Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Arna Ýr fær verri þjónustu ómáluð – „Þegar ég er feit virðist ekki miklu máli skipta hvað ég geri“

Arna Ýr Jóns­dóttir, áhrifa­valdur, fegurðardrotting og hjúkrunar­fræði­nemi, sagði frá sorglegum raun­veruleika á Instagram síðu sinni í gær. Birti hún mynd af sér en þar stóð:
„Sad fact. Er að fara með gallaða apple vöru í dag og ætla að mála mig og klæða mig vel svo það sé tekið mark á mér og varan tekin inn án vandræða. Ég lengi hryllilega oft í því að það er ekki tekið mark á mér þegar ég er ómáluð eða í jogging gallanum. Þegar ég er máluð og fínt klædd jafnvel hælum finnst mér kk starfs­fólk oft stökkva til – til að aðstoða mig og segja áberandi hátt “góðan dag get ég aðstoðað“! Þetta er að sjálfsögðu engin alhæfing bara mín upplifun til margra ára. Vignir hefur meirað­segja tekið eftir þessu.“

Viðbrögðin við færslunni létu ekki á sér standa. Örnu bárust í kjölfarið ótal sögur þar sem konur sögðu frá sinni reynslu og mismunun sem þær höfðu orðið fyrir sökum útlits. Birti hún skjáskot af nokkrum þeirra:
„Er hjartanlega sammála þér en þetta sama á við um karlkynið. Maðurinn minn talar um það sjálfur að það er miklu frekar tekið mark á honum eða hann fær betri þjónustu bæði frá kk og kvk þegar hann er vel til hafður.“

„Mjög satt.. svo hef ég verið allskonar bæði feit og mjó.. en þegar ég er feit virðist ekki miklu máli skipta heldur hvað ég geri, hvort ég er í jogg­aranum eða í fínasta punti það er bara oftast alls ekki tekið mark á mér eða tekið einu sinni eftir mér. Lendi ítrekað í því að öðru fólki er jafnvel bara hleypt á undan mér án þess að vera virt viðlits.“

„Og ef þú ert í ofþyngd hefur fólk enga þörf á að bjóða góðan dag eða bjóða aðstoð í mörgum búðm… alveg óháð því hvað er selt í búðinni. En ég er sammála, fínni föt og tilhöfð og þá er frekar aðstöð í boði“.

Arna segist vonsvikin yfir stöðunni í samfélaginu.

„Við erum enn að díla við mismun­andi þjónustu útá hvernig við erum til fara eða hvaða kyn við erum, það er bara brútal sann­leikur,“ segir hún og bætir við að henni hafi einnig borist skilaboð, þar sem konur segja frá ferðum í bygginga­vöru­verslanir.
„Þær liggur við fá ekki þjónustu því það er bara gert ráð fyrir að þær eigi ekki að vera í þessum störfum eða viti ekki neitt. Sumar hafa verið að mæta bara og segja ,,heyrðu ég er að kaupa þetta fyrir bróðir minn’’ og þá allt í einu er mikil aðstoð í boði fyrir bróðirinn, sem er ekki til“.
Tekur Arna það fram að hún geri sér vel grein fyrir því að karlmenn geti einnig upplifað mismuninn sem um ræðir. Þá setti hún inn færslu að lokum þar sem hún segist ómögulega getað áttað sig á því hvað minnihluta­hópar ganga í gegnum.
„Ég er örugglega flokkuð sem hvít forréttinda­kona en ef ég er að finna þetta get ég ómögulega áttað mig á því hvað minnihluta­hópar þurfa að upplifa og ganga í gegnum. Það eru líka miklu stærri eða alvarlegri þættir sem koma við sögu þar!“

Þá segist Arna verða í morgun­þættinum Bítinu á Bylgjunni klukkan hálf 9 í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá