Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Flokkur fólksins stendur stoltur við bakið á Tómasi: „Í dag er hann dáinn, sjáið þið til.“

Inga Sæland Mynd / Hallur Karlsson
Inga Sæland Mynd / Hallur Karlsson

Flokkur fólksins stendur þétt við bakið á Tómasi A. Tómassyni eftir að skilaboð Tómasar til kunningja síns árið 2014 komst í hámæli í dag.

Formaður Flokks fólksins, Inga Sæland var í síma­viðtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag þar sem hún sagði alla í flokknum beri saman um að það komi akkurat engum við hjá hverjum Tómas sængaði í Taílandi fyrir átta árum síðan. Stendur flokkurinn stoltur við bak Tómasar að hennar sögn enda neiti hann að um vændis­kaup hafi verið að ræða.

„Þetta er persónulegt mál og ég er í raun bara stein­hissa á að þetta sé komið á þetta flug,“ sagði Inga sem tók sér pásu á Reykja­lundi til að ræða við útvarpið en hún er nú í veikinda­leyfi frá Alþingi.

Skila­boðin sem Tómas sendi kunningja sínum eru eftir­farandi:

„Ein dásamleg 26 ára ca. 45 kg var að yfirgefa herbergið smokk­laust. En byrjaði á nudd­konunni fyrr í dag, kvöldið er ungt, 20.21.“. Síðar í skila­boðunum segir Tómas ætla að „taka“ eina fyrir kunningja sinn.

„Á sama tíma og við höfum óbeit á þessu orðbragði, sem hefur flogið um samfélagið sem eldur um akur, milli tveggja vina fyrir átta árum síðan, vil ég segja að okkur ber öllum saman um það að hjá hverjum Tómas A Tómasson, kallaður Tommi, sængaði í Taílandi fyrir átta árum, að það komi okkur akkurat ekkert við. Ekki frekar en það komi nokkrum öðrum við,“ sagði Inga um málið.

Kunninginn sem birti skila­boðin á Facebook um daginn er nú látinn. Þegar Inga er spurð hvort henni finnist málið ekki eiga erindi við almenning svarar Inga: „Nei, það finnst mér ekki. Sér í lagi þegar þetta er í kringum mjög sorglegan atburð sem ég vil helst ekki fara í kringum hér því þið töluðuð bara um annan, þeir eru tveir og þeir voru vinir. Og annar þeirra átti mjög bágt einmitt á þessum tíma sem hann birti þetta samtal sem átti sér stað fyrir átta árum. Hann sá eftir því og tók það niður. En í dag er hann dáinn, sjáið þið til.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá