Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Gillon gefur út Bláturnablús – Fyrsta plata hans í sex ár

Gillon og gítarinn
Gillon og gít­ar­inn Mynd: Hjalti Árna

Tónlistar­maðurinn Gillon eða Gísli Þór Ólafsson eins og hann heitir, hefur nú gefið út sína fimmtu plötu eftir sex ára hlé.

Bláturna­blús er fimmta sólóplata Gillons og sú fyrsta eftir 6 ára hlé. Upptökur hófust sumarið 2020 og var tekið upp með hléum í Stúdíó Benmen fram undir lok ársins 2021. Platan inni­heldur 9 lög og texta eftir Gísla Þór Ólafsson og syngur Gísli þau öll og spilar á kassa­gítar og bassa. Upptöku­stjóri er Sigfús Arnar Benediktsson, en þeir Gísli og Sigfús hafa unnið allar plötur Gísla saman. Sigfús spilar á rafmagns­gítar, trommur, píanó, hammond-orgel, bassa og hljóð­gervla. Í loka­laginu „Engirauð tár“ eru gesta­söngvarar í bakröddum, þau Sigurlaug Vordís Eysteins­dóttir, Emelíana Lillý Guðbrands­dóttir og Eysteinn Ívar Guðbrandsson.

Myndin sem prýðir á umslagið er eftir Óla Þór Ólafsson.

Platan kom fyrst í stað út á streymis­veitum þann 22. febrúar 2022 og svo á vínyl í maí.

Gísli hefur gefið út sjö frum­samdar ljóða­bækur á tíma­bilinu 2006-2019 og fimm breið­skífur á tíma­bilinu 2012-2022. Hann er einnig meðlimur í bandinu Contalgen Funeral en það band var virkt á árunum 2011-2018 og hefur gefið út tvær breið­skífur.

Lagalisti plötunnar Bláturna­blús

Lukku­klukkur

Vertu þér í vil

Tímaglas

Má ekki elska þig

Fíll og köttur

Bláturna­blús

Kaðal­skikkjur

Á hárréttum tíma

Engirauð tár

Spotify-hlekkur: https://open.spotify.com/album/12sZ547mbQl4i2JDz4k50g?si=EbIooq0yQg6iYVHwBpSQmw

Youtube-hlekkur: https://www.youtube.com/watch?v=vxJT0LvI17U&list=OLAK5uy_mvnyPdZjktstbLQ7SPbhhz_bmNfaF0at0

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt