Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Logi Einarsson um fylgishrun Samfylkingar: „Ég held að við höfum færst of mikið í fang eftir hrun“

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, er gestur Mann­lífsins með Reyni Trausta­syni. Hann fæddist og ólst upp á Akureyri á 6. áratugnum. Árin liðu fyrir norðan og út um allan heim og stákurinn stækkaði og þroskaðist. Og hann var meðlimur hljóm­sveitarinnar Skrið­jökla um tíma. Löngu seinna varð hann formaður Samfylkingar eftir að hafa bjargað flokknum frá algjöru hruni með því að ná kjöri sem þingmaður í Norðaustur­kjördæmi. Logi er frá Akureyri, rétt eins og Samherji, sem er til rann­sóknar vegna meintrar spillingar. vað finnst Loga um það?

Hann rifjar upp stofnun þeirrar vinsælu hljóm­sveitar og sukkið sem fylgdi.

„Þá runnu saman tvær fimm til sex manna klíkur og við bjuggum til Skrið­jökla. Fyrst og fremst held ég nú að það hafi verið gert til þess að komast ókeypis inn í Atlavík og svo varð ekkert aftur snúið. Þetta varð furðulega vinsælt miðað við hvað þetta var nú efnisrýrt. En við höfðum gaman og í nokkur ár var þetta til og við ferðuðumst um landið og okkur gafst tækifæri til þess að vera í samvistum. Þetta var meira eins og félags­heimili. Við vorum orðnir 10 og það var ekki hægt að koma öllum á hljóðfæri og þá var farið í að velja þá sem voru skástir á hljóðfæri og við hinum fengum bara annað hlutverk. Ég var látinn dansa og einn annar, einn var í miða­sölunni og einn keyrði rútuna. Það var enginn skilinn út undan. Eigum við ekki að segja að þetta hafi verið jafnaðar­mennskan í hnotskurn,“ segir formaðurinn sem segist vera slarkfær á gítar.

Logi flutti svo til Noregs tveimur eða þremur árum eftir stofnun Skrið­jökla þar sem hann lærði arkitektúr. „Það var samt þannig að þegar ég kom í jólafrí eða sumarfrí þá var alltaf kallað í mann „komdu með“.“

Fylgdi Skrið­jöklum mikið sukk?

„Eftir á að hyggja þá óska ég ekki eftir því að börnin mín geri þetta. En flestir höfum við þroskast frá því. Við vorum margir í íþróttum líka samhliða þessu og það varð einhver hemill á þessu. Auðvitað ekki sá standard sem gerður er á íþrótta­menn í dag, enda urðum við ekkert sérstak­lega góðir, en það varð þó til þess að við urðum að passa okkur til að verða leikfærir. “

Samfylkingin komin nær miðjunni

Fylgi Samfylkingarinnar var 32% þegar baráttan stóð sem hæst og svo hrundi allt. Logi var bjarg­hringurinn fyrir norðan sem bjargaði því að flokkurinn hvarf ekki. Hvað klikkaði?

„Ég held það hafi verið margir samverk­andi þættir bara eins og alltaf þegar maður einhvern veginn lendir í óhappi. Við þekkjum öll þær aðstæður þegar maður stendur í eldhúsinu og maður sér að bollinn er að detta og í staðinn fyrir að láta hann bara detta þá seilist maður eftir honum og rífur í rafmagns­snúruna í leiðinni og rennir svo á kaffinu og slær niður borðið og allt. Ég held að við höfum færst of mikið í fang eftir hrun þessi ríkis­stjórn sem þá var. Ég held að samtímis því að vera að sækja um aðild að Evrópusambandinum ætla að gjör­breyta fiskveiði­stjórnunar­kerfinu og sammþykkja nýja stjórnar­skrá hafi kannski verið of mikið fyrir þjóð sem auðvitað tróð bara marvaðann“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt