Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Frumskógur í miðbænum og ökuþór flúði úr bíl sínum undan lögreglu

Myndin tengist pistlinum ekki beint
Myndin teng­ist pistl­inum ekki beint

Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu hafði í mörg horn að líta í nótt. Mikið var um ölvunar­tengd mál í miðbæ Reykja­víkur og ýmis atvik víða um höfuð­borgar­svæðið.

Rétt eftir klukkan hálf fimm í nótt var bifreið stöðvuð við umferðar­eftirlit. Áður en lögregla gat gengið að bílnum hafði ökumaðurinn hinsvegar tekið á rás og lagt á flótta. Hann var þá á bak og burt. Lögreglu grunar að maðurinn hafi haft óhreint mjöl í poka­horninu og hafi þess vegna látið sig hverfa. Það vildi til að maðurinn missti síma sinn á flóttanum, sem skemmdist talsvert. Lögregla hefur hann undir höndum.

Í miðbænum var klukkan ekki orðin margt þegar fyrstu tilkynningar bárust lögreglu. Klukkan var rétt um hálf 9 þegar lögregla var kölluð til að veitinga­stað í miðbæ Reykja­víkur vegna manns sem var að berja á rúður á staðnum. Maðurinn lét sig hverfa þegar honum var vísað á brott af lögreglu og því var ekki þörf á frekara inngripi.

Tilkynnt var um líkams­árás á skemmtistað í miðbæ Reykja­víkur laust fyrir klukkan 4 í nótt. Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar að svo stöddu. Önnur líkams­árás var tilkynnt í miðbænum rétt fyrir klukkan 1 í nótt en þegar lögreglu bar að garði hafði árásar­maðurinn hlaupið af vettvangi. Vitni voru þó á staðnum og er málið í rannsókn.

Í tvígang var tilkynnt um grunsamlegar manna­ferðir í austurbæ Reykja­víkur í nótt. Íbúi sá grun­samlegan mann sniglast við húsið um klukkan korter fyrir 2 í nótt. Íbúinn ákvað sjálfur rannsaka málið og kanna hvað maðurinn vildi upp á dekk. Þegar sá síðarnefndi varð var við íbúann tók hann til fótanna og komst undan.

Í seinna skiptið var klukkan rétt að verða 4 í nótt. Þá var tilkynnt um mann á hvítum sendi­ferðabíl sem var að reyna að opna bifreiðar. Lögregla kannar málið.

Snemma í gærkvöld var tilkynnt um mann að stela úr hverfis­verslun. Maðurinn fór af vettvangi í bifreið en lögregla hafði upp á og stöðvaði bifreiðina. Þjófurinn reyndist farþegi í henni en var ökumaður hennar grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og akstur án ökuréttinda. Tekin var skýrsla vegna þjófnaðarins og ökumaður bifreiðarinnar fluttur á lögreglustöð í sýnatöku.

Rétt eftir klukkan 23 í gærkvöld var lögregla kölluð til á hverfis­veitinga­stað á höfuð­borgar­svæðinu vegna manns sem hafði í hótunum við annað fólk á veitinga­staðnum. Þegar lögregla kom á staðinn varð það deginum ljósara að maðurinn var ofurölvi. Hann neitaði að yfirgefa staðinn og hafði bæði hótað og veist að gestum á veitinga­staðnum. Sökum ástands mannsins reyndist ekki annað í stöðunni en að handtaka hann og vista í fanga­geymslu þar til ástand hans yrði þannig að hægt væri að taka af honum skýrslu.

Rétt eftir klukkan fjögur í nótt tilkynntu íbúar hverfis um menn á gangi, á stofn­braut í hverfinu. Tilkynnanda fannst rétt að láta lögreglu vita að um væri að ræða tvo menn sem væri „hasslykt“ af. Lögregla brást vasklega við hass­mönnunum en þegar hún kom á svæðið voru þeir á bak og burt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá