Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Læknir ósáttur með Parkódín-umræðu: „Þúsundir Íslendinga eru með langvarandi verki“

Árni Tómas Ragnarsson og Hjalti Már Björnsson eru ekki sammála þegar kemur að verkjalyfinu Parkódíni.
Árni Tómas Ragn­ars­son og Hjalti Már Björns­son eru ekki sam­mála þegar kemur að verkja­lyf­inu Park­ódíni.

Læknirinn Árni Tómas Ragnarsson er ósáttur við málflutning kollega síns og segir ljótt að hræða fólk frá því að nota Parkódín í hófi ef lyfið láti því líða betur.

Hjalti Már Björnsson, yfir­læknir á bráða­móttöku Land­spítalans, hefur undan­farið komið fram í fjöl­miðlum þar sem hann ræðir um að ótækt sé að Covid-19 sjúklingum sé ávísað verkja­lyfinu Parkódíni. „Þvæla“ er orðið sem Hjalti Már hefur sjálfur notað. Hann birti fyrst færslur á Twitter um málið, en fór síðan í viðtöl við Frétta­blaðið og svo í Kastljós, þar sem hann gagnrýndi þá ákvörðun Lyfja­stofnunar að veita Covid-sjúklingum tíma­bundna heimild til þess að kaupa verkja­lyfið Parkódín án lyfseðils. Heimildin hefur verið veitt að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, til að mynda nýju vottorði sem sýnir fram á Covid-19 smit. Rökstuðningur fyrir heimildinni var meðal annars sá að Parkódín væri vel til þess fallið að slá á hósta Covid-sjúklinga og vegna mikils álags á Heilsu­gæsluna mætti með þessum hætti beina þeim Covid-smituðu einstaklingum beint í apótekin, sem einungis þurfa að leita til læknis til þess að fá Parkódíni ávísað vegna einkenna sinna.

Ópíóíði ætti ekki að vera ráð við hósta

Hjalti Már sagði meðal annars, í viðtali við Frétta­blaðið, að notkun á Parkódíni við hósta væri gömul hefð sem að öllum líkindum væri ekki jafn gagnleg og talið hafði verið. Hann sagði nýjar rann­sóknir styðja það.

„Í ljósi þess að við vitum líka meira núna um skað­semi ópíóíða finnst mér ekki að þetta eigi að vera ofar­lega á blaði sem ráð við hósta,“ sagði Hjalti Már í sam­tali við Frétta­blaðið á dögunum.

Árni Tómas er ekki ánægður með ummæli Hjalta Más, ef marka má nýjan pistil hans í Morgun­blaðinu, og segir ýmislegt við málflutning hans að athuga. „Í fyrsta lagi að lækn­ir­inn, að ég held, hef­ur enga reynslu af því sjálf­ur að ann­ast sjúk­linga með langvar­andi verkja­vanda­mál. Í öðru lagi stíg­ur hann mjög bratt­ur fram og hræðir að óþörfu þær þúsund­ir Íslend­inga, sem nota lyfið til að stilla verki (og fleira).“ Hann segir Hjalta Má vísa til erlendra rannsókna sem sýni fram á gagnleysi Parkódíns, og að hann vísi til hættu á ávana­bindingu. Árni Tómas segir nokkuð vera til í því, en ekki mikið.

Aldrei verið sýnt fram á skaðleg áhrif ráðlagðra skammta

„Parkó­dín er sam­sett lyf, sem inni­held­ur að hluta til lyfið kó­dín, sem hef­ur verið notað í ára­tugi til að stilla verki. Það er eitt elsta verkja­lyfið, sem enn er notað í dag og því mik­il reynsla kom­in á notk­un þess. Það hef­ur aldrei verið sýnt fram á skaðleg áhrif þess sé það notað í ráðlögðum skömmt­um, sem lang­flest­ir gera,“ segir Árni Tómas í pistlinum. Hann segir einungis örfáa einstaklinga ofnota lyfið en að flestir þeirra einstaklinga myndu finna sér önnur og skaðlegri lyf ef notkun Parkódíns væri bönnuð.

„Það væri voða gott ef eng­ir hefðu verki, sér­stak­lega ekki til langs tíma. En því miður er staðan ekki þannig. Þúsund­ir Íslend­inga eru með langvar­andi verki og finnst Parkó­dín lina þá. Þeir gefa lítið fyr­ir rann­sókn­ir sem sýna annað. Það er nefni­lega þannig að það er eng­inn, sem veit hvernig öðrum líður á sál og lík­ama en sá sem á þá sál og lík­ama. Og þar af leiðandi er eng­inn, sem veit hvað virk­ar best gagn­vart t.d. verkj­um, kvíða, þung­lyndi og svefn­leysi, nema þeir sem þurfa að búa við þá kvilla. Það er því miður svo að ör­lít­ill hluti fólks, sem er ávísað lyfj­um við þess­um kvill­um, get­ur leiðst út í of­notk­un þeirra.“

Árni Tómas slær því föstu að langflestir fari eftir settum leið­beiningum um notkun lyfjanna og hljóti þar með engan skaða af. Hins vegar uppskeri viðkomandi aðilar mun meiri lífsgæði en áður, „sem við öll sækjumst eftir.“

Segir það ljótt að hræða fólk

„Það er ljótt að hræða fólk frá því að nota lyf í hófi, sem því finnst sjálfu að því líði bet­ur af. Ég hef starfað sem lækn­ir í 50 ár og hef mikla reynslu af notk­un þess­ara lyfja og sára­sjald­an séð nei­kvæðar af­leiðing­ar af því að ég ávísi þeim til skjól­stæðinga minna. En for­dóm­arn­ir meðal margra lækna og al­menn­ings eru mikl­ir,“ segir Árni Tómas. Hann minnir á að fyrir árið 1940 hafi nánast engin lyf verið til á borð við þau sem við notumst við í dag.

„Aðeins gagns­laus­ar mixt­úr­ur, sem lækn­ar skrifuðu út til friðþæg­ing­ar skjól­stæðinga sinna. Um og eft­ir 1950 hófst „lyfja­bylt­ing­in“ – fund­in voru upp lyf við alls kyns sjúk­dóm­um og kvill­um, sem bættu líðan fólks eða forðuðu því frá bana. Við lif­um því góða tíma hvað lyf varðar, lyf sem hafa bætt líðan og lífs­lík­ur fólks í rúm 80 ár, – lyf, sem ekki voru til áður. Við erum hepp­in að vera uppi á þess­um tím­um, en ger­um okk­ur ekki alltaf grein fyr­ir því!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá