Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Hannes Hólmsteinn: „Í raun eru engir ofsóttir eins og hvítir, hægri sinnaðir karlar“

Hannes Hólmsteinn Gissurarson.
Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son.

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings í Bestu deild karla var einn þriggja gesta í þættinum Vikunni hjá Gísla. Í þættinum var meðal annars til umræðu mál unglings­pilts sem lögregla hafði í tvígang afskipti af í tengslum við leit af stroku­fanga. Unglings­pilturinn var alls ótengdur málinu en átti það sameiginlegt með hinum eftir­lýsta að vera dökkur á hörund.

Arnar sendi frá sér yfir­lýsingu á Facebook í kjölfar gagnrýni á ummæli sem hann lét falla í þættinum Vikunni hjá Gísla Marteini síðasta föstudag, eins og kunnugt er. Í yfir­lýsingunni vildi hann biðjast afsökunar vegna orða sinna.

„Þó ég sé vel vanur að koma fram í sjónvarpi þá er ég ekki vanur umræðu á opinberum vettvangi um málefni er varðar kynþátta­misrétti og svör mín gætu hafa komið þannig út eins og ég væri ekki alveg í takt við raun­veruleikann.

Sérstak­lega var ég ósáttur við sjálfan mig vegna einstakra orða sem ég notaði. Mér til varnar, þá er alltaf stress­andi að vera í beinni útsendingu, sama hversu vanur þú ert og orð eru sögð sem hljóma illa og endur­spegla ekki endilega meininguna,“ segir Arnar en hann hefur meðal annars verið gagn­rýndur fyrir að hafa notað orðið svertingi.

Engin er ofsóttur eins og hvítur, hægrisinnaður karl

Ekki eru allir sammála að hann hefði þurft að biðjast afsökunar. Hannes Hólmsteinn Gissurarson er ekki jafn sann­færður. Hann talar um á síðu sinni að fólk væri orðið ofur­viðkvæmt að afsökunaráratta væri orðin hálf­leiðinleg og að það mátti segja allt um hvíta hægri sinnaða karla, en að þeim væri engin grið gefin.

„Þessi ofur­viðkvæmni og afsökunar­árátta er orðin hálf­leiðinleg. Fyrir Guði eru allir jafnir, karlar og konur, hvítir og svartir, ríkir og fátækir. Fyrir lögunum eiga líka allir að vera jafnir, þótt ekki sé það ætíð svo í reynd. Og ég segi um hörundslit hið sama og franska skáldið Lamartine: Ég er eins á litinn og allir þeir, sem ofsóttir eru og kúgaðir. Í okkar heims­hluta eru raunar engir ofsóttir eins og hvítir, hægri sinnaðir karlar (þótt líklega sé erfitt að halda því fram, að þeir séu kúgaðir líka).

Það má segja allt um hvíta hægri sinnaða karla. Þeim eru engin grið gefin. Þeim er aldrei fyrir­gefið. Til dæmis líkti Þorvaldur Gylfason prófessor Sjálfstæðis­flokknum við nasista­flokk: „Sjálfstæðis­menn sem tala um lýðræði orka nú orðið á mig eins og nasistar að auglýsa gasgrill.“ Engin viðbrögð urðu við þessari haturs­orðræðu hans. Munn­söfnuður Gunnars Smára Egils­sonar, Illuga Jökuls­sonar og Hallgríms Helga­sonar, þegar þeir minnast á hægri menn, er svipaður. En mörk góðs og ills liggja ekki milli stjórn­málaflokka, heldur um hjarta hvers einasta manns.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá