Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Lögregla rannsakar níðstöng með dauðum hrosshaus við Skrauthóla nærri Esjurótum

Níðstöng við Skrauthóla. Skjáskot/DV
Níðstöng við Skraut­hóla. Skjáskot/DV

Níðstöng með dauðum hrosshaus var reist við Skraut­hóla nærri Esjurótum. Íbúar á svæðinu eru í áfalli og telja fólk sem tengist Sólsetrinu að baki ódæðinu. Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu hefur málið á sínu borði.

Mannlíf fjallaði um málið fyrr í dag, en þar kemur fram frásögn konu sem var þátt­takandi í samkomum og segir hún að þar hafi ekkert óeðlilegt farið fram. Það sem hafi dregið hana að viðburðinum hafi verið kakó og dans. Konan segir enn fremur:

„En tilfinningin sem èg fékk persónu­lega á viðburðinum var einsog þetta væri upphafið að einhverju stóru. Einsog eitthvað væri að fara gerast. Svo ég naut hvers augna­bliks og hafði ásetninginn um að njóta af gleði og ást, fyrir sjálfan mig. Vera í núvitund. En ég sækist í andlega viðburði af þeirri ástæðu og til að styrkja sjálfan mig, kafa dýpra inni mig og sitja betur í mér.“

Níðstöng með hrosshöfði sé greinilega beint að honum

DV greindi frá í dag að eftir að nágranninn lýsti sinni upplifun af starfsemi Sólsetursins hafi verið brugðist við með hótun. Níðstöng með hross­höfði sé greini­lega beint að honum vegna tengingar hans við hestana.: „Ég er formaður Lands­sambands hestamanna­félaga og er með hesta á Skraut­hólum. Þessu er augljós­lega beint gegn okkur!“ segir Guðni Halldórsson, íbúi á Skraut­hólum 2 við Esju og nágranni Sólsetursins í samtali við DV.

„Konan er farin með börnin að heiman,“ segir Guðni. Yfirvöld hafi brugðist í málinu hvað varðar Sólsetrið. Þau séu þar í óleyfi, með veitinga­þjónustu, þarna búi fólk án nokkurrar heimildar. Vandræðin vindi upp á sig og ástandið versni bara og versni.

„Við vitum ekkert hvaða fólk þetta er,“ segir Guðni. Þau hafi áhyggjur af því að leyfa barni sínu að leika sér utandyra.

Erna Agnes Krstínardóttir, aðstoðar­yfir­lögreglu­þjónn hjá lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu, segir málið til rann­sóknar hjá embættinu. Þau hafi farið upp eftir en meira sé ekki um málið að segja að svo stöddu.

Guðni segir að honum skiljist að starfs­menn Matvæla­stofnunar hafi komið á svæðið og fjarlægt hausinn. Hann segist hafa áhyggjur af því af hvaða hesti hausinn sé. Ekki sé auðvelt að verða sér úti um hestshaus. Hann hvetur fólk til að líta í kringum sig.

Í hausnum var upprúllað blað.

„Það var ljóð eða nýorð á blaðinu. Eitthvað óskiljanlegt,“ segir Gunðni.

Kristjana Þórarins­dóttir, eiginkona Guðna, segist strax hafa hringt í lögreglu þegar hún varð stangarinnar vör. Lögreglan hafi sagt henni hvað stóð á blaðinu og það hafi hljómað eins og einhvers konar bölvun, á íslensku

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá