Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir manni sem talinn er vera erlendur ríkisborgari. Óskað er þess að ná tali af manninum.
„Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi myndum og er hann vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000. Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið [email protected]
Þótt myndirnar séu óskýrar má ætla að þær geti gefið vísbendingar um hver maðurinn er, en talið er að hann sé erlendur ríkisborgari.“


Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir