Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Maður skotinn með haglabyssu – Sá myrti átti að hafa misnotað morðingjann kynferðislega

Milli jóla og nýárs árið 1996 skaut ungur Hafnfirðingur Hlöðver til bana við Krýsuvíkurveg. Þeir þekktust en höfðu ekki talast við lengi. Atvikið var uppgjör vegna misnotkunar sem Hlöðver átti að hafa beitt hinn unga mann á árum áður, meðal annars við Krýsuvík.

Ungi maðurinn var einn til frásagnar um þessa örlaga­ríku nótt. Það var hlýtt en slagveðurs­rigning þegar hann gekk út í bíl til Hlöðvers með hlaðna byssuna og settist í farþega­sætið.

Maðurinn skaut Hlöðver með hagla­byssu í aftanverðann upphandlegg hægri handar og tættu höglin í sundur margar æðar svo mikið blæddi. Í kjölfarið fór Hlöðver í lost og blæddi út. Hlöðver fannst látinn við Krýsuvíkurveg, en Hlöðver var einnig mjög hjarta­veikur.

Gerði lítið úr misnotkuninni

Ungi maðurinn var hand­tekinn í kjölfar morðsins og játaði hann á sig verknaðinn. Samkvæmt manninum hafði hann sjálfur hringt í Hlöðver kvöldið áður og beðið hann að sækja sig. Maðurinn var töluvert ölvaður og tók hlaðna hagla­byssu með sér í bílinn. Hann bað Hlöðver að keyra út á Krísu­víkurveg, en þar ákvað hann að bjóða Hlöðveri birginn. Hann fór að rifja upp sárar minningar af kynferðis­ofbeldi, sem hann sagði að Hlöðver hafði framið gegn sér, tíu árum áður.

Maðurinn sagði Hlöðver hafa gert lítið úr misnotkuninni og þá hafi hann mikið reiðst. Báðir yfirgáfu bílinn meðan á samræðunum stóð og endaði með því að maðurinn skaut að Hlöðveri, til þess að ógna honum, að eigin sögn.

Hlöðver hafi þá hlaupið á brott, en maðurinn tók bíl hans og keyrði hann inn í Hafnar­fjörð þar sem hann skildi hann eftir. Maðurinn sagði við yfirheyrslur og fyrir dómi að hann hafði ekki ætlað sér að drepa Hlöðver heldur einungis hræða hann. Hins vegar hafi Hlöðver snúið sér við um leið og hann skaut og höglin þá lent í upphandlegg hans.

Tældu drengi í tuttugu ár

Maðurinn var ákærður fyrir mann­drápið á Hlöðveri og í júní, sama ár. Réttað var yfir honum í Héraðs­dómi Reykjaness. Þann 4. júní var atvikið sviðsett við Krýsuvíkur­afleggjarann að viðstöddum dómurum, lögmönnum og ákærða. Í réttar­höldunum stigu einnig fram tvö vitni sem sögðust hafa orðið vitni að misnotkun Hlöðvers á honum. Það hefði átt sér stað í Krýsuvíkur­hrauni, á heimili Hlöðvers við Álfaskeið 4 og við Hafn­arfjarðarhöfn þar sem hann starfaði sem vaktmaður. Þeir tveir menn sem báru vitni sögðust báðir hafa verið misnotaðir af bræðrunum Hlöðveri og Árna og höfðu haldið því leyndu líkt og ungi maðurinn. Einnig vissu þeir um fleiri sem höfðu orðið fyrir barðinu á bræðrunum.

Lengi hafði verið vitað að mennirnir væru að eiga við unga drengi í Hafnar­firði. Foreldrar vöruðu börn sín við þeim og lögreglan var á varðbergi og bægði ungum drengjum frá höfninni. Engin kæra hafði birst fyrr en árið 1992 þegar móðir andlega fatlaðs drengs tók af skarið. Í frétt DV frá 13. nóvember það ár segir:

„Ég veit að þessir bræður eru búnir að stunda þetta í fjöldamörg ár. Hversu margir drengir hafa orðið fyrir barðinu á þeim veit ég ekki en ég vil vara foreldra við þeim. Svo virðist sem bræðurnir hafi stundað þá iðju að lokka drengi bæði um borð í skip í Hafn­arfjarðarhöfn og á heimili sitt í gamla bænum í Hafnar­firði. Þar hafa þeir sýnt ungum drengjum klám­myndbönd, boðið upp á sælgæti, áfengi og tóbak og borgað fyrir samræði við þá.“

Sleppt úr haldi

Hlöðver var með síma­númerabirti þar sem sást að hringt hafði verið í hann af heimili unga mannsins um nóttina. Heima hjá Hlöðveri fannst blað þar sem á stóð nafn unga mannsins og símanúmer. Leit hófst að bifreiðinni sem fannst loks síðdegis bak við fisk­verkunarhús við Herjólfs­götu í Hafnar­firði.

Rann­sóknin beindist strax að unga manninum og var hann hand­tekinn samdægurs. Hann vísaði lögreglu á Remington-hagla­byssuna en neitaði að hafa framkvæmt verknaðinn. Þá fannst önnur hagla­byssa, rússnesk að gerð, við húsleit hjá honum og nokkur haglaskot. Dómari féllst hins vegar ekki á gæslu­varðhald og var manninum því sleppt. En lögreglan hafði hann þó enn grunaðan og rannsókn málsins miðaðist við það.

Lögreglan hafði ýmis gögn til rann­sóknar. Í Lödunni fannst sígarettu­stubbur sem einhver hafði drepið í á mæla­borðinu og var hann sendur út til Noregs til DNA-rann­sóknar. Niður­stöðurnar sýndu að 99 prósent líkur væru á því að munn­vatnið í stubbnum væri úr unga manninum. Á líki Hlöðvers fannst forhlað, innan úr hagla­byssuskoti, sem rannsókn sýndi að passaði við Remington-byssuna. Þegar leyfi fékkst fyrir að skoða símhringingar sást að í níu skipti hafði verið hringt úr síma unga mannsins til Hlöðvers þessa nótt.

Maðurinn var dæmdur til 10 ára fangelsis­vistar, en tekið var tillit til fortíðar hans og Hlöðvers og þess að maðurinn var ekki í andlegu jafnvægi þegar hann hleypti af hagla­byssunni. Hlöðver hafði eins og fyrr segi verið ásakaður og kærður fyrir að misnota unga drengi en aldrei hafði náðst að sanna neitt alvarlegt á hann.

Heimildir:

Kristinn H. Guðnason. 20. maí 2018. Sakamál: Drap níðing sinn í Hafnar­firði. DV.

Friðrik Þór Guðmundsson og Haraldur Jónsson. 19. nóvember. 1992. Árangurs­laust reynt að hanka þá um árabil. Pressan. 46. tölublað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá