Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Kalla eftir því að ofbeldið sem hefur viðgengist hætti og að ríkið stígi inn í

Anna þráði mikið að æfa í kór eða fara í skátana þegar hún var lítil, en það var bannað. Mynd/Skjáskot: VISIR
Anna þráði mikið að æfa í kór eða fara í skát­ana þegar hún var lítil, en það var bannað. Mynd/Skjáskot: VISIR

Flest höfum við heyrt lygilegar sögur af sértrúar­söfnuðum, enda hafa gjörðir þeirra og örlög oft ratað í heims­pressuna og ekki síst poppkúlturinn um allan heim. Í Kompás þætti Stöðvar 2 í gærkvöldi var tekið viðtal við nokkra fyrr­verendi meðlimi sértrúar­söfnuðarins Votta Jehóva.

Í þætti gærkvöldsins var rætt við fólk sem var útskúfað úr söfnuði Votta Jehóva og hefur ekki fengið að hitta fjöl­skylduna sína svo árum skiptir. Fyrr­verandi meðlimir Vottanna lýsa gífurlegu andlegu ofbeldi eftir útskúfun, harðræði gegn börnum í söfnuðinum og hvernig það skorti fagleg úrræði og aðstoð eftir að hafa hætt í sértrúar­söfnuði. Þær kalla eftir því

Rakel Íris var brottrekin úr söfn­uði Votta Jehóva þegar hún var 23 ára gömul. Hún fædd­ist inn í söfn­uð­inn og þekkti engan utan hans. Hún hefur nú þurft að fóta sig í líf­inu án fjöl­skyldu sinnar, því þau slitu öllum sam­skiptum við hana þegar hún var rekin fyrir átta árum og hún hefur ekki hitt þau síðan. Mynd/Skjáskot: VISIR

að ofbeldið, sem hefur verið látið viðgangast áratugum saman, hætti og að ríkið stígi inn í.

Ung kona sem var rekin úr söfnuði Votta Jehóva, hefur ekki fengið að hitta fjöl­skylduna sína í átta ár.

Vottar Jehóva á Íslandi

Vottar Jehóva er nokkuð öflugur sértrúar­söfnuður á Íslandi miðað við marga aðra. Samfélag Vottanna er mörgum hulið, enda einangrunin og þöggunin gífurleg innan safnaðarins. Bóknám í háskóla er talið hættulegt því það hverfur frá sann­leikanum, gaslýsingin er endalaus og feðra­veldið er alls­ráðandi, en það er allt þess virði því þau sem trúa – enda í paradís við heimsendi.

Foreldrar Rakelar Írisar voru í söfnuðinum þegar hún fæddist og sömuleiðis systur hennar tvær. Og fjöl­skyldan er þar enn. Rakel ólst upp innan Vottanna og þekkti ekkert annað. Skóla­ganga hennar var erfið, þó að henni hafi ekki verið strítt, upplifði hún sig utangarðs. Hún var tekin úr skólanum í byrjun desember til að forðast allan jóla­undirbúning og mátti aldrei fara í afmæli til bekkjar­systkina, sem henni var þó boðið í.

„Ég man ekki til þess að hafa lent í einelti eða mikilli stríðni. Krakkarnir voru bara mjög almennilegir við mig að mestu leyti. Ég held að þau hafi bara vorkennt mér,” segir hún.

Pabbi Rakelar vann við ræstingar, sem er víst algeng starfs­grein meðal Vottanna, þau fóru á samkomur mörgum sinnum í viku og lífið gekk bara sinn vanagang. Það var strangt uppeldi og börnin þurftu að vera þæg.

„Maður þurfti að sitja kyrr og maður þurfti að fylgjast með. Maður var beittur aga til að gera það,” segir Rakel.

Rakel varð ástfangin af „röngum manni”

Þegar Rakel var orðin fullorðin, 23 ára, varð hún ástfangin og byrjaði að hitta mann utan safnaðarins. Það samband átti eftir að verða dýrkeypt. Vinkona hennar, sem var Vottur, komst að þessu og hótaði að klaga Rakel til öldunganna. Hún ákvað þó að fara að eigin frumkvæði til þeirra og eftir að hafa þurft að lýsa ástar­sambandi sínu í smáatriðum fyrir þremur körlum, kveða öldungarnir upp dóm sinn og ráku hana úr söfnuðinum.

„Það var bara áfall. Ég kveð fjöl­skylduna, eða þau kveðja mig, og segja að núna förum við sitthvora leiðina. Ég knúsaði systur mína bless og hef ekki séð hana síðan. Ég fékk símtal frá foreldrum mínum um að þau ætli ekki að vera í samskiptum við mig,” segir Rakel. „Þau upplifa þetta sem aga frá Guði.”

„Ef þau hafa samskipti við mig þá eru þau að koma í veg fyrir aga Guðs, sem er til þess gerður að ég komi til baka. Það er það sem þau trúa. Til að fá mig til að koma aftur þá þarf ég að fá þennan daga og iðrast og koma aftur. Þetta er eina leiðin.”

Langar þig aldrei að snúa bara aftur?

„Jú. Stundum. Bara út af fjöl­skyldunni. Ég fer yfir þetta oft. Reglulega. En ég get það ekki. Það er of margt í söfnuðinum sem stríðir gegn mínum gildum og minni sannfæringu,” svarar Rakel. „Bara eins og þetta, að beita andlegu ofbeldi til að fá fólk aftur í söfnuðinn. Og þau sjá það ekki þannig.”

Fannst sárt að sjá að enginn vildi koma frá Vottunum

Í síðasta þætti Kompáss var fjallað um trúar­ofbeldi í kristilegum sértrúar­söfnuðum þar sem fyrr­verandi meðlimir nokkurra safnaða sögðu frá reynslu sinni af kúgun, ofbeldi og lygum. Rakel segir það hafa verið erfitt að sjá að enginn hafi viljað koma frá Vottum Jehóva, en skilur óttann vel.

„Ég hugsaði að það er einhver sem þarf að gera þetta. En á sama tíma þá er ég búin að vera að ströggla með þetta, hvort ég sé tilbúin að fórna þeirri von um að geta einhvern tímann verið með fjöl­skyldunni,” segir Rakel.

Allir vita af ofbeldinu en enginn gerir neitt

Það er svo sannarlega ekki verið að afhjúpa útskúfunina og útilokunina innan Vottanna hér. Flestir vita að þetta er aðferðin sem safnaðar­meðlimir beita þau sem ákveða að leita annað. En það er samt látið viðgangast, líklega í nafni einhvers konar trúfrelsis. En frændur okkar Norðmenn úrskurðuðu nú í janúar að Vottarnir skyldu sviptir ríkis­styrkjum vegna útskúfunar sóknar­barna sinna og að stjórn­endur Votta Jehóva hafi brotið lög um trúfélög. Það var frétta­skýringa­þátturinn Brennpunkt sem varpaði ljósi á afleiðingar útskúfunar Vottanna í Noregi.

Kalla eftir aðgerðum frá yfirvöldum

„Ég hugsa að það séu margir mjög fastir sem eru bara þarna af því að þeir vilja ekki verða fyrir útskúfuninni,” segir Lilja Torfa­dóttir sem hafði verið mjög virk í söfnuðinu en er nú fyrr­verandi meðlimur Votta Jehóva. Þeir vilja ekki eiga það í hættu að foreldrar, vinir og allt samfélagið hætti að tala við þá. Svo eru það þeir sem eru öfga­kenndir og hætta ða tala við börnin sín og barna­börnin, það er það fólk sem ég hræðist mest.”

Rakel hefur ekki séð fjöl­skylduna sína í átta ár. Hún lifir enn í voninni um að söfnuðurinn slaki á reglununum og hætti að beita ofbeldi svo hún geti átt samskipti við þau á ný.

„Og að þau mundu geta hugsað sér að vera í sambandi við mig. Ég efast um það sko. En hver veit, ef það er meiri pressa úr fleiri áttum. Ef það væri pressa frá ríkinu eða bara fólki,” segir Rakel.

„Ég hefði viljað hafa úrræði, sérstak­lega þegar ég var nýhætt í söfnuðinum. Að það sé eitthvað sem grípur mann.”

Vill hjálpa fólki eftir trúarofbeldi

Anna Margrét Kaldalóns fæddist inn í söfnuðinn eins og Rakel, en var gerð brottræk ásamt fjöl­skyldu sinni þegar faðir hennar skrifaði öldungunum bréf. Hú hefur hug á því að tengja fólk saman sem hefur verið í sértrúar­söfnuðum.

„Ég mundi mjög gjarnan vilja koma á fót stuðnings­hópi hérna fyrir okkur og ekki síst fyrir unga fólkið sem er kannski að stíga sín fyrstu skref úr söfnuðinum eða búið að vera lengi í burtu, en vantar einhvern til að tala við. Þetta er svo öðruvísi bakgrunnur og bara ólíkt því sem aðrir þekkja það er svo dýrmætt að geta deilt þeirri reynslu,” segir Anna Margrét.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá