Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Ásdís þurfti að endurforrita sig: „Ég var sjálf með miklar ranghugmyndir“

Ásdís Olsen
Ásdís Olsen

Nýjasti gestur bræðranna Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarps­þættinum Þvotta­húsið er engin önnur en lífskúnstnerinn Ásdís Olsen. Hér er brot úr þessu yndislega opinskáa og flotta viðtali:

Wiium bræður spurðu Ásdísi út í femínisma og Metoo byltinguna og hvað henni fyndist um þessi mál. Ásdís sagðist vera femínisti og þegar Gunnar spurði hana hvað það þýddi að vera feministi svaraði hún: „Það er að vera meðvituð um það að það er misrétti og það þarf að vinna í því til að breyta því.“

Ásdís sagðist hafa þurft vissa endur­forritun á að halda síðustu ár. Hún hafi fyrir nokkru tekið viðtöl við kvenkyns þolendur í ofbeldis­málum. Þar sagðist hún hafa áttað sig á því hve eitruð viðhorf hennar í þessum efnum hefðu verið. Hún hafi staðið sjálfa sig að því að hafa druslu­stimplað konur sem stigið höfðu fram, hægri, vinstri. „Ég var jafnvel að standa mig að því að ég var sjálf með miklar rang­hugmyndir og að ég var jafnvel með svona drusluskammarstimpila á þeim sem höfðu lent í einhverju.“

Sagði hún að þessi viðhorf sem hún hafi, þessi forritun hafi verið afleiðing þess að hafa alist upp í umhverfi og samfélagsstrúktur sem eflaust margir myndu skilgreina sem feðra­veldi. Hún hafi, í gegnum þessi viðtöl og með því að þyggja kennslu í samskiptum sínum við sínar fjórar dætur, tekist að endur­forrita sig algjör­lega og sé alveg komin á hinn pólinn hvað þetta varðar. „Ég er alltaf að endur­forrita mig, mér finnst það svolítið vera verkefnið okkar sem eru komin yfir miðjan aldur og ólumst upp við mjög mikið af skekkjum í feðra­veldi sem að var ekki endilega gott og sann­gjarnt,“ sagði Ásdís við þá Wiium bræður.

Hægt er að hlusta á allt viðtalið hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt