Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti sósíalista í Reykjavík, segir mikilvægt að kerfið leggi áherslu á mannúð og skilning. Þegar kemur að áherslumálum Sósíalistaflokksins segir hún að skólamálin standi sér næst.
Hún er með BS-próf í sálfræði og stefnir á að fara í framhaldsnám í skólasálfræði síðar meir en hefur frestað þeim áformum í bili í þágu stjórnmálanna. Hún hefur bæði unnið á leikskóla og verið stuðningsfulltrúi í grunnskóla auk þess sem hún hefur sinnt stuðningskennslu í framhaldsskóla.
Silja Sóley býr ásamt kærasta sínum heima hjá ömmu hans og afa og forðast þau leigumarkaðinn til að festast ekki þar. Sósíalistaflokkurinn leggur áherslu á að stofnað verði Byggingafélag Reykjavíkur og að framboð af ódýrum íbúðum verði stóraukið.
Silja Sóley er alin upp í regnbogafjölskyldu. Hún er dóttir Birgis Þórarinssonar, Bigga veiru í GusGus, sem hefur vakið athygli fyrir kvenlegan klæðaburð. Hún minnist þess að hafa stundum fundist það erfitt …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.

















Athugasemdir