Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Ólína sagði sig úr Samfylkingunni: „Þá stóð ég bara upp og fór“

„Svo féll ég af þingi. Fyrst er það náttúru­lega að fylgi Samfylkingarinnar hrundi eftir þetta stjórnar­samstarf. Það bara hrundi og við náðum ekki inn þingsætinu mínu, þannig að ég varð vara­þingmaður,“ segir Ólína Kjerúlf Þorvarðar­dóttir, fyrrum alþingis­maður, fræði­maður og rithöfundur. Ólína er gestur Reynis Trausta­sonar í nýjasta þætti Mann­lífsins.

Var komin í andstöðu við formanninn

„Þá urðu þau hörmulegu tíðindi að félagi minn, Guðbjartur Hannesson, sem var fyrsti þing­maðurinn fyrir Samfylkinguna í kjör­dæminu, fékk krabba­mein og varð mjög veikur og ég kom inn fljótlega fyrir hann. Því miður entist honum ekki ævin. Hann dó á miðju kjör­tímabili og þá sat ég sem þingmaður í hans stað fram að næstu kosningum; það var nú reyndar ekki nema tvö ár,“ segir Ólína.

„Ég var komin í andstöðu við Árna Pál Árnason, sem var formaður flokksins á þeim tíma. Svo voru komnar væringar innan flokksins. Það var svo margt búið að ganga á í sambandi við þessi fiskveiði­stjórnunarmál og eitt og annað. Árni ætlaði sér þingsæti í Norðvestur­kjördæmi; var farinn að hringja til að safna stuðningi við sig, fann ekki stuðninginn og hætti við, en var þá auðvitað búinn að grafa undan mér og þá kom auðvitað Guðjón Brjánsson sem sá sér leik á borði og stökk inn og náði í prófkjöri fyrsta sætinu.“

Gaf ekki kost á sér nema í fyrsta sæti

„Ég var búin að láta vita að ég gæfi ekki kost á mér nema í fyrsta sæti. Ég náði því ekki og þá stóð ég bara upp og fór.“ Ólína sagði sig úr Samfylkingunni í fyrra. „Ég fylgdi þeim nú að málum og var góður flokks­maður alveg þangað til fyrir svona ári síðan. Þá sagði ég mig úr flokknum, en ég lét það ekki fara hátt. Það var rétt fyrir kosningar og ég vildi af virðingu við félaga mína ekki vera að gera einhvern úlfaþyt úr því; fólkið sem ég hafði starfað með og var að berjast fyrir þingsætinu sínu meðal annars og ég þagði yfir því. Það er ekki fyrr en núna sem ég er farin að segja frá því að ég sé ekki lengur í Samfylkingunni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt