Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Skilorðsbinding nauðgunardóma: Gerandi í grófri nauðgun þarf aldrei að sitja af sér refsivist

Á Íslandi er farið mýkri höndum um gerendur í kynferðis­brotamálum en víða í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Þeir sem sakfelldir eru fyrir slík brot þurfa jafnvel ekki að sitja af sér dóma sína, heldur er skilorðs­bindingu oft beitt og sakborningar ganga þar með lausir. Í Svíþjóð er til að mynda ólöglegt að skilorðs­binda dóma þar sem lágmarks­refsingin er hærri en eitt ár. Þar er lágmarks­refsing fyrir nauðgun tvö ár. Auk þessa er máls­meðferðar­tími á Íslandi iðulega langur og njóta gerendur oft góðs af því við dóms­uppkvaðningu. Á sama tíma hefur brotaþoli málið hangandi yfir sér með meðfylgjandi angist og óvissu. Ofan á þetta kemur að brota­þolar þurfa síðan jafnvel sjálfir að innheimta miska­bætur, með tilheyrandi kostnaði og kljást þannig áfram við þann sem á þeim braut.

Nýlegur dómur í grófu nauðgunar­máli var skilorðs­bundinn að fullu, bæði fyrir Héraðs­dómi Reykja­víkur og í Lands­rétti. Var þetta gert jafnvel þótt sérstöku refsiþyngingar­ákvæði hafi verið beitt í héraðs­dómi, sem einungis er gert í tilfellum stór­felldra og sérlega alvarlegra ofbeldis­brota.

Bætur til brotaþola voru lækkaðar á milli dómstiga og brotaþoli á ekki rétt á tryggingu miska­bótanna úr ríkis­sjóði, þar sem brotið var framið á erlendri grundu.

Full skilorðsbinding þrátt fyrir þyngingu dóms

Um er að ræða mál þar sem Jón Páll Eyjólfsson, fyrr­verandi leik­hússtjóri hjá Leik­félagi Akureyrar, var sakfelldur í Lands­rétti þann 3. desember fyrir gróft kynferðis­brot. Áður hafði Jón Páll verið dæmdur í tveggja og hálfs árs skilorðs­bundið fangelsi í héraðs­dómi, en áfrýjað dómnum til Lands­réttar. Lands­réttur þyngdi dóminn í þriggja ára skilorðs­bundið fangelsi en lækkaði miska­bætur til brotaþola úr 2,5 milljónum króna niður í 2 milljónir króna.

Það vakti furðu margra að svo gróft ofbeldis­brot skyldi enda með dómi sem er að fullu skilorðs­bundinn. Jón Páll þarf því aldrei að sitja af sér refsivist.

Því fer fjarri að þetta sé eina dæmið um mál þar sem sakfellt er fyrir gróft kynferðis­brot og dómurinn skilorðs­bundinn að fullu.

Í frétta­skýringa­þættinum Kveik var nýverið fjallað um brota­lamir á máls­meðferð kynferðis­brota í réttar­kerfinu. Einn brota­þolinn sem steig fram með sögu sína í þættinum lýsti því hvernig meðferð á nauðgunar­máli hennar hefði tekið sex ár í heildina, á tveimur dómstigum. Málið endaði með sakfellingu – en dómurinn var skilorðs­bundinn að fullu. Ástæða þess var sögð löng máls­meðferð og að ekki væri hægt að kenna sakborningi um það. Sama skýring var gefin á skilorðs­bindingu dómsins yfir Jóni Páli Eyjólfs­syni.

Það brot átti sér stað á hótel­herbergi erlendis árið 2008. Árið 2018 hóf lögregla frumkvæðis­rannsókn á málinu, sem endaði með ákæru. Dómur Héraðs­dóms Reykja­víkur, sem féll þann 30. nóvember árið 2020, lýsir grófu ofbeldi Jóns Páls á hendur brotaþola. Þar segir meðal annars að hann hafi kastað sér á konuna þar sem hún lá í rúmi á hótel­herberginu og haldið henni fastri. Hún hafi barist um og átökin endað með því að konan féll í gólfið. Þar hafi Jón Páll komið í veg fyrir að hún gæti staðið á fætur með því að grípa í fótlegg hennar, svo hún skall harkalega með hnéð í gólfið og datt á bakið. Þá hafi hann sett hné sitt í bringu hennar með þeim afleiðingum að hún hlaut stóran marblett af.

Þar segir meðal ann­ars að hann hafi kastað sér á kon­una þar sem hún lá í rúmi á hót­el­her­berg­inu og haldið henni fastri.

Eftir þetta hafi konunni tekist að skríða aftur upp í rúm sitt en þangað hafi Jón Páll elt hana, lagst ofan á hana og haft við hana samræði án samþykkis hennar. Skýrslur frá neyðar­móttöku, sem konan leitaði til daginn eftir, við komuna til Íslands, sýna að hún hefði meðal annars hlotið marga marbletti og sár á ýmsum stöðum, rispur og núningssár auk sprungu í slímhúð við leggangaop. Allt var þetta talið samræmast sögu hennar. Myndir voru teknar af áverkunum á neyðar­móttöku.

Í niðurstöðu­kafla skýrslu læknis segir að brotaþoli hafi gefið greinar­góða sögu þegar hún leitaði á neyðar­móttöku og gekkst undir skoðun. Hún hafi verið dofin, tætt og aum um allan líkama og í kynfærum.

Hún hafi verið dofin, tætt og aum um allan lík­ama og í kyn­færum.

Meðal gagna í málinu voru skrifleg samskipti Jóns Páls og brotaþola þar sem Jón Páll gekkst afdráttar­laust við brotinu. Fram­burðir vitna fyrir dómi voru taldir auka trúverðug­leika fram­burðar brotaþola en draga úr trúverðug­leika fram­burðar Jóns Páls. Brotaþoli var sagður hafa verið samkvæmur sjálfum sér um megin­atriði málsins frá upphafi og fram­burður því talinn trúverðugur.

Jón Páll Eyj­ólfs­son. Úr hlut­verki hans í Hrauninu.

Skilorðsbinding jafnar refsiþyngingarákvæði við jörðu

Jón Páll var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 194. gr. almennra hegningar­laga nr. 19/1940 með því að hafa án samþykkis haft samræði við brotaþola, með því að beita hana nánar tilgreindu ofbeldi og ólögmætri nauðung svo að hún hlaut áverka af.

Í héraðs­dómi beitti héraðs­dómarinn Barbara Björns­dóttir refsiþyngingar­ákvæðinu (195. gr. almennra hegningar­laga), sem er einungis beitt þegar ofbeldið er „stórfellt og sérlega sársauka­fullt og meiðandi“. Þannig er ákvæðið almennt einungis notað í tilfelli nauðgana sem taldar eru sérlega ofbeldis­fullar og alvarlegar. Þrátt fyrir þetta var sú ákvörðun tekin að skilorðs­binda refsinguna, sem svo var staðfest af Lands­rétti. Með öðrum orðum; Jón Páll Eyjólfsson þarf aldrei að sitja í fangelsi fyrir brot sitt.

Með öðrum orðum; Jón Páll Eyj­ólfs­son þarf aldrei að sitja í fang­elsi fyrir brot sitt.

Í augum hins almenna leikmanns getur það ekki annað en vakið undrun að refsiþyngingar­ákvæði sé beitt í máli sem þessu, en dómurinn svo skilorðs­bundinn að fullu. Þarna má segja að skilorðs­bindingin, refsileysið, jafni refsiþyngingar­ákvæðið við jörðu.

Héraðs­dómari lagði til grund­vallar skilorðs­bindingu dómsins að langt væri liðið frá því brotið var framið og að rannsókn hefði dregist á langinn.

Þegar málið er skoðað í samhengi við þá skýringu kemur ýmislegt í ljós sem dregur úr réttmæti hennar.

Þegar málið var kært var um áratugur liðinn frá brotinu. Kynferðis­brot þar sem þyngsta refsing varðar meira en tíu ára fangelsi fyrnast á fimmtán árum. Rannsókn málsins tók um 14 mánuði, sem er ekki lengra en gengur og gerist í þessum mála­flokki. Auk þess var það ekki ákvörðun brotaþola að kæra málið, heldur hóf lögregla frumkvæðis­rannsókn á málinu, eins og fram kemur í dómnum og réttar­gæslumaður brotaþola hefur bent á. Augljós­lega þótti lögreglu því full ástæða til að rannsaka brotið og færa það svo inn á borð ákæru­valdsins, enda er um að ræða sérlega ofbeldis­fulla árás.

Sænska ákvæðið – ólöglegt að skilorðsbinda fyrir verstu brotin

Þess má geta að víða á öðrum Norður­löndum er hreinlega ólöglegt að skilorðs­binda dóma fyrir brot þar sem lágmarks­refsingin er eitt ár eða meira. Þar er almennt um að ræða morð, manndráp og nauðganir.

Á síðu sem útskýrir refsiréttar­kerfið í Svíþjóð fyrir almenningi segir:

„Vad det gäller straffvärde, som även det är ett stort ämne att utforska, är huvudregeln att påföljden ska bli fängelse om straffvärdet är högre än ett år.“ Á íslensku þýðir þetta að ef lágmarks­refsingin er hærri en eitt ár má ekki dæma til skilorðs­bundinnar refsingar. Í Svíþjóð er lágmarks­refsing fyrir nauðgun tvö ár.

Ákvæðið má finna í 27. kafla sænska laga­bálksins, en Moa Bladini, lektor í lögfræði við Gauta­borgar­háskóla, staðfesti auk þess ofan­greind atriði um sænska réttar­kerfið í samtali við blaðamann. Þumalputta­reglan er að lágmarks­refsingin fyrir téð brot sé eitt ár – en við nauðgun er tveggja ára lágmarks­refsing í Svíþjóð, svo það þýðir að útilokað er að dæma til skilorðs­bundinnar refsingar fyrir nauðgun þar í landi.

Á Íslandi eru engin slík lög í gildi. Blaða­maður kom að máli við nokkra álits­gjafa og spurði þá hvort þeim þætti sambærileg lög ekki eiga erindi við okkur hér á landi. Það kæmi spánskt fyrir sjónir að hægt væri að skilorðs­binda dóma að fullu þar sem sakfellt væri fyrir alvarlegt brot eins og nauðgun – sérstak­lega þegar refsiþyngingar­ákvæði væri beitt í dómnum.

Á Íslandi eru engin slík lög í gildi.

Álits­gjafarnir nálguðust málið út frá ólíkum hliðum en voru allir sammála um að gera þyrfti breytingar á dóms­kerfinu.

Dr. Hildur Fjóla Antons­dóttir réttar­félags­fræðingur sem hefur rannsakað réttar­stöðu brotaþola ítarlega, sagðist telja að það væri vissulega tilefni til þess að hér á landi yrði skoðað ákvæði eins og það sem er í lögum í Svíþjóð. Hún velti fyrir sér skilorðs­bindingu á dómi Jóns Páls Eyjólfs­sonar, sem blaða­maður nefndi sem dæmi við hana.

Dr. Hildur Fjóla Ant­ons­dóttir.

„Um er að ræða alvarlegt brot sem var þar að auki framið með svo grófum hætti að dómurinn nýtir þyngingar­ákvæðið. Það skýtur því skökku við að dómurinn sé á sama tíma skilorðs­bundinn að fullu. Dómurinn ber þannig með sér að ekki sé tekið tillit til hagsmuna brotaþola í málinu, enda lítur íslenskt réttar­kerfi í raun svo á að brota­þolar hafi engra hagsmuna að gæta í refsimálum. Efast má um að þetta viðhorf endur­spegli réttar­vitund almennings. Ég tel fulla ástæðu til að kanna betur hvernig þessu er háttað annars staðar á Norður­löndunum og þá skoða hvort ekki sé rétt að taka fyrir það að hægt sé að skilorðs­binda dóma vegna svona alvarlegra brota,“ sagði Hildur Fjóla í samtali við blaðamann.

Andrés Ingi Jónsson.

„Jú, þetta er algjör­lega eitthvað sem þyrfti að skoða,“ sagði Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, aðspurður um laga­breytingu af þessu tagi. „Það er stórt vandamál hvernig kerfið er á köflum algjör­lega úr takti við réttlætis­vitund almennings – það byggir upp vantraust til kerfisins ef fólki finnst réttlætinu ekki vera fullnægt. Í kynferðis­brotum er þetta sérstak­lega áberandi í hversu fá brot rata inn í réttar­sali, hversu lágt sakfellingar­hlutfallið er, eða þeirri stöðu að Lands­réttur virðist frekar milda dóma í kynferðis­brotamálum en öðrum brota­flokkum. Þegar kemur að alvarlegustu brotunum, brotum þar sem lágmarks­refsing í lögum fer yfir ákveðið langan fangelsisdóm, þá skýtur skökku við að geta skilorðs­bundið tiltölu­lega þunga dóma.“

Helga Vala Helga­dóttir.

Helga Vala Helga­dóttir, lögmaður og þingmaður Samfylkingarinnar, er hlynntari því að gera nauðsynlegar úrbætur á máls­meðferðar­tíma og upphæðum miskabóta til brotaþola í kynferðis­brotamálum. „Ég aðhyllist ekki harða refsistefnu, því það er mín bjarg­fasta skoðun að hver dagur í frelsis­sviptingu sé verulega íþyngjandi,“ sagði Helga Vala í samtali við blaðamann, spurð um erindi sænska ákvæðisins. „Þess vegna er ég mjög hlynnt því að beitt sé ákvæði hegningar­laga til skilorðs­bindingar, sér í lagi þegar um er að ræða ungt afbrota­fólk, því það hlýtur fyrst og fremst að vera markmið okkar að fólk verði fyrir betrun sem ég því miður óttast að sé ekki mikil innan veggja lokaðra fangelsa. Þá verður að skoða aðstæður, þótt að kynferðis­brot séu vissulega meðal alvarlegustu afbrota sem þekkjast, því þær eru jú mjög marg­víslegar.

Mig langar líka að benda á að vegna þess hvernig stjórn­völd hafa búið um hnútana, með allt of fáu starfs­fólki í réttar­vörslu­kerfinu, þá hefur máls­meðferð dregist verulega, sem leitt hefur til þess að stærri hluti refsidóma hefur orðið skilorðs­bundinn að hluta. Þar er dóms­kerfið að bregðast við því hversu íþyngjandi það er að hafa stöðu sakbornings árum saman. Það er hins vegar algjör skortur á því að tekið sé tillit til þess hversu íþyngjandi það er fyrir brotaþola að bíða niður­stöðu máls árum saman, því dómstólar hafa ekki hækkað miska­bætur vegna þessara tafa á máls­meðferð. Eðlilegt væri að miska­bætur yrðu hækkaðar og þá að hluta greiddar af ríkis­sjóði, sem ber ábyrgð á þessum töfum.“

Undirskriftalisti stofnaður vegna máls Jóns Páls

Þegar niður­staða héraðs­dóms í máli Jóns Páls var kunngerð var stofnað til undir­skrifta­lista á Change.org sem um 2.000 manns skrifuðu nafn sitt við. Krafa undir­skrifta­listans var að skilorðs­bundnir nauðgunar­dómar ættu að heyra sögunni til. Í texta við undir­skrifta­listann segir meðal annars:

„Þann 30. nóvember 2020 féll fyrsti nauðgunar­dómurinn í máli sem tengist #metoo á Íslandi. Umfjöllun fjölmiðla bendir til þess að nauðgunin hafi verið hrottaleg og voru lesendur varaðir við grófum lýsingum. Sakborningurinn hlaut tveggja og hálfs árs dóm sem var skilorðs­bundinn að fullu.

Það hlýtur að vera á skjön við réttlætis­kennd almennings að fólk geti framið hrottalegar nauðganir og að þeir örfáu gerendur sem eru sakfelldir fyrir dómstólum þurfi ekki að verja einni mínútu bak við lás og slá.

Hér er enn einn dómurinn sem er algjör­lega á skjön við alvarleika brotsins. Réttar­kerfið er þrauta­ganga fyrir þolendur kynferðis­ofbeldis, og í þeim fáu tilfellum sem gerendur hljóta dóm er hann í hrópandi ósamræmi við refsiramma laganna og réttlætis­kennd samfélagsins. Lögin virðast vernda frekar þá sem brjóta af sér en þá sem er brotið er á.“

Mótsagnir og jafnræði

Mótsögnin sem fólgin er í því að refsiþyngingar­ákvæði sé beitt í dómi á sama tíma og hann er skilorðs­bundinn að fullu, líkt og gert var í Héraðs­dómi Reykja­víkur, er ekki eina mótsögnin í máli Jóns Páls Eyjólfs­sonar. Aðra slíka má finna í dómi Lands­réttar, þar sem refsiþyngingar­ákvæðið er afnumið – en dómurinn samt sem áður þyngdur í tíma.

Dómurinn stingur auk þess í stúf við nýlega dóma í kynferðis­brotamálum.

Þór­hallur Guð­munds­son.

Má þar nefna dóm sem féll í Hæstarétti í febrúar árið 2021 yfir Þórhalli Guðmunds­syni, sem er betur þekktur sem Þórhallur miðill. Þórhallur hlaut 18 mánaða fangelsisdóm fyrir að hafa tíu árum áður brotið kynferðis­lega á ungum karlmanni sem kom til hans í heilunar­meðferð. Hæstiréttur þyngdi þar ekki dóm Lands­réttar, meðal annars með þeim rökum að langt væri um liðið frá því brotið var framið. Þrátt fyrir þau rök var dómur Þórhalls þó ekki skilorðs­bundinn, heldur hljóðaði hann upp á fangelsis­vist, ólíkt dómi Jóns Páls Eyjólfs­sonar. Í báðum tilvikum var sambærilega langur tími liðinn frá brotinu.

Í báðum til­vikum var sam­bæri­lega langur tími lið­inn frá brot­inu.

Annað umhugsunar­vert eftir þann 3. desember síðastliðinn í Lands­rétti er að eini nauðgarinn sem var nafn­greindur í dómi þennan dag, reyndist vera pólskur. Aðrir nutu nafn­leyndar, þar á meðal Jón Páll Eyjólfsson.

Ef Jón Páll hefði verið maki, fyrr­verandi maki, faðir eða bróðir brotaþola hefði verið skiljanlegt að hann yrði kallaður X í dómnum. Brotaþoli hans er hins vegar alls ótengdur honum og það vekur spurningar um þetta misræmi hjá dómstólnum.

Ef tveir menn sem fremja sams konar brot fá svo ólíka meðhöndlun frá sama réttar­kerfi hlýtur það að brjóta gegn jafnræðis­reglunni, en í henni segir að allt fólk sé jafnt fyrir lögum og eigi að hljóta sömu meðferð.

Lækkaðar miskabætur og engin ríkistrygging

Að lokum er komið að þeim miska­bótum sem sakborningur var dæmdur til að greiða brotaþola. Héraðs­dómur dæmdi hann til að greiða henni 2,5 milljónir króna ásamt vöxtum í miska­bætur en í Lands­rétti var upphæðin lækkuð niður í 2 milljónir króna auk vaxta. Brotaþoli hafði farið fram á að sakborningur greiddi henni 6 milljónir króna, ásamt vöxtum, í miska­bætur.

Nú þegar ljóst er að sá sakfelldi mun ekki sitja af sér neina fangavist geta bæturnar varla talist annað en smánarlegar. Sérstak­lega í ljósi þess að samkvæmt íslenskum lögum á þessi tiltekni brotaþoli ekki rétt á því að ríkis­sjóður tryggi nokkurn hluta bótanna til hennar, ef svo vildi til að sakborningur gæti ekki greitt þær. Þetta er vegna þess að brotið var framið erlendis og ramminn í kringum ríkis­tryggingu á bótum til brotaþola er afar þröngur. Í raun er einungis afmarkaður hópur sem að endingu á rétt á tryggingunni frá ríkinu.

Í raun er ein­ungis afmark­aður hópur sem að end­ingu á rétt á trygg­ing­unni frá rík­inu.

Fyrir þá brotaþola sem falla ekki í þann afmarkaða hóp er staðan sú, að ef sakborningur greiðir bæturnar ekki fljótt og vel, þarf brotaþoli sjálfur að rukka hann um þær, með ærnum innheimtu­kostnaði. Það þarf því ekki að koma á óvart hversu mikið af bótum í kynferðis­brotamálum hefur aldrei fengist greitt.

Lands­réttur.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá