Upptaka af óperunni Akhnaten eftir Phillip Glass hlaut í gær Grammyverðlaunin sem óperuupptaka ársins. Hin íslenska Dísella Lárusdóttir syngur einsöng í óperunni og veitti verðlaununum viðtöku í Las Vegar í gær ásamt samstarfsmönnum sínum.
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson óskaði Dísellu til hamingju með verðlaunin á Facebook síðu sinni:
„Ég óska Dísellu Lárusdóttur hjartanlega til hamingju með Grammy-verðlaunin sem hún hlaut við hátíðlega athöfn í Las Vegas í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Dísella söng í óperunni Akhnaten sem Philip Glass samdi. Verkið fékk Grammy-verðlaun fyrir bestu óperuupptöku ársins. Alltaf er gaman þegar Íslendingum vegnar vel á erlendri grundu. Aftur til hamingju!“
Mannlíf óskar Dísellu innilega til hamingju með þessi glæsilegu verðlaun!
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir