Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Friðrik Ómar leysir Loga af fram yfir miðjan mars: „Svo stefni ég að því að fara bara út í sól“

Auglýsing fyrir Síðdegisþáttinn á K100. Sigurður Gunnarsson og Friðrik Ómar Hjörleifsson.
Aug­lýs­ing fyrir Síð­deg­is­þátt­inn á K100. Sigurður Gunn­ars­son og Friðrik Ómar Hjör­leifs­son.

„Ég er bara fram yfir miðjan mars, eitthvað svoleiðis,“ segir Friðrik Ómar Hjörleifsson, tónlistar­maður og viðburða­haldari, um veru sína sem annar þátta­stjórnenda í Síðdegis­þættinum á K100. Friðrik Ómar hefur leyst Loga Bergmann Eiðsson af í þættinum undan­farið og staðið þar vaktina ásamt Sigurði Gunnars­syni.

Logi Bergmann fór í leyfi eftir að hafa verið nafn­greindur í tengslum við frásögn Vítalíu Lazarevu, sem skók samfélagið í byrjun árs.

„Bara ekki hugmynd, það er ekki búið að semja um það,“ svarar Friðrik Ómar aðspurður hvort frágengið sé að hann kveðji þáttinn um miðjan marsmánuð. Hann segist ekki vera tekinn við af Loga Bergmanni í þættinum.

Friðrik Ómar segir að föstu­dagurinn 18. mars sé sá dagur sem nefndur hafi verið um lok veru hans í þættinum. „Svo stefni ég allavega að því að fara bara út í sól eða eitthvað. Eins og staðan er.“

„Þótt það sé nú sól í borginni í dag,“ segir Friðrik Ómar þegar blaða­maður segist vel skilja áform um sólarlanda­ferðir. Þegar blaða­maður segir það ekki munu vara lengi spyr Friðrik Ómar hvort það sé slæm spá í kortunum. Blaða­maður segist einfald­lega gera ráð fyrir því.

„Þú ert svona svartsýn!“ segir Friðrik Ómar og hlær.

Hann áréttar að hann hafi ekki heyrt annað en dagsetninguna 18. mars, um veru sína í Síðdegis­þættinum, eins og sakir standa. „Þetta er allavega það nýjasta og svo bara verður staðan tekin þá, býst ég við.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá