Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Ung kona var myrt af eiginmanni sínum í Hamraborg í Kópavogi: Morðið var framið í stundarbrjálæði

Aðfara­nótt fyrsta dags nóvember­mánaðar árið 2004 var lögreglan kvödd að fjölbýlis­húsi í Kópavogi. Ung kona var látin og eigin­maður hennar játaði á staðnum að hafa banað konunni. Um var að ræða fjölskyldu­fólk sem lifði hefð­bundnu lífi og var ekki í óreglu. Morðið var ástríðu­glæpur, framið í stundar­brjálæði.

„Oft er um að ræða ástríðu­glæp milli maka eða fyrr­verandi maka þar sem annar aðilinn kemst að því að hann hafi með einhverjum hætti verið svikinn, t.d. haldið fram hjá. Yfirleitt er um að ræða skyndilegar aðstæður sem koma gerandanum að óvörum. Fórnar­lömbin hafa líka oft verið brotleg í sambandinu með einhverjum hætti,“  sagði Anna Kristín Newton, réttar­sálfræðingur í samtali við Vísi um málið á sínum tíma.

Á Íslandi ganga um það bil 1.600 pör í hjónaband á ári hverju. Árið 2001 var ungt íslenskt par í þessum fjölmenna hópi. Allt lífið var fram undan og sambandið gekk eins og í sögu fyrst um sinn. Þau komu sér vel fyrir í lítilli íbúð og eignuðust tvö börn.

Þremur og hálfu ári eftir gleði­stundina upp við altarið hafði sigið á ógæfu­hliðina í hjóna­bandinu sem endaði með ástríðu­glæp.

Yfirheyrsla í Kópavogi

Við yf­ir­heyrsl­ur hjá lög­regl­unni í Kópa­vogi játaði tæp­lega þrítug­ur karl­maður, að hafa orðið eig­in­konu sinni að bana í íbúð þeirra í Hamra­borg í fyrrinótt. Svo virðist sem maður­inn hafi þrengt að önd­un­ar­vegi kon­unn­ar þar til hún lést.

Konan var 25 ára göm­ul, fædd 7. fe­brú­ar 1979 og starfaði við ræst­ing­ar.

Í til­kynn­ingu frá lög­reglu seg­ir að hún hafi verið kvödd að íbúðinni klukk­an 3.05 vegna and­láts kon­unn­ar. Þar seg­ir að áverk­ar hafi verið á líki henn­ar sem bentu til þess að átök hefðu átt sér stað sem hefðu leitt til dauða henn­ar. Maður­inn var hand­tek­inn í íbúðinni og játaði hann að hafa átt þátt í láti kon­unn­ar.

Þegar lög­regla kom á staðinn voru tvö börn þeirra hjóna í íbúðinni, fjög­urra ára göm­ul stúlka og eins árs dreng­ur. Þeim hef­ur verið komið fyr­ir í um­sjón fjöl­skyldu kon­unn­ar. Börn­in urðu einskis vör og voru sof­andi þegar lög­regla kom á staðinn.

Sam­kvæmt heim­ild­um Morg­un­blaðsins gerði maður­inn at­lögu að eig­in­konu sinni í svefn­her­bergi þeirra og voru ekki sjá­an­leg um­merki um átök í íbúðinni.

Að sögn Friðriks Björg­vins­son­ar yf­ir­lög­reglu­þjóns barst fyrsta til­kynn­ing um málið frá þriðja aðila, manni sem bana­maðurinn hringdi í eft­ir að kon­an var lát­in og sagði hon­um frá því sem gerst hafði. Stuttu síðar hringdi hann sjálf­ur í lög­reglu og greindi frá at­b­urðum.

Lög­regl­an í Kópa­vogi ræddi m.a. við ná­granna fólks­ins og kvaðst einn þeirra hafa heyrt ein­hvern hávaða frá íbúðinni um nótt­ina. Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá lög­reglu hafði hún aldrei áður verið kvödd að íbúð þeirra og maður­inn ekki áður komið við sögu lög­reglu.

Ellefu ára dómur

Eigin­maður konunnar var dæmdur til níu ára fangelsis­vistar en Hæstiréttur þyngdi dóminn um tvö ár. Foreldrum ungu konunnar fannst dómurinn yfir eigin­manninum í fyrstu vera léttvægur.

„Okkur fannst það á sínum tíma vera lélegur dómur. Við hefðum viljað hafa hann mikið þyngri. Við missum stúlkuna og okkur fannst hann sleppa billega frá þessu. Hann hafði rétt á að sjá börnin hálfsmánaðarlega. Þá þurftum við alltaf að fara upp á Litla-Hraun í alls kyns veðrum og stundum leist okkur ekkert á blikuna. Með tímanum vorum við farin að vona að þetta yrði styttra. Þá yrði þetta ekki eins erfitt fyrir þau.“

Hrópaði nafn annars manns

Dómurinn sem eigin­maðurinn í Hamraborg fékk er alls ekkert einsdæmi þegar kemur að íslenskum ástríðu­glæpum. Í sambærilegu máli árið 1961 banaði maður eiginkonu sinni eftir að hún hrópaði nafn annars manns í rúmi þeirra. Sá var dæmdur í sex ára fangavist.

Þetta mál var einmitt haft til hliðsjónar í vörn mannsins. Árið 1992 var ung kona einnig dæmd í sex ára fangelsi fyrir að stinga unnusta sinn í stundar­brjálæði. Í öllum þessum málum þóttu sérstakar refsilækkunar­ástæður eiga við vegna aðstæðna.

Óhefðbundin afbrot

Ástríðu­glæpir skera sig í mörgum tilfellum úr þegar bakgrunnur afbrota­mannsins er skoðaður eins og var í tilfelli eigin­mannsins í Hamraborg en hann hafði aldrei komið við sögu lögreglu og þótti fyrirmyndar­borgari.

„Oft er um að ræða einstaklinga sem öllu jöfnu hafa ekki verið að brjóta af sér með neinum hætti. Það er ólíkt því sem við sjáum hjá hinni hefð­bundnu afbrota­manneskju sem er oft í margs konar brotum. Hún er í neyslu, brýst inn í bíla og stelur í búðum. Einstaklingar sem fremja ástríðu­glæpi eins og við köllum þá eru oft bara „venjulegt fólk.“

Tekið skal fram:

Á síðustu misserum hafa miklar umræður skapast um notkun á orðinu ástríðu­glæpur. Allmargir hafa krafist þess að hætt sé að nota orðið ástríðu­glæpur, vegna þess að ofbeldi ætti aldrei að vera tengt ástar­tilfinningu. Afbrota­fræðingar víðsvegar hafa notað þessa skilgreiningu þegar þeir eru að greina glæpi og þegar það þarf að taka inn í málið marga ólíka þætti. Þar sem að þessi grein er unnin upp úr gömlum heimildum þegar notkun á þessu orði tíðkaðist enn, var haldið í það orð við lýsingar á glæpnum.

Heimildir:

Aðalsteinn Kjartansson. 20.11.2011. Karlar sem myrða konur. Dagblaðið Vísir – DV. 58. tölublað.

Ásgeir Erlendsson. 25. maí 2014. Hjóna­bandið endaði með ástríðu­glæp. Vísir.

Réð konu sinni bana: Áverkar benda til þess að átök hafi átt sér stað. 2.11.2004. Morgun­blaðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá