Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Hjartamagnýl dregur úr dauðsföllum af völdum alvarlegrar lungnabólgu

Greinin í Journal of Internal Medicine byggist á rannsókn Kristjáns Godsk Rögnvaldssonar sem er doktorsnemi við Læknadeild HÍ og læknir á Landspítala. Magnús Gottfreðsson er leiðbeinandi hans í verkefninu.
Greinin í Journal of Internal Medicine bygg­ist á rann­sókn Krist­jáns Godsk Rögn­valds­sonar sem er dokt­or­snemi við Lækna­deild HÍ og læknir á Land­spít­ala. Magnús Gott­freðs­son er leið­bein­andi hans í verk­efn­inu.

„Gamla lyfið, acetýlsalicýlsýra, sem er betur þekkt sem aspirín, magnýl, eða hjarta­magnýl, virðist hafa sterk og tölfræði­lega marktæk verndandi áhrif gegn dauðsföllum meðal þeirra sem greinast með alvarlega lungna­bólgu af völdum algengustu lungnabólgubakteríunnnar, sem kölluð er Streptococcus pneumoniae á fagmáli.“

Þetta segir Magnús Gottfreðsson, prófessor í smit­sjúkdómum við Háskóla Íslands og yfir­læknir á Land­spítala, um niður­stöður í nýrri rannsókn sem unnin er af vísinda­fólki Háskóla Íslands og Land­spítala. Í vikunni birtist grein í hinu virta tímariti Journal of Internal Medicine þar sem þessar niður­stöður eru dregnar fram en greinin byggist á rannsókn Kristjáns Godsk Rögnvalds­sonar sem doktorsnemi við Lækna­deild HÍ og læknir á Land­spítala. Magnús Gottfreðsson er leið­beinandi hans í verk­efninu.

„Þessi verndandi áhrif komu strax fram og voru raunar sterkust í bráðafasa sýkingarinnar, en þá er einmitt verulega aukin hætta á ýmiss konar fylgi­kvillum eins og hjarta­bilun og kransæða­stíflu og dánar­tíðnin er há. En áhrifin entust í eitt ár og líklega lengur sem er afar merkilegt. Þetta á við um þá sem eru að taka lyfið þegar þeir veikjast eftir að leiðrétt hefur verið fyrir hugsanlegum bjögum,“ segir Magnús.

Marktækt betri lifun

„Lifun þeirra sjúklinga sem voru á hjarta­magnýli við komu var borin saman við lifun þeirra sem voru ekki á lyfinu við innlögn. Leiðrétt var fyrir mun milli hópanna með líkinda­skori og lifun hópanna borin saman með tölfræðilegri aðferð sem kölluð er cox-aðhvarfs­greining. Þeir sjúklingar sem voru á hjarta­magnýli reyndust hafa marktækt betri lifun 90 dögum og einu ári eftir sýkinguna miðað við ef þeir hefðu ekki verið á lyfinu. Athygli vekur að mesti munurinn kom fram á allra fyrstu dögunum eftir sýkinguna,“ segir Kristján.

Hann segir jafnframt að þessi rannsókn gefi vísbendingar um verndandi áhrif hjarta­magnýls meðal þeirra sem stríða við alvarlega lungna­sýkingu af völdum lungnabólgu­baktería.

„Mikilvægt er þó að slá þann varnagla að hér var ekki um slembaða meðferðar­tilraun að ræða og hugsanlega er til staðar einhver undir­liggjandi þáttur sem skýrir þessi áhrif sem var ekki leiðrétt fyrir. Frekari rann­sóknir þarf því til að staðfesta eða hrekja niður­stöðurnar.“

Rannsóknarúrtakið náði til heillar þjóðar

Þeir Magnús og Kristján segja það sérstakt við rann­sóknina að hérlendis hafi verið hægt skoða mjög stóran hóp með alvarlega sýkingu af völdum einnar og sömu bakteríunnar og fylgja hópnum eftir í langan tíma. Þeir segja að rannsóknar­úrtakið hafi náð til heillar þjóðar yfir 45 ára tímabil og lifun hafi verið könnuð allt að einu ári eftir lungna­bólguna. Í heildina voru í rann­sókninni 815 tilvik sýkingarinnar.

„Með því að fara yfir allar sjúkra­skrár sem tiltækar voru á landinu var því komið í veg fyrir að sérstakir undir­hópar sjúklinga væru skoðaðir en aðrir skildir eftir, sem er algengt í erlendum rann­sóknum, og þá er erfiðara að yfirfæra niður­stöðurnar á stærri hópa,“ segir Magnús og bætir því við að einnig teljist merkilegt að aspirín sé selt án lyfseðils og margir taki það án samráðs við lækni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá