það er ekki afsökun fyrir því að brjóta á þeim hér.

Annað afar aðkall­andi mál, sem liggur þungt hjá innflytjendum eru húsnæðismál. Lélegt húsnæði á uppsprengdu verði er það sem allt of margir þeirra hafa neyðst til búa við. Skortur á mann­sæmandi húsnæði á viðráðanlegu verði er manngert vandamál, sem auðvelt er að leysa sé til þess pólitískur vilji. Annað sæmir okkur ekki sem móttak­endum og gest­gjöfum. Laun sem nægja ekki til fram­færslu, skapa fleiri vandamál en þau leysa.

Íslenska, eða ekki? Ef okkur heima­mönnum er alvara með því að taka innflytjendur inn í íslenskt samfélag þá þurfum við að veita þeim aðgang að íslensku málsamfélagi. Það gerist ekki ef Íslendingar skella í lás og tala ensku við þá öllum stundum. Þarna hafa yfirvöld dregið lappirnar, það ætti ekki að þurfa að ræða mikilvægi þess að veita ókeypis íslensku­kennslu fyrir alla innflytjendur. Ef heldur fram sem horfir er mjög mikil hætta á því að margir innflytjendur einangrist og það getur alið af sér allskonar vandamál, sem örðugt getur reynst að leysa.“

Áhyggjuefni að börn innflytjenda eru að detta út úr framhaldsskólum

Fríða segir að ekki megi hins vegar gleyma að það hafi margt verið vel gert þegar kemur að innflytjendum og mjög margt fólk sem hefur lagt sig fram um að liðsinna þeim og greiða götu þeirra á marg­víslegan hátt.

„Það er vissulega ánægjulegt að sjá að sambúðin við innflytjendur hefur gengið stór­átakalaust og í heildina held ég að heimamenn séu tilbúnir að leggja sitt af mörkum til að gera hana betri. Alþýðu­sambandið og einstök aðildar­félög innan þess hafa staðið í eldlínunni þegar kemur að því að verja réttindi innflytjenda á vinnu­markaði. Það er til fyrir­myndar.

Ég myndi vilja sjá meira af kerfis­bundnum aðgerðum yfirvalda til að bæta stöðu innflytjenda á vinnu­markaði líkt og ég þegar nefndi. Sama gildir um aðgerðir í skóla­kerfinu. Það er verulegt áhyggju­efni eins og rann­sóknir hafa sýnt, að börn innflytjenda detta út úr framhalds­skólum í meira mæli en börn Íslendinga. Aðgerðir til að sporna við þeirri þróun og í átt að raun­verulegri samþættingu innflytjenda og barna þeirra, er fjár­festing sem skilar sér margfalt.“

Hér má fræðast meira um hennar starf hjá Mirru.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá