Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Ung stúlka í blóði sínu eftir árás í Reykjavík: „Ég vil ekki deyja, ég vil ekki deyja“

Föstu­daginn 4.desember árið 1981 var gerð hrottaleg árás á unga stúlku. Henni var vart hugað líf um tíma. Árásar­maðurinn batt stúlkuna og réðst á hana með steinum og hníf ásamt því að brenna hana. Stúlkan lá í blóði sínu í allt að fjórar klukku­stundir þangað til vegfarandi fann hana fyrir tilviljun. Var þetta með hrottalegri árásum sem lögregla hafði séð á þessum tíma.

Fórna­lambið var aðeins 15 ára þegar árásin átti sér stað en gerandinn 28 ára karlmaður. Rann­sóknin tók stuttan tíma og játaði maðurinn brot sitt fyrir lögreglu.

Stúlkan beið eftir strætis­vagni þegar maðurinn nálgaðist hana og fékk hana til að koma með sér á bak við skúr sem var í nálægð við strætis­vagna­stöðina. Þar áreitti hann stúlkuna og reyndi að fá hana til að stunda með sér kynlíf en þegar hún neitaði og reyndi að koma sér í burtu réðst gerandinn á hana með þessum hörmulegu afleiðingum. Svo virðist sem maðurinn hafi séð af sér en stuttu eftir árásina var hringt í sjúkrabíl og tilkynnt um slasaða unga stúlku, talið er að hann hafi hringt sjálfur. Sjúkra­bíllinn fann þó ekki stúlkuna og var það ekki fyrr en maður sem átti leið hjá fann hana og gerði lögreglunni viðvart.

Árásar­maðurinn hafði oft áður komið við sögu lögreglu, aðallega fyrir fjárhagslegt misferli. Hann hafði þó verður kærður fyrir að ógna ungum stúlkum með eggvopni. Maðurinn, Hall­grímur Ingi Hallgrímsson, var forfallinn fíkill og alka­hólisti. Hann bjó rétt hjá staðnum sem árásin átti sér stað og var strax grunaður.

Stúlkan náði sér að fullu eftir árásina.

„Ég var öll dofin þegar ég vaknaði til lífsins á nýjan leik. Hafði verið sprautuð niður, þannig að sársaukinn var ekki svo mikill. En vanlíðan var til staðar, ekki síður sálarleg en líkamleg. Áverkarnir voru miklir á öllum skrokknum, í andliti og á höndum. En verstir þóttu mér mar- blettirnir á hand­leggjunum, því þeir voru eftir fingur hans og hendur. Mér fannst eins og fingraför árásarmannsins væru á líkama mínum, skítug og ógeðsleg. Ég man hvað ég beið þess að marblettimir á hand­leggjunum hyrfu, því þeir minntu mig svo á árásarmanninn. Ég var einhvem veginn óhrein á meðan þessi handaför voru á mér.

En ég gerði mér vitanlega ljóst, þegar ég vaknaði til meðvitundar, að ég hafði verið hætt komin. Pabbi hefur sagt mér, að það fyrsta sem ég hafi sagt, þegar ég var að koma til lífsins á nýjan leik, hafi verið :. Ég man ekki gjörla eftir þessu, en held þó endilega að ég hafi verið að reyna að koma þeim skila­boðum til pabba og mömmum, að ég myndi ekki deyja, heldur lifa áfram,“ sagði þolandinn í bókinni Ég vil lifa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá