Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Kristinn Hrafnsson sammála Ingibjörgu: „Realpólitíkusar hugsa ekkert um tilfinningasemi“

Kristinn Hrafnsson
Kristinn Hrafns­son

Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks horfði á Silfur Egils á Rúv í gærkvöldi en þar var Ingibjörg Sólrún Gísla­dóttir meðal viðmælanda. Tjáði Kristinn sig á Facebook og sagðist sammála Ingibjörgu Sólrúnu varðandi bestu lausnina í stríðinu í Úkraínu.

„Mér þótti áhugavert að heyra Ingibjörgu Sólrúnu nefna í Silfrinu hina augljósu lausn til að enda stríðið í Úkraínu og stöðva blóðbaðið sem er nú þegar orðið alltof mikið og gæti orðið miklu hryllilegra. Leyfa Rússunum í Krím sem kusu að tilheyra Rússlandi að tilheyra Rússlandi, leyfum Rússunum í Donetsk og Luhansk að vera sjálf­stjórnar­svæði í friði og fá Úkraínu­stjórn til að lýsa því yfir að landið verði utan hernaðar­bandalaga.“

Því næst kemur Kristinn með hugtakið „realpólitíkus“ sem hann segir Ingibjörgu vera.

„Nú nú, þarna gæti einhver sagt að Pútín hefði þar með náð til Ingibjargar en hún er svo sem ekki að segja annað en aðrir realpólitíkusar hafa sagt árum saman m.a. Henry Kissinger í grein árið 2014. Realpólitíkusar hugsa ekkert um tilfinningasemi og er slétt sama um hin helgu gildi sem voru til umræðu í Silfrinu (lýðræði, mann­réttindi, frelsi) enda nokkuð ljóst að Kissinger hefur aldrei látið slíka smámuni þvælast fyrir sér.

En mannúðar­sjónarmið geta stundum rekið mann í raunsæið og þetta er líklegast rétt mat hjá Ingibjörgu. Það eru ekki margir aðrir valkostir aðrir en að sjá blóðið renna í stríðum straumum og flótta­menn flæmast úr heima­landi sínu í milljóna­tali.“

Fyrir þá sem eru ósammála eftirgjöf til Rússa, bendir Kristinn á að bestu friðar­samningarnir séu þeir sem skilaj alla eftir óánægða.

„Þarna gætu einhverjir sagt að Pútín fengi allt of mikið útúr þessu og eftir­gjöfin sé of stór. Bestu friðar­samningarnir eru þeir sem skilja alla eftir óánægða. Krímskagi er hvort eð er farinn fyrir löngu. Hæglega gæti orðið til friðar­auka til langframa fyrir Úkraínu­menn að losna við rússnesku­mælandi sovétrómantíkusana handan við girðingu og staða Úkraínu utan NATO er ekki flóknari en að gera þá að ópinberum leyni­félögum í banda­laginu, eins og Svíar og Finnar hafa verið árum saman. Það mætti selja þeim vopn í stórum stíl til varnar, m.a. gætu Svíar selt þeim Gripen herþoturnar sem þeir losna hvort eð er illa við nema greiða með þeim mútur.“

Þá bendir ritstjórinn skeleggi á að hreyfingar á landamæra­línum sé engin nýlenda í nærsögunni og tekur til nokkur dæmi.

„Hreyfing á landamæra­línum er ekkert sérlega mikil vanhelgun og hefur gerst ítrekað í nærsögunni. Það þótti ekki tiltökumál að sneiða af Serbíu, ekki var sérlega mikið uppistand þó Tyrkir hertækju Afrín hérað í Sýrlandi, drápu þar fjölda manna – þar á meðal Hauk Hilmarsson, flæmdu aðra íbúa af heimilum sínum og fylltu þau með liðs­mönnum hreyfinga sem eru næstibær við ISIS. Og af því helmingur íbúa nyrst á Írlandi vildi tilheyra Bretlandi varð til sneið­ingur af eyjunni grænu sem hefur viðhaldist, með tals­verðum ófriði að vísu, býsna lengi.“

Að lokum talar Kristinn um nauðsyn þess að ræða um þá hluti sem við viljum vernda í breyttum heimi.„Í Silfrinu mælti Brynja Huld viturlega um að það yrði að endur­skoða öryggis­stefnu landsins og Þorgerður Katrín hefur svo sem rétt fyrir sér líka að öryggis- og varnarmál eru ekki lengur skilgreind eingöngu útfrá dátum, sprengjum, stál­fuglum og víga­flotum. Auðvitað er löngu tímabært að ræða stöðu okkar í breyttum heimi. Þó fyrr hefði verið. Það væri þá einnig gustuk að ræða þá samhliða opinskátt þessi heilögu gildi sem eiga að vera grund­völlur þess sem við viljum verja, það er lýðræðið, mann­réttindin og frelsið.Það er nú heldur betur eitt og annað þar sem hefur ekki verið „á dagskrá“ en þyrfti nauðsyn­lega að ræða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt