Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Sigurður Ingi hringdi í Brynju Dan vegna ummælanna: „Mér leið illa í allan gærdag“

Mynd / Aldís Pálsdóttir.
Mynd / Aldís Páls­dóttir.

„Ég ætla ekki að neita því að þetta er ömurlegt, sárt og glatað. Mér leið illa í allan gærdag; að melta þetta allt saman,“ segir Brynja Dan, vara­þingmaður Framsóknar­flokksins, um rasísk ummæli formanns flokksins um Vigdísi Häsler, framkvæmda­stjóra Bænda­samtakanna. Þetta kemur fram á RÚV.

Að sögn hringdi Sigurður Ingi Jóhannsson innviða­ráðherra og formaður Framsóknar­flokksins í Brynju og ræddi við hana um ummælin. Sigurður Ingi er sagður hafa vísað til Vigdísar Häsler sem „þeirrar svörtu“ í gleðskap sem haldinn var í tilefni Búnaðar­þings í lok síðustu viku.

Ummælin sjálf hafa ekki verið staðfest opinber­lega en Vigdís sendi þó frá sér yfir­lýsingu þar sem hún sagði þau hafa verið afar særandi. Sigurður Ingi sendi síðan frá sér yfir­lýsingu í gær þar sem hann baðst afsökunar á ummælunum, án þess þó að tilgreina hver þau væru.

Sigurður Ingi er sagður hafa viðhaft ummælin um Vigdísi þegar taka átti hópmynd í gleðskapnum.

Brynja Dan Gunnars­dóttir, vara­þingmaður Framsóknar­flokksins, var gestur Morgun­útvarpsins á Rás 2 í morgun þar sem hún sagði meðal annars frá símtali Sigurðar Inga til sín. Brynja er ættleidd frá Srí Lanka og Vigdís frá Indónesíu.

Brynja sagði í Morgun­útvarpinu að hvorug þeirra Vigdísar væru svartar, heldur gular „ef fólk vill fara út í einhver tæknileg atriði.“ Brynja sagði að sér hefði liðið illa í gær á meðan hún reyndi að melta atburða­rásina. „Ég fékk hins vegar símtal frá Sigurði Inga og við ræddum málið. Hann er fullur iðrunar og svekktastur út í sjálfan sig,“ sagði hún í þættinum.

Brynja þvertekur fyrir það að hafa fundið fyrir fordómum innan Framsóknar­flokksins og síst af öllu frá Sigurði Inga. „Þvert á móti hefur hann verið hinum megin við borðið – að við megum vera alls konar og fagnað fjöl­breyti­leikanum.“ Í þættinum sagði hún að við værum öll mannleg og að það skipti máli hvernig við hreinsuðum upp eftir okkur og bættum ráð okkar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá