Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Tvítugur maður hvarf sporlaust frá skemmtistað í Reykjavík – Sást síðast á Reykjavíkurflugvelli

Þann 21.nóvember árið 1987 hvarf rúmlega tvítugur maður sporlaust frá skemmtistaðnum Hollywood við Ármúla í Reykjavík.

Guðmundur Finnur Björnsson var fæddur í Beru­neshreppi 19.nóvember árið 1967, yngstur sjö systkina. Guðmundur var mikill áhuga­maður um bíla og önnur farartæki, hann flutti því til Reykja­víkur og byrjaði að sækja nám í bifvéla­virkjun. Hann laumaðist stundum inn á Reykja­víkur­flugvöll til að skoða flug­vélarnar enda þótti honum gaman að rannsaka ýmis tæki.

Fór að skemmta sér

Guðmundur bjó hjá systur sinni við Tjarna­götu 10 í Reykjavík. Þan 21.nóvember árið 1987, tveimur dögum eftir tvítugsafmælið, fór hann með bróður sínum og vini að skemmta sér á staðnum Hollywood við Ármúla. Félagarnir fóru saman með leigubíl en þegar á leiðar­enda varð Guðmundur eftir til að greiða leigu­bílstjóranum farið en hinir tveir fóru í röðina fyrir utan skemmtistaðinn. Þegar Guðmundur hafði greitt farið, ætlaði hann sér að skjótast inn í röðina þar sem bróðir hans og vinur voru en var einher ósáttur við að Guðmundur ætlaði sér fram fyrir. Hann fór þá aftast í röðina, enda var Guðmundur þekktur fyrir að vera rólyndur og ljúfur maður.

Hvarf úr röð­inni

Ekki er vitað hvað Guðmundur beið lengi í röðinni en hann fór aldrei inn á skemmtistaðinn, að óljósum ástæðum yfirgaf hann röðina og gekk í gegnum Hlíðar­hverfið og að Reykja­víkur­flugvelli. Þar fór hann inn á svæði sem ekki var ætlað almenning og þegar slökkviliðs­maður á vakt tók eftir Guðmundi fór hann á eftir honum og vísaði honum út af svæðinu. Þetta var um klukkan tvö að nóttu og sagði slökkviliðs­maðurinn samskipti þeirra hafa verið á góðan máta, Guðmundur hafi kvatt hann og gengið í átt að Öskjuhlíð.

Sást síð­ast á Flug­vell­inum

Slökkviliðs­maðurinn á flug­vellinum var sá síðasti til að sjá Guðmund. Umfangs­mikil leit var gerð að honum og var spor­hundur fenginn til að rekja ferðir hans. Hundurinn rakti lykt Guðmunds frá skemmtstaðnum og að flug­vellinum en missti þá slóðina. Umsjónar­manni hundsins þótti furðulegt að slóðin tapaðist svo skyndi­lega en hann sagði það þó geta haft aðrar útskýringar en að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað.

Telja hann ekki hafa horfið sjálf­vilj­ugur

Aldrei kom í ljós fyrir vissu hvað varð um Guðmund, fjöl­skylda hans telur þó líklegt að hann hafi orðið fyrir óhappi eða hreinlega verið myrtur og líki hans komið fyrir einhversstaðar. Fjöl­skyldan segir að miðill hafi sagt þeim að Guðmundur muni finnast einn daginn en að þau fái aldrei að vita hvað hafi komið fyrir hann.

Þrátt fyrir mikla leit um allt höfuð­borgar­svæðið fannst Guðmundur ekki, né neitt sem gæti sagt til um ferðir hans. Þeir sem þekktu hann segja útilokað að hann hafi horfið sjálf­viljugur eða endað líf sitt en lögreglan hefur þó aldrei haft ástæðu til að líta á hvarf hans sem sakamál. Guðmundur var að lokum úrskurðaður látinn árið 1995.

Guðmundur var grannur, ljós­hærður og 182 sentí­metrar á hæð, hann notaði gleraugu.

Heimild: Saknað, Íslensk manns­hvörf eftir Bjarka H. Hall

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá