Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Ómar hefur áhyggjur af mögulegum eldgosum: „Gos í sjó gæti valdið miklu tjóni“

Ómar Ragnarsson: Á loftmynd sem tekin er nyrst yfir hinni rúmlega tíu kílómetra löngu gígaröð Eldvörpum nokkrum kílómetrum fyrir sunnan Svartsengi og Bláa lóninu, er horft út til Reykjaness, og eru Reykjanestá og Eldey fjærst, og gufumekkirnir í Reykjanesvirkjun sjást vel.
Ómar Ragn­ars­son: Á loft­mynd sem tekin er nyrst yfir hinni rúm­lega tíu kíló­metra löngu gíga­röð Eld­vörpum nokkrum kíló­metrum fyrir sunnan Svarts­engi og Bláa lón­inu, er horft út til Reykja­ness, og eru Reykja­nestá og Eldey fjærst, og gufu­mekkirnir í Reykja­nes­virkjun sjást vel.

Fjölmiðla­maðurinn fyrr­verandi og skemmtikrafturinn Ómar Ragnarsson skrifaði færslu á bloggsíðu sinni í gær þar sem hann talar um væntanleg gos á Reykjanesinu en Ómar hefur gríðar­lega reynslu en hann hefur fjallað um ófá eldgos í gegnum áratugina sem frétta­maður Rúv.

Í fréttum Rúv í gær sagði Þorvaldur Þórðarson eldfjalla­fræðingur að verulegar líkur séu á eldgosi á Reykjanesinu innan árs og þá jafnvel að þau komi upp á mörgum stöðum samtímis. Ómar tiltekur nokkra staði þar sem eldgos gæti valdið tjóni.

„Það eru margir staðir á svæðinu milli Eldeyjar, Svarts­engis og Grinda­víkur, þar sem eldgos gæti gert usla.“

Þá segir Ómar að ef gysi í sjó gæti það valdið gríðar­legu tjóni en bendir á að fleiri verðmæti séu á svæðinu.

„Gos í sjó gæti valdið miklu tjóni, því að undir vatni eða jökli koma oft skæð öskugos.

En það eru fleiri verðmæti þarna sem eru bæði dýr og viðkvæm. Reykja­nesvirkjun er verðmætt mannvirki aðeins örfáa kílómetra inni á landi, og af Eldvörpum og Stapa­felli má sjá, að það er óþægilega stutt í Svarts­engis­virkjun með sínu Bláa lóni, að ekki sé nú talað um byggðina í Grindavík.“

Að lokum talar Ómar um gosið í Geldingadal sem var hálfgert túristagos.

„Hraunið í Geldinga­dalagosinu kom upp á alveg einstak­lega heppilegum stað og ekki hægt að treysta á að gosin, sem nú sýnist vera hætta á að komi upp á nýju eldvirknis­tímabili valdi jafn litlu tjóni og verði jafnframt að jákvæðri auglýsingu fyrir landið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá