Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Systir Björgvins Páls fær enga aðstoð við fíknivanda: „Á litla systir mín engan séns?“

Björgvin Páll Gústavsson, fyrr­verandi lands­liðsmaður í handbolta, birti átakanlega færslu á Facebook síðu sinni þar sem hann lýsir því hvernig kerfið hefur brugðist litlu systur sinni. „Til þess að gera langa sögu stutta. Þá var pumpað í hana lífi 6x í síðustu viku vegna ofneyslu,“ skrifar Björgvin.

Systir Björgvins glímir við fíkni­sjúkdóm og eftir að hafa gengið út af Vogi í miklu ójafnvægi var hún á götunni í þrjá daga. Þaðan endaði hún á bráða­móttöku vegna ofkælingar og leitaði þá á geðdeild. Geðlæknir mat sem svo að hún yrði ekki lengur inni á geðdeild en í tvo til þrjá daga, engin úrræði bíða hennar að þeim tíma loknum. Þess má geta að á Land­spítala starfar svo kölluð fíknigeðdeild sem aðstoðar fólk með fíkni­vanda, þó er oft fullt þar eins og í öðrum úrræðum fyrir þennan hóp fólks.

Björgvin segist hafa hringt í flestar meðferðar­stofnanir landsins en þær séu allar fullar. „Þetta er ákall um breytingar. Nú skilur fólk kannski betur hvaðan ég kem þegar ég tala um jöfn tækifæri og að grípa börnin okkar.“

Björgvin segir frá hörmulegri reynslu þeirra systkina þegar móðir þeirra reyndi að taka eigið líf en hún glímdi einnig við alkahólisma og önnur geðræn vandamál.

„Mamma mín hefur alltaf gert sitt besta, en það besta var hreinlega ekki nóg þar sem að hún fékk heldur ekki bestu spilin á hendurnar og ef að kerfið hefur brugðist einhverjum þá er það henni. Saga mömmu er ótæmandi áfalla­saga sem fáir geta ímyndað sér hvernig lítur út en ég talaði aðeins um hennar sögu í bókinni minni.

Það tók mig því miður æði langan tíma að fyrirgefa henni sjálfsvígs­tilraunirnar og með hverri tilraun fjar­lægðumst við hvort annað frekar. Það var ekki fyrr en löngu síðar að ég náði að skilja hennar sögu betur. Mamma mín hefur, fyrir utan að eiga við þunglyndi, kvíða, félags­fælni og alkóhólisma að stríða, gengið í gegnum það að missa einn unnusta í vinnu­slysi og annan úr krabba­meini og lífið hefur á köflum reynst henni afar erfitt.

Að auki er mamma búinn að vera í fjárhags­vænd­ræðum frá því ég kom í heiminn, reynt að vinna sig út úr þeim með því að leggja alltof mikið sig, keyrt sig oft í kaf, set sig í 2. sæti og á sama tíma verið að reyna að ná utan um lífið og fjöl­skylduna sína. Ég kenni mömmu ekki um neitt.

Ég er bara þakklátur fyrir að mamma sé á lífi og sé ennþá til staðar fyrir barna­börnin sín. Ég trúi því líka að með því að tala um þessi mál öll svona opinskátt sé ég að hjálpa öðrum í svipaðri stöðu og eins að hjálpa mömmu með að díla við fortíðina. Ég er löngu búinn að fyrirgefa henni fyrir sín mistök. Án mömmu og án hennar sögu væri ég bara einhver handbolta­kall sem væri löngu hættur að reyna að berjast fyrir því að bæta þetta kerfi sem við lifum öll í.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá