Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Rétti fasteignasalinn og vinsælustu hverfin – „Afhenda 4000 nýjar íbúðir á ári“

Hannes Steindórsson.
Hannes Stein­dórs­son.

Hannes Steindórsson rekur eina stærstu fasteigna­sölu landsins – Lind fasteigna­sölu í Kópavogi. Auk þess landaði hann nýlega fjórða sæti í prófkjöri Sjálfstæðis­flokksins í Kópavogi og það með yfir­burðum. Mannlíf mun á komandi misserum fá Hannes til þess að svara hinum ýmsu spurningum tengdum fasteigna­markaðnum og húsnæðis­málum en Hannes er fagmaður fram í fingurgóma – en hvaða hverfi eru vinsælust í dag?

„Í raun eins og staðan er í dag þá eru öll hverfi vinsæl þar sem að nánast ekkert er til sölu,“ segir Hannes og bætir við að rótgróin hverfi séu þó alltaf mjög vinsæl – Seltjarnarnes, Smára, Sala og Linda hverfi falli þar undir.

Aðspurður hvort hverfi séu að að hluta til aldurs­skipt segir hann stærð og herbergja­fjölda ráða ferðinni.
„Já að einhverju leiti, það sem telur þar er stærð íbúða og herbergja­fjöldi, ungt fólk kaupir mikið þar sem eru tveggja herbergja íbúðir og eldri hópurunn vill stærri alrými, færri herbergi og nálægð við þjónustu­kjarna en svo eru engu að síður allir aldurs­hópar í flestum hverfum“

Valshlíð 10-16

Hannes segir Vogabyggð og Hlíðar­enda vera ný og spennandi hverfi en Sunnu­smári sé eitt það vinsælasta af þeim hverfum sem nú eru í uppbyggingu. Þá telur hann að framboð fasteigna hér á landi verði of lítið næstu 2-4 árin en hækkunin muni þó breytast á næstu árum.

„Markaðurinn verður svipaður og núna næstu 12-20 mánuði, það verður allt of lítið til sölu og framboð fasteigna nær ekki eftir­spurninni fyrr en eftir 2-4 ár. Hækkunin verður hins vegar mun eðlilegri næstu ár kannski 8-10% 2022 og 5-6% 2023.
Það þarf að afhenda 4000 nýjar íbúðir á ári næstu 5 árin en það næst aldrei, okkur hefur einungis fjórum sinnum tekist að byggja yfir 3000 eignir á síðastliðnum 20 árum“.

Í dag seljast rúmlega 40% eigna yfir ásettu verði en fyrir fimm árum síðan voru það tæplega 5% eigna sem seldust yfir ásettu. Telur Hannes að breyting verði þar á í lok ársins og yfirverðs­prósentan muni lækka.

Hannes með dóttur sinni

Fyrir þá sem eru ef til vill að selja sína fyrstu eign og hafa ekki tengsl við fasteigna­sala –  hvernig finnur maður “rétta’’ fasteigna­salann?

„Mér skilst að þeir séu bestir sem koma úr Kópavogi,“ segir Hannes og brosir en sjáfur býr hann og starfar í Kópavogi.
„Það eru um 600 fasteigna­salar á höfuð­borgar­svæðinu á öllum aldri, konur og karlar þannig að allir geta fundið sér fasteigna­sala sem þeir treysta og tengja eitthvað við,“ segir Hannes að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá