Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Símabann nemenda við Borgarhólsskóla

Í dag varð Borgar­hólsskóli á Húsavík símalaus skóli. Tilkynnt var um þetta á vef skólans. „Breyttir tímar kalla á breytta nálgun og nú hefur verið tekin sú ákvörðun að leggja símum nemenda í skólanum til hliðar. Frá og með deginum í dag er Borgar­hólsskóli símalaus skóli. Nemendum í fyrsta til og með tíunda bekk verður óheimilt að nota farsíma á skólatíma. Við viljum búa til þá menningu að hann sé ekki uppi við. Verkefnið mun taka tíma en það er mikilvægt að muna að síminn er besti vinur sumra nemenda og margir eru háðir notkun hans,“ segir í tilkynningunni, sem sjá má hér.

Ástæðan fyrir símabanni nemenda á skólatóma er sögð vera þá að síminn bæti litlu við hvað varðar nám nemenda og sé því óþarfur.

„Viðfangs­efnið er símalaus skóli í samstarfi við nemendur. Um leið þurfum við að styðja við nemendur félags­lega, kenna þeim tilveruna án símans og vera þeim fyrirmynd. Markmiðið er að auka samskipti nemenda án síma, stuðla að streitu­minna umhverfi og efla einbeitingu. Ef foreldrar þurfa að ná sambandi við börnin sín á skólatíma á að gera það í gegnum skrif­stofu skólans. Dagurinn í dag gekk reglulega vel hjá nemendum,“ segir í tilkynningunni.

Þá er greint frá því að ef síminn truflar nemanda á skólatíma verði honum boðið val um að afhenda starfs­manni símann eða honum sé fylgt til ritara þar sem nemandinn afhendir tækið til geymslu. Kjósi nemandi að hafna þessu er hringt í foreldri sem sækir tækið í skólann.

„Við óskum eftir að foreldrar ræði þessa breytingu og fram­haldið við nemendur enda samvinnu­verkefni milli heimilis og skóla. Það er okkar trú að þetta sé heilla­skref fyrir nemendur sjálfa,“ segir í niðurlagi tilkynningarinnar á vef Borgar­hólsskóla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Annars staðar má víða búast við skúrum eða slydduéljum

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ