Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Skilorðsbinding nauðgunardóma gagnrýnd: Sakborningar í grófum brotum ganga lausir

Á Íslandi er farið mýkri höndum um gerendur í kynferðis­brotamálum en víða í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Þeir sem sakfelldir eru fyrir slík brot þurfa jafnvel ekki að sitja af sér dóma sína, heldur er skilorðs­bindingu oft beitt og sakborningar ganga þar með lausir. Í Svíþjóð er til að mynda ólöglegt að skilorðs­binda dóma þar sem lágmarks­refsingin er hærri en eitt ár. Þar er lágmarks­refsing fyrir nauðgun tvö ár.

Auk þessa er máls­meðferðar­tími á Íslandi iðulega langur og njóta gerendur oft góðs af því við dóms­uppkvaðningu. Á sama tíma hefur brotaþoli málið hangandi yfir sér með meðfylgjandi angist og óvissu. Ofan á þetta kemur að brota­þolar þurfa síðan jafnvel sjálfir að innheimta miska­bætur, með tilheyrandi kostnaði og kljást þannig áfram við þann sem á þeim braut.

Nýlegur dómur í grófu nauðgunar­máli var skilorðs­bundinn að fullu, bæði fyrir Héraðs­dómi Reykja­víkur og í Lands­rétti. Var þetta gert jafnvel þótt sérstöku refsiþyngingar­ákvæði hafi verið beitt í héraðs­dómi, sem einungis er gert í tilfellum stór­felldra og sérlega alvarlegra ofbeldis­brota.

Bætur til brotaþola voru lækkaðar á milli dómstiga og brotaþoli á ekki rétt á tryggingu miska­bótanna úr ríkis­sjóði, þar sem brotið var framið á erlendri grundu.

Full skilorðsbinding þrátt fyrir þyngingu dóms

Um er að ræða mál þar sem Jón Páll Eyjólfsson, fyrr­verandi leik­hússtjóri hjá Leik­félagi Akureyrar, var sakfelldur í Lands­rétti þann 3. desember fyrir gróft kynferðis­brot. Áður hafði Jón Páll verið dæmdur í tveggja og hálfs árs skilorðs­bundið fangelsi í héraðs­dómi, en áfrýjað dómnum til Lands­réttar. Lands­réttur þyngdi dóminn í þriggja ára skilorðs­bundið fangelsi en lækkaði miska­bætur til brotaþola úr 2,5 milljónum króna niður í 2 milljónir króna.

Það vakti furðu margra að svo gróft ofbeldis­brot skyldi enda með dómi sem er að fullu skilorðs­bundinn. Jón Páll þarf því aldrei að sitja af sér refsivist.

Því fer fjarri að þetta sé eina dæmið um mál þar sem sakfellt er fyrir gróft kynferðis­brot og dómurinn skilorðs­bundinn að fullu.

Þessa grein má lesa í heild sinni í nýjasta tímariti Mannlífs. Hér má lesa vefútgáfu blaðsins en einnig má nálgast ókeypis eintak í Hagkaup, Bónus og á N1. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá