Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Meðlimir Dimmu saka Stefán um lygar

„Þessar full­yrðingar eru ekki bara ærumeiðandi óhróður, heldur ósannindi“

Dimma eftir tónleika
Dimma eftir tón­leika Mynd: Ingólfur Geirdal/Facebook

Ingólfur Geirdal, meðlimur Dimmu og aðrir meðlimir hljóm­sveitarinnar, eru mjög ósáttir við Stefán Jakobsson og yfir­lýsingu hans en hann hætti í hljóm­sveitinni á Facebook í fyrradag.

Í færslu sem Stefán, fyrr­verandi söngvari Dimmu, birti á samfélags­miðlum sakaði hann Silla Geirdal um að hafa tekið stöðu með manni sem kærði Stefán til lögreglu fyrir líkams­árás en Stefán var sýknaður í vikunni í Héraðs­dómi. Við þetta sætti hann sig ekki og hætti í hljóm­sveitinni í kjölfarið.

Dimma hefur nú svarað færslu Stefáns.

„Stefán Jakobsson birti nýverið yfir­lýsingu á samfélags­miðlum og í fjöl­miðlum þar sem hann ber Silla Geirdal og eiginkonu hans þungum sökum. Þessar full­yrðingar eru ekki bara ærumeiðandi óhróður, heldur ósannindi,“ skrifar Ingólfur fyrir hönd sveitarinnar.

„Stefán fullyrðir að Silli og eiginkona hans hafi frá upphafi máls tekið skýra afstöðu gegn honum og kennt honum um þessar ófarir. Það er rangt. Þau reyndu þvert á móti bæði í sitthvoru lagi að koma á samtali og sáttum milli beggja aðila, strax í upphafi. Stefán hafnaði því alfarið og sagði að málið yrði að fara sína leið,“ heldur tónlistar­maðurinn áfram.

„Þar sem báðir aðilar tengdust þeim hjónum (annars vegar fjöl­skyldu­böndum og hinsvegar vina­böndum) og aðilum bar ekki saman um málsatvik, voru þau hjónin sett á milli steins og sleggju og báðu um að þau væru ekki dregin inn í þessar deilur. Því var svarað af Stefáni og eiginkonu hans með blokkunum á samfélags­miðlum, útskúfun og kröfum frá Stefáni að eiginkona Silla kæmi ekki baksviðs á tónleikum sveitarinnar. Það gerði andrúms­loftið ekki auðveldara fyrir neinn og á endanum sprakk samstarfið,“ skrifar Ingólfur.

„Silli er einn af stofn­meðlimum DIMMU og hefur undan­farin ár séð um umboðs­mennsku og rekstur sveitarinnar auk annarra starfa. Ef hann hefði tekið skýra afstöðu gegn Stefáni, hefði samstarfinu verið sjálfhætt strax í upphafi. Þvert á móti hélt Silli áfram að bóka tónleika, hljóð­blanda og klippa myndefni og hanna auglýsingar ásamt eiginkonu sinni, þar sem Stefán var oftar en ekki hafður í forgrunni eins og áður. Enda er það staðreynd að enginn hefur lagt á sig meiri vinnu við tónleika­uppsetningu, upptökur, auglýsingar og hönnun fyrir Stefán Jakobsson og Dimmu en einmitt Silli og frú,“ skrifar rokkarinn mikli um málið

„Við bræður trúðum því að styrkur DIMMU lægi í heildinni og við ættum allavega 10 góð ár eftir saman. Ljóst er nú að svo verður ekki en að slíta samstarfinu með því að dreifa óhróðri og úthúða fyrrum samstarfs­fólki sínu í fjöl­miðlum er ekki bara ljótt, heldur óheiðarlegt,“ heldur hann áfram.

„Ásetningurinn er augljós; að búa þannig um hnútana að við fyrrum samstarfs­félagar hans eigum okkur varla viðreisnar von. Og ljóst er að það eru margir sem eru tilbúnir að hoppa á vagninn með heykvíslana hátt á lofti, án þess að heyra aðrar hliðar málsins. En með þessu kastar Stefán ekki bara rýrð á þau 23 ár sem DIMMA hefur starfað, heldur sérstak­lega þau 15 ár sem hann var með okkur,“ segir hann.

„Við óskum Stefáni velfarnaðar og vonandi getur hann látið af því í fram­tíðinni að draga okkur inn í sín mál og gera að blóra­bögglum í fjöl­miðlum. Okkar leiðir hafa skilið og það hlýtur að vera hægt að leyfa okkur að lifa í friði, þó ekki væri nema bara af virðingu við þær fjölmörgu góðu minningar og tónlistar­legu arfleifð sem við sköpuðum saman,“ skrifar Ingólfur að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Mette Frederiksen segir gagnrýni á orðaval sitt ekki lýsa afstöðu sinni. Ummæli hennar í stjórnmálahlaðvarpi hafa vakið umræðu í Danmörku.
Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Áhorfandi sagði táningsstúlku sem dæmdi leikinn að drepa sig.

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík