Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

MIMRA: „Meira skemmtilegt og minna leiðinlegt“

MIMRA. Ljósmyndari: Anna Maggý
MIMRA. Ljós­mynd­ari: Anna Maggý

MIMRA er lista­mannsnafn Maríu Magnúsdóttur, en hún segist hafa samið tónlist undir þessu nafni síðan 2014. Áður gaf hún út tónlist undir eigin nafni. Mannlíf fékk að heyra í þessari flottu tónlistar­konu eftir útgáfu­tónleika hennar í Salnum í Kópavogi 1. apríl.

Takmarkað upplag á vínyl er uppselt

„Útgáfu­tónleikarnir gengu stórkost­lega. Ég hélt þá í Salnum í Kópavogi með hljóm­sveitinni minni. Salurinn er stór­glæsilegur tónleika­staður og gaf hann tónleikunum virkilega fágaða og fallega umgjörð. Með mér spiluðu Stefán Örn Gunnlaugsson á hljómborð og hljóð­gervla, Sólrún Mjöll Kjartans­dóttir á trommur, Helga Ragnars­dóttir á hljómborð, Sam Pegg á bassa og þau Sylvía Hlyns­dóttir og Elvar Bragi Kristjónsson á trompeta. Ég hef sjaldan upplifað skemmtilegra kvöld og betri áhorf­endur. Það besta er að þetta voru bæði upptöku- og útgáfu­tónleikar þannig að á næstunni má fólk eiga von á að sjá upptökur frá tónleikunum. Sérstakar þakkir til Lista- og menningar­sjóðs Kópavogs, Menningar­sjóðs FÍH og Tónlistar­sjóðs Rannís, sem styrktu verkefnið og gerðu að veruleika.“

eins og eitt heild­stætt lista­verk

MIMRA fer víða, í grunninn mætti kalla tónlistina art popp eða „alternative“ þjóðlaga­popp. Hljóð­heiminum í tónlistinni hefur verið lýst sem einstak­lega aðlaðandi, fáguðum og háleitum. Hann er tilfinninga­ríkur og ljóðrænn með einstaka dýpt og í víðáttu­miklu rými. Metnaðar­full og áhugaverð blanda af óhefðbundinni þjóðlaga­tónlist með áhrifum raftónlistar, djass og daðri við kvikmynda­tónlist. Samofið og sameinað í eina heild.

María segist hæstánægð með viðtökurnar og segir jafnframt að hún sé stolt af því hvernig nýja platan nær því að vera eins og eitt heild­stætt listaverk. 

„Hvert og eitt lag flæðir inn í það næsta og myndar platan þannig eina heild. Þetta er eitthvað sem ekki var hægt að heyra meðan ég sendi frá mér eitt og eitt lag af plötunni á streymis­veitur í aðdrag­anda útgáfunnar, sem var einmitt 1. apríl. Nú er platan komin út og hægt að hlusta á verkið í heild sinni. Stefán Örn Gunnlaugsson, upptöku­stjóri og aðal­samstarfs­maður minn, á mestan heiður að því hvernig hljóð­heimurinn og flæðið kom heim og saman. Við gáfum út takmarkað upplag á vínyl. sem er uppselt, og ég hef fengið virkilega góðar viðtökur og er hæstánægð.“

MIMRA. Ljós­mynd­ari: Anna Maggý

Nafnið rakst ég á í Fimbulfambi – orðaspilinu

María sendi frá sér sína fyrstu plötu árið 2009 sem var meira r&b- og funk-skotin. Á meðan hún bjó í Hollandi í tónlistar­námi fóru tónsmíð­arnar að breytast og þróast meira í átt að stærri útsetningum. „Ég einbeitti mér mikið að tónsmíðum og hljóðfæra­útsetningu samhliða því sem ég samdi og spilaði reglulega í raftónlistar­bandi, svo þannig varð til einhver ný nálgun hjá mér. Þegar ég fékk svo tækifæri til að koma fram á „heyrnar­tóla-tónleikum“ með eigin efni 2014 þá fann ég að ég vildi gefa þessu verkefni nýtt nafn og síðan hef ég kallað mig MIMRU.

Spurð um heyrnar­tóla-tónleikana segir María að þeir hafi í rauninni verið upptöku­tónleikar þar sem áhorf­endur sátu með heyrnartól á milli tónlistar­mannanna og allt um kring. „Ég útsetti þarna nokkur lög fyrir 14 manna hljómsveit með strengjum og blásurum. Upptökur frá þessu eru á Youtube. En MIMRU-nafnið rakst ég hins vegar bara á í Fimbulfambi, orða­spilinu, fyrir langa löngu og hugsaði með mér að það gæti verið flott lista­mannsnafn.“

notið góðs af hæfi­leik­a­ríku fólki

Þá hefur hljóm­sveitin verið mismun­andi uppsett að sögn Maríu, en hún segist hafa átt skemmtilegt samstarf við marga hljóðfæra­leikara síðan verkefnið hófst og notið góðs af hæfileika­ríku fólki. „Ég sendi frá mér fyrstu plötu MIMRU, Sinking Island, árið 2017 sem ég tók upp og hljóð­blandaði samhliða námi mínu í Goldsmiths University of London. Það var frum­burðurinn. Finding Place er núna komin út, árið 2022, fimm árum síðar og ég er þróaðari í minni tónsköpun og heildar­mynd. Á tónleikum hingað til hef ég ýmist komið fram ein, með meðal­stóru bandi eða stór­hljómsveit. Nú finn ég að það væri gaman að halda áfram með sama fólk í kringum mig og stefni að því í áfram­haldinu.“

MIMRA. Ljós­mynd­ari: Anna Maggý

Meira skemmtilegt og minna leiðinlegt

Það er stórt verkefni að fylgja plötu úr hlaði svo ég held því aðeins áfram næstu misseri með tónleikum og almennri athyglis­sýki – nei, ég segi svona. Ég vona auðvitað að tónlistin nái eyrum sem flestra og reyni að vinna að því. Annars stefni ég á gott sumarfrí, meira skemmtilegt og minna leiðinlegt. Ég kem fram á Reykjavík Fringe Festival í sumar, annars sé ég bara til og reyni að fylgja flæðinu og innsæinu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá