Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Fuglaflensa staðfest á Íslandi: Hænsni aflífuð á bóndabæ á Skeiðum

Fregnir hafa borist af fugla­flensu á Íslandi síðustu daga en nú hafa tilfelli verið formlega staðfest í villtum fuglum hérlendis. Þó virðist ekki einungis um villta fugla að ræða, þótt tilfelli í öðrum fuglum séu ekki staðfest, en hænur á bóndabæ á Skeiðum sýndu einkenni sjúk­dómsins og voru aflífaðar í gær. Matvæla­stofnun hefur sent frá sér tilkynningu um málið.

Samkvæmt Matvæla­stofnun hafa tilfelli fuglaflensu­smita verið staðfest í þremur villtum fuglum á landinu undan­farna daga. Þar er um að ræða heiðagæs við Horna­fjörð, hrafn á Skeiðum í Árnes­sýslu og súlu rétt við Stranda­kirkju við Suðurstrandaveg. Hænsin sem sýndu einkenni sjúk­dómsins voru haldin á bænum þar sem hrafninn hafði áður fundist. Þegar hafa verið tekin sýni úr hænsnunum og þau send til greiningar.

„Fuglaflensu­veiran sem staðfest hefur verið í villtum fuglum er af gerðinni H5. Mein­virkni veirunnar er ekki þekkt. Beðið er niður­staðna frekari greiningar frá erlendum rannsóknar­stofum,“ segir í tilkynningu Matvæla­stofnunar.

Á vef Matvæla­stofnunar segir ennfremur að viðbragðs­áætlun stofnunarinnar um viðbrögð og varnir gegn smitandi sjúkdómum í fuglum hafi verið virkjuð.

Stofnunin bendir öllum alifugla­eigendum á að einangra fugla sína frá villtum fuglum með því að halda þá undir þaki og girða af svæði þeirra.

Tekið er fram að þau afbrigði fugla­flensunnar sem mest hefur verið um í nágranna­löndum okkar undan­farið hafi ekki valdið sýkingum í fólki. Auk þess er ekki talin hætta á því að fólk smitist af veirunni með neyslu eggja eða kjöts af alifuglum.

Þar sem aldrei er unnt að útiloka smit með fullri vissu er fólki þó bent á að gæta sóttvarna við handfjötlun á veikum og dauðum fuglum.

„Matvæla­stofnun hvetur almenning til að tilkynna um dauða villta fugla sem finnast á víðavangi ef ekki er augljóst að þeir hafi drepist af slysförum.  Best er að tilkynna í gegnum ábendingar­kerfi á heimasíðu Matvæla­stofnunar (mast.is).  Þörf á sýnatöku verður metin af stofnuninni,“ segir í tilkynningu Matvæla­stofnunar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá