Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Snorri Ásmundsson byrjaði snemma að ögra: „Góðan daginn, helvítis mellan þín“

Nýjasti gestur bræðranna Gunnars og Davíðs Wiium er enginn annar en fjöl­lista­maðurinn Snorri Ásmundsson. 

Snorri, sem hefur fengist við gjörninga­list síðan hann man eftir sér, lifir einnig og þrífst í málara­listinni. Hann segist í raun lifa á henni, en að gjörninga­listformið sé það sem stendur honum næst í einhverjum kjarna.

Reiðin er eldsneytið

Gunnar spurði Snorra hvaðan listin kæmi og þá hvort að gjörninga­listformið kæmi frá sama stað og málningin. Hann hugsaði sig um og sagðist ekki halda að svo væri. Hann segist elska að mála, finnst það skemmtilegt, en gjörn­ingurinn komi frá allt öðrum stað. „Mín nánd við málverkið er ekkert endilega eins og hjá þeim sem fara í nám. Mér finnst bara gaman að mála eins og barni finnst gaman að lita og ég er mjög ánægður með myndirnar sem ég mála, svona flestar sko. Þetta er ólíkt, það er að segja að það er einhver annar kraftur sem á sér stað þegar ég er í gjörningi.“

Fjall­konan Snorri í góðra vina hópi

Gunnar spurði hann hvort að elds­neytið væri reiði og Snorri sagði að líklega væri það svo. Þá að ef reiðin sé elds­neytið væri hún ekkert annað en ótti við eitthvað sem er staðnað, storknað. Þaðan komi þessi þörf fyrir að sprengja allt í loft upp og brjóta niður efnið sem njörvar sálina.

„Ég spyr hann, Goddur hver er minn drif­kraftur og þá segir hann, ANGER, og ég var alveg ha? – tengdi ekkert við það, en málið er að það er kraftur í reiðinni. Og já, oft verður gjörn­ingur til þegar ég hef fengið nóg,“ segir Snorri og er að tala um það þegar Goddur, hinn þekkti lista­maður og rannsóknar­prófessor við Lista­háskóla Íslands og vinur Snorra, uppljóstraði um það hvaðan drif­krafturinn væri kominn.

„Góðan daginn helvítis mellan þín“

Snorri hefur verið í einhvers konar list­gjörningum síðan hann var lítill drengur. Gunnar spyr hann einmitt um gjörning sem Snorri framkvæmdi sem ungur drengur á götum Akureyrar þar sem hann bjó á þeim tíma. Gjörninginn myndu flestir bara túlka sem dónaskap og ósvífni, en í augum Snorra var bara eitt markmið, að ögra og sprengja kassann. Hann sem sagt heilsaði öllum gömlum konum sem hann mætti með því að bjóða góðan daginn, en bætti svo við: „helvítis mellan þín“.

„Hún spurði mig: „Heyrðu Snorri, viltu hitta sálfræðing,“ oftar en einu sinni og ég sagði bara nei, ég hef engan áhuga á því og þá var það bara útrætt,“ segir Snorri af samskiptum sínum við móður sína sem ungur drengur.

„Ég er alltaf í einhvers konar leik og talandi um það að ögra, ég þarf líka fyrst og fremst að ögra sjálfum mér, mér finnst einhvern veginn stöðnun ekki vera í boði.“

Fékk vitrun í fangaklefa

Snorri var drykkju­rútur að eigin sögn. Hann upplifði „blackout“ í fyrsta skiptið sem hann drakk og þar með var ekki aftur snúið. Helgarnar lengdust og svo komu efnin. Amfetamín, kannabis og e-pillur er eitthvað sem hann notaði óspart með tilheyrandi vöku­stundum og partíum. Hann sagðist þó aldrei hafa skapað list undir áhrifum, þar virðist sem einhver aðskilnaður hafi verið til staðar. Botninum náði hann þegar hann var hand­tekinn heima hjá foreldrum sínum fyrir norðan og settur í gæslu­varðhald. Í fanga­klefanum fékk hann guðlega vitrun þar sem hann spurði sjálfan sig einnar spurningar. Spurningin var hvort hann ætlaði sér að vera dópisti og ræfill það sem eftir var eða hvort hann ætlaði sér að fara út í heiminn og verða stórkost­legur lista­maður. Hann valdi á þessum tíma­punkti seinni kostinn. Snorra var svo sleppt úr gæslu­varðhaldi og það fyrsta sem hann gerði var að grafa upp dópið sem hann hafði falið fyrir lögreglunni, klára það og svo ekki söguna meir. Hefur hann ekki snert áfengi eða eiturlyf síðan. 

Snorri var skírður og fermdur og upplifði sig sem mikið Guðsbarn, en í kringum 1990 skráði hann sig úr Þjóð­kirkjunni eftir að komst upp um kynferðis­afbrot Ólafs Skúla­sonar biskups. Samhliða því las hann bók þar sem fram kom að um 7% allra kaþólskra presta væru haldnir djúp­stæðri barna­girnd. Þessu költi vildi Snorri ekki tilheyra og skráði sig úr Þjóð­kirkjunni í kjölfarið. 

Gunnar spurði hvort að hann upplifði sig sem upphafs­mann eða eins konar brautryðjanda slaufu­menningarinnar. Snorri sagðist nú ekki vita neitt um það, en sagði nú samt að hann væri þekktur fyrir að sjá inn í fram­tíðina og kannski hefði hann í þessum efnum bara séð 30 ár fram í tímann.

Vill dansa við dauðann

Snorri vakti upp mikil viðbrögð fyrir nokkrum árum þegar hann auglýsti eftir líki til að dansa við í eins konar lista­gjörningi. Hann óskaði eftir því að fá að nota jarðneskar leifar fólks í myndbands­verki. Vel var tekið í þessa hugmynd af mörgum sem skráðu sig á lista sem hann fékk lögfræðing til að krota upp fyrir sig. En allir þessir einstaklingar lifa enn svo af þessum gjörningi hefur ekkert orðið, enn sem komið er.

Ljós­myndin er svið­sett. Vona ég.

„Ég er reyndar mjög sterkur, en ég veit líka að það mun verða mjög þungt og þetta verður mjög klaufalegt, mjög klaufa­legur dans en ég sé það fyrir mér að hann verði mjög skemmtilegur, svona dansinn við dauðann,“ sagði Snorri um fyrir­hugaðan dans sinn við lík.

„Já, eða bara fíngert lík, manneskja, náttúru­lega best að þetta væri kona af því að ég er karlmaður og dansa, en ég er ekkert gay eða neitt þannig og ég er ekkert á móti dvergum heldur,“ segir Snorri er Gunnar spyr hann hvort það væri ekki best að dansa við látinn dverg svona af praktískum ástæðum. Snorri bætti við: „Flestir eru bara ágætir, við erum eiginlega öll ágæt fyrir utan þessa nokkra sem eru eiginlega alveg óþolandi.“

Það má segja að einu sinni hafi komist smá hreyfing í málið þegar Bandaríkja­maður sem frétti af þessu skrifaði Snorra og lýsti því yfir að hann mætti fá sitt lík til afnota. Hann skrifaði ekki undir neitt þessu tengt, en Snorri frétti svo af því að maðurinn hefði svipt sig lífi en hann glímdi við alvarleg geðræn vandamál. Snorra brá að sjálfsögðu við þessar fréttir en svo upplifði hann þá tilfinningu að maðurinn hefði reynt að þvinga sig inn í verkið. Ferlið hafi samt sem áður verið mikilvægt spjall sem hann hafi átti við dauðann og klárlega hluti af gjörn­ingnum sem enn er ekki útfærður að fullu. 

Kötturinn Reykjavík á Akureyri

Snorri fór einnig yfir það í viðtalinu er hann bauð sig fram til forseta. Hann sagði þó að hann hefði alls ekki gengið alla leið með það, því of mikill hiti hafi verið byrjaður að skapast út frá vafasamri fortíð hans. Hann hafi einfald­lega bara hætt við þetta og þá sérstak­lega eftir að dóttir hans, sem var fimm ára, grátbað pabba sinn að vera ekki forseti heldur bara halda áfram að vera lista­maður. Snorri upplifði einfald­lega létti fyrir vikið, enda mikil ábyrgð sem fylgir því að vera forseti. Gunnar spurði hann hvernig forseti hann héldi að hann hefði orðið. Snorri yppti öxlum og sagðist örugglega bara hafa hætt og sagt upp, hann hefði ekkert endilega nennt því til lengdar.

Kross­festur katta­vinur – frels­ari katta­kyns

„Ég man að ég var að lesa laga­bókina, pabbi var lögfræðingur, eitthvað sem hét lögbókin þín og málið er að mér hefur alltaf fundist að ég eigi að vera forseti eða eitthvað, en málið er að ég sé að ég verð að vera 35 ára gamall og ég ákvað að ég ætlaði bara að bjóða mig fram þegar ég er orðinn 35 ára, svo það var ekkert dýpra en það, þetta var bara gamall æsku­draumur að bjóða mig fram til forseta Íslands.“

Snorri hefur nú samt ekki skilið við pólitík því í haust stofnaði hann fyrir norðan nýtt stjórnmálaafl, Katta­framboðið. „Ég er búinn að fá kött þarna í fyrsta sæti sem heitir Reykjavík,“ segir Snorri um Katta­framboðið.

Hann segist ekkert endilega vera búinn að missa trúna á mannkynið eða manninn en að hugmyndin um kosna fulltrúa á þing, haldi einfald­lega ekki vatni. Fólk er að ota sínum tota og reyna endalaust að stjórna öðrum með ofbeldi og dólgs­hætti. „Þarna í pólitíkinni hangir alltaf eitthvað á spítunni og það er egóið sem menn eru að hugsa svolítið mikið um. Fólk er alltaf að drepast úr stjórnsemi og stjórnsemi er nátt­úrlega ekkert nema ótti.“

Þess vegna hafi hann stofnað Katta­framboðið. Katta­framboðið hafi orðið til sem afleiðing þeirra reglna sem settar voru norður á Akureyri hvað varðar bann á lausagöngu­köttum. Gunnar spurði Snorra hvort að þetta sneri að Akureyringum og hvort að Akureyringar væru ekki bara upp til hópa skrítinn þjóð­flokkur. Snorri sagðist alltaf hafa borið þá upplifun innra með sér að Akureyringar væru frekar sér á báti, en fyrir ekki svo löngu hafi hann dvalið í einhvern tíma fyrir norðan og þá hafi hann náð sáttum við Akureyringa og séð þá í allt öðru ljósi. „Ég alltaf verið pínu hroka­fullur gagnvart Akureyringum þótt að ég sé fæddur og uppalinn á Akureyri.“

Hvað varðar Alþingi er Snorri á því að draga þurfi kenni­tölur fólks inn á þing, svona eins og í Lottóinu. „Ég er á kennitölu-lóttóinu, þú verður bara valinn til að sitja á þingi í einhver viss mörg ár, þú ert bara dreginn inn á kennitölu, bara eins og kvið­dómurinn í Banda­ríkjunum. Þegar ég fór að lesa mér til um anarkisma þá sá ég að það ekkert mikill munur á anarkista og frjáls­hyggju­manni.“

Meistari Hilarion

Uppátæki Snorra hafi jafnan vakið mikla athygli hér á landi en hann hefur meðal annars selt aflátbrét og látið kross­festa sig, svo fátt eitt sé nefnt. Þá var hann einnig með samkomu í Egilshöll þar sem meistari Hilarion, heilari og prestur í musteri sann­leikans í Atlantis, líkamnaðist í Snorra.

Snorri að Snorrast

„Ég er nátt­úrlega oft svo barnslega bjartsýnn að ég hélt að ég yrði milljarðamæringur bara á því að selja afláts­bréf,“ sagði Snorri er Gunnar spurði hann hvort hann hefði grætt mikið á að lána meistara Hilarion líkama sinn.

„Það var nóg pláss og þetta var mögnuð samkoma sko, vinkona mín sem hefur fylgst með mér í gegnum tíðina sagði mér að það hefði bara eitthvað gerst þarna, málið er að ég var nátt­úrlega að opna fyrir fimmtu víddina.“

Aðspurður hvað fimmta víddin væri nákvæmlega, svaraði Snorri:

„Ég veit það ekki, ég rugla öllum þessum víddum saman, fimmtu og sjöttu og sjöundu vídd, en þið getið bara opnað inn á þetta í hugleiðslu.“

Að lokum er Snorri beðinn um að segja einhver vel valin lokaorð:

„Þetta er bara í góðum farvegi, þetta fer allt eins og þetta á fara og við eigum ekkert betra skilið.“

Þetta stór­brotna tímamóta­viðtal við einn ástsælasta og fjöl­hæfasta listamann Íslands má sjá og heyra hér á spil­aranum fyrir neðan, auk þess sem nálgast má þætti Þvotta­hússins á öllum helstu streymis­veitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt