Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Kennari dó eftir skot úr rafbyssu: „Frændi minn bað um hjálp og hann fékk hana ekki“

Frændi Patrisse Cullors, meðstofnanda Black Lives Matters-hreyfingarinnar í Banda­ríkjunum lést aðeins klukku­stundum eftir að hafa fengið stuð úr rafbyssu og hand­tekinn af lögreglunni í Los Angeles.

Keenan Anderson hét frændinn en hann var aðeins 31 árs að aldri og var faðir og kennari en hann lést á spítala í Santa Monica. BBC sagði frá málinu.

Lögreglan í Los Angeles hefur undir höndum myndskeið lögreglu­manns sem sýnir atvikið sem gerðist 3. janúar síðastliðinn. Í mynd­skeiðinu sést Anderson grátbiðja um hjálpa á meðan lögreglu­mennirnir halda honum niðri. Lögreglu­maðurinn sem stuðaði hann fékk tilkynningu um umferðar­óhapp í Venice-hverfinu í Los Angeles um klukkan 15:00.

Lögreglu­stjórinn Michel Moore sagði á blaðamanna­fundi á miðvikudaginn að Anderson hefði framið lögbröt er hann reyndi að stinga af eftir umferðar­árekstur. Sagði hann að maðurinn hefði gert tilraun til þess að flýja af vettvangi með því að „reyna að komast í bifreið annarrar manneskju án leyfis.“

Sést Anderson í miklu uppnámi í mynd­skeiðinu, er lögreglan mætir á vettvang en hann sést þar segja lögreglu­manni: „einhver er að reyna að drepa mig,“ þó ekki hafi verið neina ógn að sjá í mynd­skeiðinu.

Í byrjun settist Anderson niður samkvæmt fyrir­skipun lögreglunnar en þegar fleiri lögreglu­menn mæta á vettvangt stóð hann upp og hljóp út á götu og óhlýðnaðist skipunum um að stoppa. Er lögreglan náði honum og gerðu tilraun til að handsama hann. Í fyrstu hlýddi hann skipunum lögreglunnar en byrjaði svo að öskra „Gerið það, hjálp. Þeir eru að reyna að George Floyd-a mig!“ og átti þá við það er lögreglu­maður myrti hinn þeldökka George Floyd árið 2020 í Minneapolis.

Rafbyssan var notuð á Anderson í um það bil 30 sekúndur eftir að lögreglu­maðurinn sem á henni hélt hafði ítrekað sagt honum að hætta að veita andstöðu við hand­tökuna „eða ég stuða þig.“ Aðrir lögreglu­menn héldu honum niðri. Hann var svo stuðaður í fimm sekúndur í viðbót.

Sjúkra­bíll kom á vettvang um það bil fimm mínútum eftir að rafbyssan var notuð á honum og var Anderson fluttur á sjúkrahús í grenndinni. Lést hann um fjórum og hálfum klukku­tíma síðar eftir að hafa farið í hjarta­stopp. Samkvæmt lyfja­prófi lögreglunnar í Los Angeles, sem gert var á Anderson kom í ljóst að í blóði hans fannst kannabis og kókaín. Skrif­stofa dánar­dómsstjóra Los Angeles sýslu mun einnig gera slíkt próf.

Mynd­skeiðið kemur sér illa fyrir lögregluna í Los Angeles því á rétt undir viku hafa þrír svartir eða brúnir menn látið lífið eftir samskipti við lögregluna. Hinir tveir eru þeir Takar Smith, 45 ára og Oscar Sanchez, 35 ára en báðir voru þeir skotnir til bana af lögreglunni í byrjun janúar. Borgar­stjóri L.A., Karen Bass kallaði atvikin „afar truflandi“. Lögreglan segist vera að rannsaka öll þrjú andlátin.

Anderson bjó í Washington DC en var í heimsókn í Los Angeles. Dauði hans hefur endur­vakið kröfur mótmælenda um umbætur hjá lögreglunni, en sumir þeirra telja að lögreglu­menn eigi ekki að fá að bera skotvopn er þeir sinna umferðar­slysum.

Patrisse Cullors, meðstofnandi Black Lives Matters-hreyfingarinnar og frænka Anderson sagði í viðtali við Guardian: „Frændi minn bað um hjálp og hann fékk hana ekki. Frændi minn óttaðist um líf sitt. Síðustu tíu árin fylgdist hann með samtökum sem börðust gegn drápum á svörtu fólki. Hann vissi hvað var í húfi og var að reyna að vernda sjálfan sig. Enginn vildi vernda hann.“ Hefur Cullors ásamt fleirum, krafist þess að lögreglu­stjórinn segi af sér.

Lögreglu­stjórinn segist búast við að mynd­bandið komist fyrir almennings­sjónir en það gæti tekið allt að 45 daga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs