Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Starfsmaður frelsissviptur í klukkustund og beittur hrottalegu ofbeldi: „Eitt alvarlegasta atvikið“

Vinakot. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Vinakot. Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: iartpro

Í síðustu viku átti sér stað alvarleg líkams­árás á starfs­mann í einu af búsetu­úrræðum Vinakots. Samkvæmt heimildum Mannlífs var starfs­maðurinn frelsis­sviptur í um það bil klukku­stund og beittur hrotta­legu ofbeldi. Reif skjólstæðingurinn meðal annars í hár starfs­mannsins og barði höfði viðkomandi í glugga­syllu í á annan tug skipta. Starfs­maðurinn gat lítið varið sig, en mikill munur er á líkams­burðum milli hans og skjólstæðingsins. Málið er til rann­sóknar hjá lögreglu.

Starfsmaðurinn var einn vegna veikinda

Vinakot er einka­rekið meðferðar­úrræði fyrir börn með alls kyns vandamál. Þar er veitt fjöl­breytt þjónusta við börn með fjölþættan vanda, eins og þroska- og geðraskanir. Árásin átti sér stað í einu af búsetu­úrræðunum en Vinakot starf­rækir þrjú heimili þar sem pláss er fyrir sex ungmenni. Félagið er í eigu framkvæmda­stjórans, Aðal­heiðar Braga­dóttur, en sveitar­félögin kaupa þjónustu af fyrir­tækinu.

Talsmaður Vinakots stað­festir að ráðist hafi verið alvarlega á starfs­mann í vinnu en segist að öðru leyti bundin trúnaði og ekki getað tjáð sig um einstaka mál.

Tveir starfs­menn eru alla jafna með skjólstæðingnum en vegna veikinda  var starfs­maðurinn sem ráðist var á einn þennan dag. Skjólstæðingurinn hefur áður sýnt af sér ógnandi hegðun en aldrei í líkingu við þessa árás.

Eru heimildar­menn DV á þeirri skoðun að sveitar­félagið sem fer með málefni einstaklingsins hafi einfald­lega leyst vandræði sín varðandi vistun neð því að koma viðkomandi að hjá Vinakoti.

Samkvæmt heimildum DV hefur skjólstæðingurinn sem um ræðir áður gerst sekur um líkams­árásir og ógnvekjandi hegðun gagnvart starfs­mönnunum sem komið hafa að umönnun viðkomandi. Talsverð reiði ríkir hjá þeim sem tengjast málinu um að viðkomandi hafi alls ekki átt heima í slíku úrræði sem Vinakot er heldur mun frekar í einhverskonar öryggis­vistun sem myndi hæfa sakhæfu og andlega veiku fólki sem talið er hættulegt sjálfu sér og öðrum.

Málaflokkurinn í fullkomnum ólestri

Árásin er enn eitt alvarlega atvikið sem kemur upp varðandi einstaklinga sem þurfa á öryggis­vistun að halda. Mála­flokkurinn hefur verið í full­komnum ólestri undan­farin ár en tvær öryggis­vistanir hafa verið starfandi undan­farin ár.

Talsmaður Vinakots segir að fæst sveitar­félög hafi aftur á móti burði til að koma sér upp öryggis­vistun.

Nú er áformað að koma á fót ör­yggis­vist­un fyr­ir ósakhæfa ein­stak­linga í Reykja­nesbæ sem mun þjónusta allt landið. Stefnt er að því að úrræðið verði tekið í notkun á næsta ári en eins og áður hafa íbúar mótmælt fyrir­ætlununum harðlega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá