Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Guðmundur Ari: „Held að ég eigi enn met í Valhúsaskóla fyrir að vera rekinn til skólastjórans …“

Guðmundur Ari Sigurjónsson
Guð­mundur Ari Sig­ur­jóns­son Mynd: LESZEK NOWAKOWSKI

Hann ólst upp á Seltjarnarnesi, æfði handbolta og fótbolta og var í tónlistar­námi við Tónlistar­skóla Seltjarnarness.

„Þegar ég var orðinn 10 ára fór ég að hætta að finna mig í skóla­kerfinu og hætti hægt og rólega að passa í það þrönga form. Áhuginn minn var á fótbolta, að vera með vinum og að spila tölvu­leiki og ég skildi í raun ekkert af hverju ég þurfti að vera í þessum blessaða skóla. Þegar ég var kominn í unglinga­deild í Valhúsa­skóla var þetta árangurs­leysi og árekstrar í skólanum farið að hafa mjög neikvæð áhrif á sjálfs­myndina mína og ég var farinn að nýta orkuna mína í uppreisn gegn skólanum frekar en að reyna að ná að læra námsefnið og vera til friðs. Ég held að ég eigi enn met í Valhúsa­skóla fyrir að vera rekinn til skóla­stjórans í fyrstu kennslu­stund á fyrsta kennslu­degi eftir sumarfrí,“ segir Guðmundur Ari Sigurjónsson, verkefna­stjóri og bæjar­fulltrúi, sem mun leiða framboðs­lista Samfylkingarinnar og óháðra í sveitar­stjórnar­kosningum á Seltjarnarnesi.

Aukið sjálf­stæði og nýtt hlut­verk varð til þess að ég fór að vilja standa mig.

„Þegar líðan mín og viðhorf til skóla breyttist ekkert á fyrsta ári mínu í Fjölbrauta­skólanum við Ármúla ákvað ég að ráða mig í sumar­vinnu á Eskifirði við að leggja hitaveitu og skipta þannig um umhverfi og aðstæður. Ég hafði kynnst stelpu að austan og fékk að búa með henni og frábærri fjöl­skyldu hennar. Lífið fyrir austan hafði mjög mótandi áhrif á mig en aukið sjálf­stæði og nýtt hlutverk varð til þess að ég fór að vilja standa mig. Ég tók einn vetur í Verk­menntaskóla Austur­lands sem var minna og heimilislegra umhverfi en ég hafði áður kynnst og það hentaði mér afar vel. Það slitnaði upp úr sambandi mínu með kærustunni um vorið og ég flutti aftur suður eftir þetta eina ár á Austur­landi.

Ég sá krakka sem voru á svip­uðum stað og ég hafði verið á.

Þegar ég flutti aftur suður byrjaði ég að vinna smíða­vinnu og skráði mig í húsa­smiðinn í Iðnskólanum í Reykjavík. Skólinn fékk þó litla athygli og datt lífið fljótt aftur í kunnuglegt far partí­stands og að einblína meira á frítímann en skólann. Ég skipti yfir í fjórða framhalds­skólann á fjórum árum þegar ég skráði mig í Fjölbrauta­skólann í Breið­holti til að vera nær vinum mínum að austan sem voru fluttir í bæinn. Þetta var veturinn 2008/2009 og var ég staddur í upplýsinga­tæknitíma í FB þegar Geir bað Guð um að blessa Ísland. Á þeim degi tvöfaldaðist bílalánið á nýlegum bíl sem ég hafði keypt á mynt­körfuláni og ég missti smíða­vinnuna sem átti að borga fyrir kaggann. Þá voru góð ráð dýr en blessunar­lega hafði ég ráðið mig um haustið í afleysingar­starf í Félags­miðstöðinni Selinu á Seltjarnarnesi. Í því starfi fann ég aftur þessa tilfinningu um að vilja standa mig; þarna var ég byrjaður að vinna í félags­miðstöðinni í heima­bænum þar sem ég hafði sjálfur verið til eilífra vandræða. Ég sá krakka sem voru á svipuðum stað og ég hafði verið á og fann hvernig ég gat hjálpað þeim í félags­miðstöðinni með því að skapa öruggt umhverfi þar sem þeir gátu ræktað styrk­leika sína og byggt upp sjálfs­myndina. Það sem var svo best við starfið í félags­miðstöðinni var þegar ég sá og fann að krökkunum fór að líða betur sem hafði svo jákvæð áhrif á aðra þætti í lífi þeirra, þar á meðal náms­árangur. Í Selinu fékk ég tækifæri til að vaxa í starfi, taka að mér fjöl­breytt verkefni eins og að stofna ungmennaráð Seltjarnarness með öflugum hópi ungmenna. Ég tók sjálfur út mikinn persónu­legan þroska á árunum í Selinu og fór úr því að kennarar héldu þegar þeir sáu mig fyrst að ég væri í 12 spora kerfinu að bæta upp fyrir gamlar syndir yfir í það að leiða forvarnar- og frístunda­starfið í sveitar­félaginu.“

Guðmundur Ari segir að sú lífs­reynsla sem hefur mótað hann hvað mest sé ferðalag hans í gegnum skóla­kerfið. „Að byrja ágætlega, fara svo út af sporinu og missa alla trú á eigin getu sem námsmanni. Ná svo að finna tilgang með náminu og snúa blaðinu við og klára háskólann með góðum árangri,“ segir hann en meira um það síðar.

Skynsemi og ábyrgð í fjármálum

Guðmundur Ari byrjaði að vinna í fullri vinnu í Selinu eftir tvö ár í hluta­starfi og sótti um nám í tómstunda- og félagsmála­fræði við Mennta­vísindasvið Háskóla Íslands. Hann komst inn með undanþágu en hann var ekki með stúdents­próf en þrátt fyrir fimm ár í framhalds­skóla átti hann talsvert í land að sækja hvíta hattinn eins og hann orðar það.

„Í tómstunda­fræðinni fann ég aftur til mín í litlum hópi með talsvert sjálf­stæði og frelsi til að samþætta vinnuna í Selinu við námið. Ég endaði með að útskrifast með B.A.-gráðu og 10 í einkunn fyrir loka­verkefnið mitt sem var mikill sigur fyrir unglinginn sem brotnu sjálfs­myndina í skóla­kerfinu.

Vissi bara að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn væri með völdin á Nesinu.

Í starfi mínu sá ég meðal annars um nemendaráð Valhúsa­skóla og Selsins og það var eftir kynningar­fund með krökkum þar sem ég hvatti þá til að bjóða sig fram í nemenda­ráði til að hafa áhrif á nærumhverfi sitt að ég fór að hugsa að ég væri nú meiri hræsnarinn, enda sjálfur ekki að taka nokkurn þátt í eigin nærumhverfi. Ég ákvað því að mæta á fund hjá Sjálfstæðis­félagi Seltirninga því á þessum tíma­punkti var ég lítið að pæla í pólitík og vissi bara að Sjálfstæðis­flokkurinn væri með völdin á Nesinu. Það þurfti þó ekki nema þennan eina opna fund hjá Sjálfstæðis­félaginu til að komast að því að sýn þeirra á skatta og þjónustu við íbúa rímaði ekki við mína persónu­legu sýn. Ég hafði fundið á eigin skinni og í starfi mínu hvernig þjónusta eins og félags­miðstöð og önnur virkni­úrræði eru ekki peninga­eyðsla heldur fjár­festing í fólki sem eflir og styrkir einstaklinga og borgar sig svo margfalt til baka í formi farsældar þeirra, vinnu­framlags og skatt­greiðslna til samfélagsins. Ég mátaði mig því næst við Samfylkingar­félagið á Seltjarnarnesi og fann mig vel þar. Áherslurnar þar voru skynsemi og ábyrgð í fjármálum á sama tíma og horft var á þjónustu og forvarnir sem fjár­festingu og skyldur sveitar­félaga.“

Breytt í 16 íbúðir

Og Guðmundur Ari fór í framboð og komst inn í bæjar­stjórn í kosningunum 2014.

„Ég leiddi svo listann í kosningunum 2018 og gekk okkur afar vel í báðum kosningum og höfum haft tækifæri til að hafa áhrif á umræðu og ákvarðanir í sveitar­félaginu. Þrátt fyrir að hafa verið í minni­hluta öll þessi átta ár þá er ég stoltur af mörgum góðum málum sem við höfum haft áhrif á. Ég er stoltur að hafa leitt starfshóp sem kom íbúa­lýðræðis­verkefninu Nesið okkar á koppinn en það er verkefni þar sem íbúar fá að kjósa um og forgangs­raða framkvæmdum í sveitar­félaginu. Ég er einnig stoltur af litlu skipulags­verkefni þar sem lóð með tveimur húsum var breytt í 16 íbúðir til að auka framboð af fjöl­breyttu húsnæði. Á þeim reiti búa fleiri börn heldur en í þremur stórum lúxus­blokkum sem byggðar voru á Hrólfskálamel sem „íbúðir fyrir ungt fólk“. Að lokum er ég stoltur af því að hafa staðið vörð gegn niður­skurði á þjónustu og að meirihluti hafi náðst fyrir hækkun á útsvari síðastliðið haust. Sú hækkun hefur stoppað upp í halla­rekstur bæjarins og gert bænum kleift að standa vörð um þjónustu við bæjarbúa og sækja fram.“

Sel­tjarn­ar­nes­bær er eftir á í grænu mál­unum.

Guðmundur Ari segir að verkefni næsta kjör­tímabils verði einmitt að klára að snúa við rekstri bæjarins svo hann nái jafnvægi og verði sjálfbær. „Við viljum að næsta kjör­tímabil snúist um að búa til betri bæ fyrir börn. Það er mikilvægt að rýna aðstöðu og stoð­þjónustu við börn frá leikskóla og upp úr, auka snemmtæka íhlutun og samþætta betur kerfin okkar. Það er uppsöfnuð viðhalds­þörf víða í bænum og mörg svikin loforð um uppbyggingu sem þarf að uppfylla til að endur­heimta traust foreldra og fagfólks. Seltjarnar­nesbær er eftir á í grænu málunum og er mikilvægt að við útbúum markvisst grænt plan sem snýr að öllum þáttum reksturs, uppbyggingu og þjónustu við íbúa. Miðbæjar­svæðið er svo sérlegt áhugamál hjá mér en þar eru gríðarleg tækifæri til að ráðast í uppbyggingu og styðja við svæðið til að efla þjónustu við íbúa sem og fyrir­tækin á svæðinu.“

Áhugamaður um pítsur og íþróttir

Guðmundur Ari er spurður hvað það gefi honum að vera í bæjar­stjórninni og að vinna að þessum málum.

„Mér finnst vera gríðar­lega verðmætt að vera treyst fyrir því að sitja í bæjar­stjórn fyrir íbúa og sækist eftir stuðningi til að verða bæjar­stjóri á Seltjarnarnesi. Í bæjar­stjórn eru teknar ákvarðanir sem snúa að nærumhverfi íbúa og finnst mér að við getum gert betur í að hlusta á þarfir íbúa, raddir fagfólks og vera stefnu­miðaðri í stjórnun bæjarins. Það er ekki hægt að gera allt fyrir alla á sama tíma en mikilvægt að eiga í góðu samráði við íbúa og teikna upp lang­tímaplön þar sem verkefnum er forgangs­raðað og fólk fái tilfinningu fyrir því að verkefnin séu í ferli og þau séu kláruð. Ég vil standa vörð um og efla skóla- og frístunda­starfið á Nesinu í samstarfi við félags­þjónustuna svo að öll börn fái tækifæri til að upplifa öryggi og tilgang í starfinu. Ég tel það vera frum­skyldu sveitar­félagsins að halda vel utan um börnin okkar og tryggja farsæld þeirra.“

Tekur það eitthvað frá honum að vera í bæjar­stjórninni og vinna að þessum málum?

„Neikvæðu hliðar sveitar­stjórnar­starfsins eru að þetta tekur tíma frá fjöl­skyldunni. Á Seltjarnarnesi eru fundir haldnir fyrir eða eftir vinnu því það virðist vera viðurkennt að taka ekki óþarfa tíma frá öðrum störfum en á sama tíma bitnar það stundum á fjöl­skyldunni og útilokar algjör­lega foreldra sem hafa ekki öflugt stuðningsnet í kringum sig.“

Hvernig myndi Guðmundur Ari lýsa sjálfum sér?

„Ég myndi lýsa mér sem nokkuð lífs­glöðum og temmilega kæru­lausum fjölskyldu­manni. Ég er áhuga­maður um pítsur og íþróttir og stelst í að spila tölvu­leiki þegar tími gefst.“

Hann er kvæntur Nönnu Kaaber íþrótta­fræðingi og eiga hjónin þrjú börn. Árni Bergur er níu ára, Kjartan Kári er sex  ára og Magnea er þriggja ára. Hann segir að helstu áhuga­málin séu að nýta frítímann í samveru með fjöl­skyldu og vinum. „Ef maður er með góðu fólki þá er auka­atriði hvort við séum í golfi, fjall­göngum, hjólreiða­ferðum eða fótbolta.“

Það er nóg að gera en Guðmundur Ari er að ljúka ljúka Med.-gráðu með áherslu á stjórnun og þróunar­starf ásamt því að vera þátttkandi í þróunar­verkefnum og rann­sóknum með háskólanum. „Þessi reynsla hefur búið til það mottó hjá mér að það eru allir flottir og ef við sköpum réttu aðstæðurnar og styðjum við fólk með réttum hætti á réttum tíma­punkti þá geta allir ræktað styrk­leika sína, fundið tilgang sinn og blómstrað. Þetta viðhorf litar mig í pólítík, leik og starfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá