Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Sjóarinn: Seinasta veiðiferð Eyjólfs á Vestmannaey: „Það fossaði blóð út úr afturendanum á mér“

„Ég hætti bara vegna þess að heilsan klikkaði hjá mér,“ segir Eyjólfur Pétursson, nýjasti gestur hlað­varpsins Sjóarinn. Eyjólfur er yngstur Íslendinga til að verða togaraskipðstjóri. Rétt rúmlega tvítugur stóð hann í brúnni á síðu­togara.

Hann var skip­stjóri á skut­togaranum Vestmanney frá árunum 1972-1991. Eyjólfur er annálaður aflamaður. Hann var ekkert á leiðinni í land þegar áfallið dundi yfir í miðri veiðiferð á Vestmannaey.

Togarinn Vest­mannaey sem Eyjólfur stjórn­aði um ára­bil.

„Ég veiktist alvarlega út á sjó. Það fossaði blóð út úr aftur­endanum á mér, en ég var með krabba­mein í ristlinum. Ég var heppinn að æxlið sprakk sjálft. Æxlið var svo fjarlægt þegar 10 cm voru skornir af ristlinum, botnlangameginn og æxlið tekið út, en það var illkynja. Það hefur aldrei fundist neitt síðan. Það var lán í óláni að það skildi fara að blæða úr því. Læknirinn sagði að: ef þetta hefði fundist eftir 10 ár, þá hefði ég verið hætt kominn og krabbinn sennilega búin að breiða sig út í önnur líffæri“.

Þú ert þá hætt kominn á þessari stundu? „Ég var fluttur í land í snatri með þyrlu, en ég man ekkert eftir því – ég var hálf rænulaus.“

Gerðist það þá að nóttu til?

„Ég var búinn að vera í tvo daga með það sem ég kalla „bombu­veiki,“ inn og út af salerninu. Svo fannst mér liturinn farinn að verða svolítið skrítinn, en það endaði svo á því að það kom bara blóð. Klósett­skálin var orðin alveg rauð. Þá fór ég upp og talaði við Bigga stýrimann og lýsti þessu fyrir honum. Ég hélt í fyrstu að þetta væri gyllinæð. Þá kallaði ég í talstöðina í Vestmannaeyjaradío og lýsti þessum veikindum. Læknirinn spurði mig, hvar við værum staddir. Ég sagði honum það. „Hvað ertu lengi í land?“ Ég sagði honum það“. Læknirinn skipaði honum að hætta veiðum og halda strax á fullri ferð til lands. Hann sagðist senda þyrluna til hjálpar.  Þá sagði Eyjólfur: „Ertu eitthvað klikkaður, þetta er bara ég.“ „Það er alveg sama hvort að það ert þú eða einhver annar“.

Eyjólfur Pét­urs­son skip­stjóri.

Skömmu eftir að samtalinu við lækninn lauk missti Eyjólfur meðvitund og man ekkert frá því hann kom um borði í þyrluna og þar til þyrlan lenti í Reykjavík.

„Ég rankaði við mér á Reykja­víkur­flugvelli og spurði hvar er ég? Ég er alveg klár á því, að ef þetta hefði ekki gerst, þá væri ég ekki á lífi í dag. “

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt