Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Einn vinsælasti hlaðvarpsþátturinn í pásu: „Við vildum hvíla okkur áður en það yrði að vandamáli“

Baldur (til vinstri) og Flosi (til hægri)
Baldur (til vinstri) og Flosi (til hægri) Mynd: Aðsend

Einn allra vinsælasti hlaðvarps­þáttur landsins er kominn í pásu. Í gær birti Flosi Þorgeirsson, gítar­leikari Ham og annar stjórn­enda Drauga fortíðar, yfir­lýsingu frá þeim Baldri Ragnars­syni, tónlistar­mann og hinum helmingnum í þættinum, í umræðu­hópi á Facebook.

Þar tilkynntu þeir félagar að Draugar fortíðar, sem er einn allra vinsælasti hlaðvarps­þáttur á Íslandi, færi nú í pásu um óákveðinn tíma. Hér er yfir­lýsingin í fullri lengd:

„Heil og sæl ágæta fólk.Nú er þriðjudagur og vanalega væri ég að skrifa hér til að tilkynna að von væri á nýjum þætti skömmu eftir miðnætti.Nú kveður við annan tón því ég er að tilkynna ykkur að það kemur

EKKI 

þáttur í þessarri viku og reyndar ekki í bráð. Við þurfum að taka okkur pásu. Ekki halda að við séum orðnir leiðir á þessu. Þvert á móti. Okkur finnst þetta enn jafn gaman og skemmtilegt. Hins vegar eru Draugarnir skemmtiefni, hliðar­verkefni en ekki aðal­vinnan okkar. Maður þarf að átta sig á hvenær nauðsynlegt er að gera hlé.

Stuðnings­fólk okkar á Patreon sýpur nú eflaust hveljur en þið þurfið ekki að örvænta. Við höldum áfram að gera þætti fyrir ykkur. Næsti þáttur kemur á morgun en líklega seinni­part dags.

Ég vildi að ég gæti sagt hvenær við snúum aftur en við bara hreinlega vitum það ekki sjálfir. Best að lofa ekki upp í ermina á sér.

Við höfum staðið vaktina í hverri viku síðan í maí 2020 svo eflaust geta mörg ykkar nýtt tímann til að hlusta á þætti sem eru á biðlistanum.Takk innilega fyrir áhugann, hrósið og ábendingar sem við höfum fengið. Þessi hópur er orðinn afar fjölmennur og skemmtilegur og vonandi verður hann vel virkur áfram.Hafið það sem allra best.Baldur og Flosi.“

Mannlíf hafði samband við Baldur og spurði hann nánar út í ákvörðunina um pásuna.

„Það var bara komin þreyta í okkur og við vildum hvíla okkur áður en það yrði að vandamáli. Þetta er nefnilega það skemmtilegasta sem við gerum og við viljum klárlega ekki koma okkur í þær aðstæður að Draugarnir hætti að vera það. Þannig að þetta er nú bara pása þar til við teljum okkur klára í slaginn aftur!“

Aðspurður um það hvort einhver önnu hlaðvarps­verkefni væru á döfinni hjá þeim sagði hann ekki svo vera. „Engin önnur verkefni niðurjörfuð sem slík, bara að passa upp á það sem manni þykir vænt um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt