Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Edda óttaðist fyrrverandi kærasta: „Hann tók upp kynferðisleg myndbönd af mér og geymdi þau“

Edda Pétursdóttir. Skjáskot/Eginkonur
Edda Pét­urs­dóttir. Skjáskot/Egin­konur

„Þvert á móti mun hatrið mitt magnast svo að það getur aldrei endað öðruvísi en að koma þér virkilega illa.“ Þessi skilaboð fékk Edda Péturs­dóttir send frá fyrr­verandi kærasta, en Stundin birti nokkur þessara skilaboða í dag.

Tók upp myndbönd og geymdi þau

Edda og maðurinn bjuggu í sitthvoru landinu um tíma þegar þau voru saman.

„Við vorum í fjar­sambandi og gerðum ýmislegt á Skype. Það sem ég vissi ekki var að hann tók upp kynferðisleg myndbönd af mér og geymdi þau,“ segir hún.

Eftir að þau hættu saman byrjaði maðurinn að saka hana oftar um að hafa haldið framhjá sér og hótaði að ef hún myndi ekki viðurkenna það þá ætlaði hann að dreifa mynd­böndunum af henni.

Edda lýsir hegðun hans eftir sambands­slitin og segir að þá hefði ofbeldið aukist.

„Þá skapaðist einhvers konar umsáturs­ástand,“ segir hún og bætir við að hann hefði sent henni tölvupóst oft í viku þar sem hann sakaði hana um svik og „fór fram á að ég kæmi heiðar­lega fram við sig.“

Með tímanum fækkaði tölvu­póstunum en yfir tæpt ár eftir sambands­slitin sendi hann henni tæplega áttatíu tölvu­pósta og fjölmörg smáskilaboð. „Í flestum voru einhvers konar hótanir og svo sagði hann ógeðslega hluti um mig,“ segir hún.

Hann á að hafa sagst vera með myndbönd af henni á USB-lykli og hótað að skilja lykillinn eftir á fjöl­förnum stað.

Hótar að birta af henni nektarmyndbönd

Edda segir í nýjasta þætti af Eigin Konur sem birtist á Stundinni fyrr í dag að hún hafi lifað í stöðugum ótta í tæpan áratug við að fyrr­verandi kærasta. Maðurinn hótaði henni stöðugt að hann myndi standa við hótanir sínar um að birta af henni nektar­myndbönd. Hún segir hann hafa tekið mynd­böndin án hennar leyfis og vitundar og hótað að birta þau ef hún myndi ekki verða að óskum hans.

Edda var í sambandi með manninum frá 2009 til 2012. Hún var þá ný orðin tvítug en hann ellefu árum eldri og þekktur á Íslandi. Hún segir hann hafa beitt sig andlegu ofbeldi á meðan sambandinu stóð og var stöðugt að saka hana um að hafa haldið framhjá sér. Edda segir það hefði ekki átt við nein rök að styðjast en þetta aðeins versnaði og undir lok sambandsins lýsir hún hegðun hans sem þráhyggju­kenndri.

Ósátt við vinnubrögð lögreglu

Edda reyndi að leita til lögreglu vegna málsins undir lok árs 2012 og segist vera afar ósátt við viðbrögðin sem hún fékk. Hún segir að henni fannst lögreglan ekki hafa sýnt þessu neinn sérstakan áhuga.

„Skilaboð lögreglunnar voru skýr: Það væri best að setja þetta ekki inn í lögreglu­kerfið því maðurinn gæti þá séð það og það væri ekki gott fyrir mig. Svo lét lögreglu­maðurinn mig hafa síma­númerið sitt og kvaddi mig,“ segir hún.

Eftir að hafa leitað til Bjarkar­hlíðar í fyrra fékk hún að vita að þetta væri ekki rétt, að það væri hægt að skrá mál án þess að meintur gerandi fái að vita það.

#MeToo-bylgjan sparkið sem hún þurfti

Edda segir að hún finnur ekki eins mikið fyrir óttanum sem var mjög fyrir­ferðamikill í lífi hennar í mörg ár.

„Það þurfti heila #Metoo-bylgju til að ég leitaði mér aðstoðar, hún var sparkið sem ég þurfti. Ég er ekki eins hrædd núna. Það er svo gott að finna að fólk trúir mér. Ég var svo hrædd við að segja frá því að á sínum tíma var gert lítið úr þessu og hann þar að auki frekar þekktur maður,“ segir hún.

„Ég ákvað að stíga fram núna ef það er einhver möguleiki á að ég geti hjálpað, þó það sé ekki nema einni konu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá