Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Keltnesk kvöld á Kjalarnesi: „Hér búa margir íbúar sem koma frá ýmsum löndum“

Hrefna Sigríður Bjartmarsdóttir, þjóðfræðingur og formaður Sögufélagsins Steina
Hrefna Sigríður Bjart­mars­dóttir, þjóð­fræð­ingur og for­maður Sögu­fé­lags­ins Steina

„Hrefna er ánægð á Kjalarnesi, segir mannlíf blómlegt nú eins og fyrr á öldum.

Náttúran býður upp á mikla útivistar­möguleika, við höfum fjöruna og fjallið Esju. Hér er eitthvað fyrir alla, merkileg saga, útivistar­svæði fyrir börnin og allt áhugasamt útivistar­fólk. Félagslíf blómstrar. Hér er elsti grunn­skóli Reykja­víkur, vígður 1929. Á Kjalarnesi er fjöl­breytt mannlíf og hér búa margir íbúar sem koma frá ýmsum löndum. Þegar Covid gengur yfir höfum við í sögu­félaginu áhuga á að kynna okkur betur menningu og siði þessara þjóða.“

Samkvæmt rituðum heimildum, Landnámu og Kjalnesinga sögu, voru land­námsmenn hér á suðvestur­horni landsins, af keltneskum uppruna og komu frá Bretlands­eyjum. Hrefna Sigríður Bjartmars­dóttir, þjóð­fræðingur og formaður Sögu­félagsins Steina segir að þar séu margar áhuga­verðar forn­minjar sem vert sé að skoða.

Stjórn Sögu­fé­lags­ins Steina ásamt smiði kelt­neska kross­ins. F. v. eru Guðlaug H. Krist­jáns­dóttir rit­ari, Theodór Theo­dórs­son gjald­keri, Hrefna S. Bjart­mars­dóttir for­maður, Bjarni Sig­hvats­son vara­for­maður, Sigríður Pét­urs­dóttir með­stjórn­andi, Guðni Ársæll

Kjalarnesið á sér nefnilega heilmikla sögu, allt frá landnámi og fram á okkar daga. Má þar nefna örnefni í landi Hofs sem gefa til kynna að þar hafi verið heiðið hof en minjar um það hafa enn ekki fundist. Samkvæmt ofan­greindum heimildum bjó þar Helgi bjóla land­námsmaður á Kjalarnesi.“

Minjar gamalla verbúða eru á nokkrum stöðum hér, sem því miður eru í hættu vegna sjávarágangs. Minjar eru um gömul býli, hjáleigur og gripahús. Í Blikdal eru minjar um selstöðu frá kirkju­setrunum Saurbæ og Brautar­holti. Það má nefna hjáleiguna Grund, í landi Esjubergs, sem fór í eyði 1886 vegna skriðu­falla. Samnefnt býli reis snemma á sl. öld þar sem Grundar­hverfi stendur og hverfið dregur nafn sitt af. Eitt þekktasta býlið er Ártún. Það var notað sem vettvangur sumra af elstu kvik­myndum Íslands, t.d. „Síðasti bærinn í dalnum“ og „Gilitrutt“. Búskapur lagðist af í Ártúni á 6. áratug sl. aldar. Þá er einnig talsvert um minjar frá seinni stríðs­árunum. Breski herinn hafði hér hersetu og síðar Bandaríkja­menn. Bækistöðvar þeirra voru einkum í Brautar­holti, Arnar­holti og Saurbæ,“ segir Hrefna.

Kelt­neska úti­alt­arið á Esju­bergi á Kjal­ar­nesi

Sögu­félagið hefur staðið fyrir ýmsum uppákomum og fengið fræðimenn til að halda erindi um efni tengt Kjalarnesi. „Við höfum t.d. haldið „Keltneskt kvöld” þar sem áherslan er á menningu tengda Keltum, þ.e. Írum og Skotum. Við tökum þátt í Kjalar­nesdögum sem haldnir eru síðustu helgina í júní. Þá er haldin guðs­þjónusta í útialtarinu sem sóknar­presturinn okkar sér um og er samvinnu­verkefni sögu­félagsins og sóknar­nefndar Brautar­holtskirkju. Á mann­réttinda­degi Sameinuðu þjóðanna, þann 10. desember, er haldin samkoma í útialtarinu þar sem hvatt er til réttlætis og friðar í heiminum“.

Sögu­félagið Steini hefur á undan­förnum árum unnið við að byggja útialtarið á Esjubergi á Kjalarnesi og er verkinu senn að ljúka. „Útialtarið er minnis­varði um fyrstu kristnu kirkju landsins samkvæmt íslenskum ritheimildum. Kirkjan er kennd við Örlyg gamla sem sagt er að hafi siglt hingað frá Suður­eyjum við vestan­vert Bretland og reist kirkju á Esjubergi, í keltnesk-kristnum sið, um 900. Nú er unnið að fræðslu­skilti með upplýsingum um altarið og tilurð þess. Hugmyndin um að reisa minnis­merki um fyrstu kristnu kirkju Íslands, er áratuga gömul og gömul og lítið varð úr framkvæmdum fyrr en Sögu­félagið Steini tók verkefnið upp á sína arma.

Hey­skapur í Saltvík á Kjal­ar­nesi um 1920 til 1946
Bærinn Ártún á Kjal­ar­nesi vett­vangur sumra af elstu kvik­myndum Íslands, t.d. „Síðasti bær­inn í dalnum“ og „Gilitrutt“. Búskapur lagð­ist af í Ártúni á 6. ára­tug sl. aldar.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá