Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Æskuvinkona Viktoríu hágrét í símtali frá Úkraínu: „Hún sagðist ekki vera tilbúin til að deyja“

Viktoría Vasilynka Alfreðsdóttir
Viktoría Vasi­lynka Alfreðs­dóttir

„Ég er búin að vera voðalega dauf ef ég á að vera alveg hrein­skilin. Það er hræðilegt að horfa upp á þetta og vera hér og geta ekkert gert. Ég er í tilfinninga­legum rússíbana; ég finn fyrir mikilli sorg og ég er búin að gráta mjög mikið. Úkraínska hjartað mitt er algjör­lega í molum og ég hélt fyrst þegar stríðið braust út að heima­landinu mínu yrði útrýmt.“

Þögn.

„Ég var algerlega máttlaus og mér fannst vera svo sorglegt að það væri möguleiki á því að ég gæti aldrei sýnt börnunum mínum í fram­tíðinni hvaðan ég kem. Að þessi partur af mér myndi deyja út. Það er eiginlega ekki hægt að lýsa þessu með orðum. Þetta er algert vonleysi; þetta er pínu eins og það sé verið að eyða parti af persónu­leika manns. Það er mótandi í hvaða landi maður elst upp. Það er virkilega mótandi. Hugsaðu þér ef Ísland yrði ekki til á morgun,“ segir Viktoría Vasilynka Alfreðs­dóttir sem er frá Úkraínu en hún flutti hingað 11 ára gömul með móður sinni sem gift er íslenskum manni.

Þetta hefur bara áhrif á allt.

„Ég á sem betur fer virkilega gott fólk að og það eru allir búnir að vera að hringja í mig og ég hef fundið fyrir virkilega góðum stuðningi sem ég er þakklát fyrir. Þetta hefur bara áhrif á allt. Ég get ekki hugsað um neitt annað en þetta; sérstak­lega fyrst þegar ég hafði svo miklar áhyggjur af æsku­vinkonu minni úti. Ég er fegin að hún er komin úr landi. Ég hef líka áhyggjur af öðrum æskuvinum mínum og ættingjum svo sem afa mínum. Ég er að reyna að finna einhverja leið til þess að koma þeim úr landi ef til þess kæmi en svo aftur á móti er komin smávon í mig um að hlutirnir gætu lagast.“

Ég var með hana hágrát­andi í sím­anum þegar hún sagð­ist ekki vera til­búin til að deyja.

Viktoría segist vera í daglegum samskiptum við fólkið sitt úti – ættingja og æskuvini. „Þau eru mjög hrædd. Þau eru í vestur­hluta landsins sem hefur ekki enn verið ráðist á. Ég get ekki einu sinni ímyndað mér hvernig fólki líður sem býr á því svæði sem búið er að ráðast á. Þetta er allt súrrealískt. Það er súrrealískt að sjá þessar myndir og myndbönd og heyra í fólkinu mínu en ég er mest búin að vera í samskiptum við æsku­vinkonu mína sem bjó í vestur­hlutanum. Þegar ég var að tala við hana fyrstu dagana þá heyrði ég í sírenum í gegnum símann sem gáfu til kynna að von væri á loftárás og það þurftu allir að fela sig í kjallara. Ég var með hana hágrátandi í símanum þegar hún sagðist ekki vera tilbúin til að deyja. Það var auðvitað hræðilegt fyrir mig að heyra mína bestu æsku­vinkonu tala um svona hluti og auðvitað bauðst ég til að aðstoða hana eins og ég gæti til að koma henni úr landi. Það tók hana svolítinn tíma til að komast úr landi en hún á ekki bíl og allar samgöngur eru í hakki. Henni tókst að fá far með ókunnugu fólki og er komin til Rúmeníu þar sem sjálfboða­liðar tóku á móti henni. Hún sagði mér að hún væri virkilega þakklát fyrir allt það góða fólk í Evrópu sem væri tilbúið að taka á móti úkraínsku fólki og aðstoða það.“

Viktoría og æsku­vin­kona hennar sem flúði til Rúmeníu.

Mikil samheldni

Viktoría segir að kona á sjötugsaldri, vinkona ömmu sinnar, sem býr í þriggja herbergja íbúð í miðbæ Ternopil sé búin að opna heimili sitt fyrir fólki frá Kiev og austur­hluta landsins en þar gista nú um 20 manns. Dóttir hennar býr í tveggja herbergja íbúð og þar gista nú um 10 manns. Aðrir fjölskyldu­vinir hafa sagt frá því hernig þeir eru að matreiða mikið magn af mat til að gefa fólki sem leitar skjóls í vestur­hluta landsins eða er á leiðinni að landa­mærum Póllands.

„Samheldnin er mikil og fólk reynir að gera sitt besta við að aðstoða hvert annað. Sumt eldra fólk vill ekki yfirgefa heimili sín. Afi minn, sem er sjötugur, býr úti í sveit þannig að hann er aðeins öruggari heldur en ef hann byggi í stórborg; hann býr þar einn og kann eingöngu úkraínsku og rússnesku þannig að það yrði erfitt fyrir mann á hans aldri að flýja til nágranna­ríkja þar sem hann skilur engan og enginn skilur hann. En hann er virkilega hugrakkur og neitar að yfirgefa heimili sitt eins og svo margir. Þegar ég bið hann um að koma til Íslands þá spyr hann mig af hverju hann ætti að yfirgefa heimili sitt þar sem hann hefur búið alla ævi og sem honum þykir vænt um og þar sem hann á vini í kring. Hann þekkir ekkert annað.“

Viktoría segir að fólkið hennar úti sé þrátt fyrir allt vongott um að Úkraína nái að standa þessi átök af sér og að stríðinu fari að ljúka.

Það verða allir að standa saman og berj­ast.

„Fólk heldur fast í vonina um betri tíma um að þetta fari að klárast. Það er í rauninni tvennt í stöðunni: Að gefast ekki upp og vona það besta. Það virðist vera mikill samheldni á meðal þjóðarinnar og hver einasta manneskja sem ég tala við í Úkraínu, og ég sé það líka á samskipta­miðlum, er sammála um að gefast ekki upp. Það er ekki í boði. Það verða allir að standa saman og berjast. Yngri konur en ég eru farnar á vígvöllinn og svo er líka þannig mál með vexti að það er verið að senda alla karlmenn til þess að berjast þótt að sumir myndu vilja flýja. Mér er búið að líða eins og ég sé að horfa á einhverja bíómynd sem gerist í heims­styrjöldinni síðari af því að þetta er nákvæmlega það sama og við höfum séð í bíó: Það er verið að aðskilja fjöl­skyldur sem hittast kannski aldrei aftur. Konur sjá kannski aldrei aftur eiginmann sinn, bróður eða son. Það er ekkert djók að taka ákörðun um að yfirgefa heimili sitt og vita ekki hvort viðkomandi snúi aftur eða sjái fólkið sitt aftur.“

Full þjóðarstolts

Viktoría segir að þegar átökin hafi hafist hafi hún ekki búist við að Evrópu­búar myndu standa svona þétt við bakið á íbúum Úkraínu. „Ég bjóst heldur ekki við að íbúar Úkraínu myndu standa sig svona vel í þessum átökum. Maður hélt að Pútín væri með betri strategíu og betra plan og myndi vinna þetta tiltölu­lega hratt eins og hann sjálfur bjóst við. Hann bjóst við að sigra Úkraínu á einum til þremur dögum. Það var upphaf­lega planið hans. En það gerðist ekki. Þetta er allt mjög sorglegt og ég er mjög leið yfir þessu en ég er samt full þjóðar­stolts og vonar og í rauninni ánægð að sjá samheldni íbúa Úkraínu vegna þess að þjóðin hefur verið mjög brotin og sundur­leit í mjög langan tíma. Ákveðnir menn í ríkis­stjórninni hafa verið algjör­lega undir stjórn Pútíns og landið hefur lengi verið í molum og sú uppbygging sem hefur átt sér stað tekur nátt­úrlega sinn tíma. Það tekur gríðar­lega langan tíma. Það að sjá alla taka sig saman, standa þétt saman og berjast fyrir Úkraínu gefur mér von um að þetta land geti einn daginn blómstrað. Úkraína er frábært land svo sem til að heimsækja sem ferða­maður. Nattúran er virkilega falleg, það er margt að sjá þarna og margt að upplifa og fólkið er mjög gestrisið. Þannig að ég vona innilega að Úkraína vinni þetta stríð á endanum og að hægt verði að byggja upp landið og efna­haginn á ný og að úkraínska þjóðin fái að blómstra eins og hún á skilið að blómstra.“

Kjarnorkuver í höndum Rússa

Alþjóða­samfélagið hefur brugðist hart við árás Rússa á Úkraínu.

„Mér finnst vera ótrúlega sorglegt að rússneska þjóðin þurfi að gjalda fyrir þessa ákvörðun Pútíns. Auðvitað eru einhverjir sem halda með honum og auðvitað eru einhverjir sem trúa því að það sem hann er að gera sé rétt. En ég trúi því að meirihluti Rússa vilji ekki þetta stríð og vilji ekkert með þetta hafa. Mér finnst vera ótrúlega sorglegt að þetta saklausa fólki þurfi núna að fara í gegnum líklega stærstu kreppu sem Rússland hefur nokkurn tímann séð og ekki nóg með það heldur munu Rússar finna fyrir aðkasti frá öðrum löndum. Auðvitað vona ég að þetta verði ekki svo slæmt en maður veit aldrei. Ég vorkenni þessum fjöl­skyldum sem sjá á eftir mönnum sínum til Úkraínu sem láta þar lífið en ég veit að upplýsingar í Rússlandi um gang mála í Úkraínu hafa ekki verið 100% réttar. Sumar af þessum fjöl­skyldum vissu ekki einu sinni að þessir strákar væru að fara í stríð. Þannig að í rauninni vorkenni ég báðum þjóðum mjög mikið.“

Fólk getur ekk­ert gert en ég sé ekki fram á að Pútín muni gef­ast upp af eigin vilja.

Átökin harðna sífellt og fimmtudags­kvöldið 3. mars skutu Rússar á stærsta kjarnorkuver Evrópu, Zaporizhzhia-kjarnorku­verið í Úkraínu, svo kviknaði í og hafa þeir náð því á sitt vald. Talað hefur verið um kjarnorku­vopn undan­farna daga og mögulega beitingu á þeim. „Það er mjög mikil hræðsla, ekki bara í Úkraínu heldur einnig hér á landi. Staðan er þannig að Pútín er stillt upp við vegg en hann virðist vera maður sem hefur ekki lengur neinu að tapa þannig að hann gæti notað kjarnorku­vopn. Þegar fólk hefur engu að tapa þá er það tilbúið til að gera allt. Ég reyni að fylgjast með rússneskum fréttum og margir í Rússlandi eru algjör­lega í molum út af ástandinu. Efna­hagurinn er lamaður og framtíðin er virkilega óskýr. Fólk getur ekkert gert en ég sé ekki fram á að Pútín muni gefast upp af eigin vilja. Maður vonar að hann noti ekki kjarnorku­vopn en fyrsta daginn hans í Úkraínu tók herinn yfir Chernobil-kjarnorku­verið. Af hverju að taka yfir yfir­gefinn bæ? Ekki nema að Pútín ætli að nota þetta sem ógn í fram­tíðinni.  Það væri nóg fyrir hann að senda sprengju yfir Chernobil og þá værum við í vondum málum. Maður vonar auðvitað að þessi saga muni ekki enda svo hræðilega. Maður vonar að það góða sigri en ég veit ekki hvernig það muni gerast á meðan Pútín er á lífi.“

Selenskíj sjálfstæðari

Viktoría fæddist í vestur­hluta Úkraínu árið 1994 og bjó í sveit fyrstu 11 ár ævi sinnar áður en hún flutti ásamt móður sinni til Íslands árið 2005. Foreldrar hennar höfðu þá skilið og lést faðir hennar fyrir nokkrum árum. Hún segist ekki hafa farið til Úkraínu í um áratug heldur hafi ferðast annað og til að mynda búið erlendis og verið þar í námi en hún er viðskipta­fræðingur að mennt. Móðir Viktoríu giftist íslenskum manni sem átti börn fyrir. „Ég á þess vegna íslenska fjöl­skyldu, íslenskan stjúppabba og æðisleg stjúpsystkini. Mér finnst vera æðislegt hvað þau öll tóku voðalega vel á móti mér þegar ég kom.“

Aðeins að sögu Úkraínu: „Úkraína öðlaðist sjálf­stæði árið 1991 eftir hrun Sovét­ríkjanna og einkenndust næstu ár af ákveðinni uppbyggingu í samfélaginu. Það voru auðvitað ennþá mjög miklar leyfar af spillingu frá Sovét­ríkjunum og ástæða þess að mamma ákvað að við flyttum til Íslands var að ástandið í Úkraínu var frekar óspennandi hvað varðar til dæmis atvinnu­möguleika og framtíðar­tækifæri. Ég á frábærar minningar frá æsku minni í Úkraínu. Þetta er virkilega fallegt land og fjöl­breytilegt og þar er mikið um að vera og fólkið er með frábæran húmor. Úkraínskt fólk er svolítið líkt Íslendingum; það er voðalega duglegt og sterkt og er stolt af landinu sínu. Þrátt fyrir alla spillinguna og erfið­leikana þar þá elskar úkraínskt fólk Úkraínu og það elskar að búa þar og er tilbúið til að gera allt fyrir landið sitt eins og sést núna í þessu stríði.“

Þrátt fyrir að hafa ekki heimsótt Úkraínu í um áratug fylgist Viktoría vel með fréttum þaðan og er í samskiptum við ættingja og æskuvini þar.

En vegna fyrri reynslu hefur Pútín ekki búist við þess­ari mót­spyrnu sem hann er að sjá í dag.

„Líf fólks í Úkraínu er frekar erfitt ennþá. Þetta er búið að vera langt ferli og þetta hefur ekki verið auðveld leið. Margar ríkis­stjórnir Úkraínu hafa verið eins og strengja­brúður Pútíns en núverandi forseti landsins, Volodímír Selenskíj, hefur verið mjög sjálf­stæður frá öllu í Rússlandi og hefur verið að vinna í því að byggja upp landið en auðvitað tekur þetta langan tíma. Þetta er svo gríðar­lega stórt land og svo hefur vestur- og austur­hlutinn verið klofinn og það er kannski ástæðan fyrir því hvers vegna Pútín hélt að það yrði svo auðvelt að ráðast inn í Úkraínu. Hann hélt að sagan yrði eins og þegar hann réðst inn í Krím­skagann árið 2014, en sá hluti var mun hlynntari Rússlandi, en vestur­hlutinn sem er mjög úkraínskur, þannig að þetta var auðvelt. Sömuleiðis voru viðbrögð Evrópu þá lítil sem engin en þess má geta að Krím­skaginn hefur tilheyrt bæði Úkraínu og Rússlandi til skiptis eftir því hvenær við lítum í sögu­bækurnar og því er erfitt að deila um það hverjum þetta landsvæði ætti að tilheyra í raun og veru. Fyrst og fremst á fólkið sem býr á Krím­skaganum að velja hvoru landi það vill tilheyra en ég hef heyrt að ánægjan með stjórn Rússlands hefur ekki verið mikil meðal íbúa þar eftir að þeir tóku yfir svæðið. En vegna fyrri reynslu hefur Pútín ekki búist við þessari mótspyrnu sem hann er að sjá í dag. Landið var aðeins byrjað að blómstra þegar þetta nýja stríð hófst. Við erum að fara til baka um mörg ár í þeirri vegferð.“

Ekki lengur kúl

Viktoría er spurð hvað hún hafi lært af undan­förnum dögum. „Ég held að það sem ég hafi lært mest af þessu er hvað það er mikið til af góðu fólki. Það hefur komið mér verulega mikið á óvart. Það eru bókstaf­lega allir sem ég þekki, bæði hérlendis og erlendir vinir úr öllum heims­hornum, búnir að hafa samband við mig til að sýna mér stuðning og bjóða hjálpar­hönd en síminn minn hefur ekki stoppað. Evrópu­búar og fleiri hafa tekið á móti úkraínsku fólki og gefið því mat og húsaskjól. Ég bjóst alls ekki við þessu af þessum skala.“

Þögn.

„Já, ég held að það sem ég hafi lært af þessu er hvað það er til mikið af virkilega góðu fólki og líka hvað nútímalegt samfélag er tilbúið til að sýna kjark og styðja við sann­leikann.“ Viktoría vill bæta við að hún hati ekki Rússland. „Ég hata ekki rússneskt fólk. Ég kenni því ekkert um þetta. Og mér finnst vera leiðinlegt að saklaust fólk í Rússlandi þurfi að gjalda fyrir það sem er að gerast. Og ég sem úkraínsk kona vona að rússneskt fólk hér á Íslandi verði ekki fyrir neinu aðkasti. Það fólk er saklaust. Það getur engu breytt alveg eins og ég get engu breytt. Ég held að það sem þetta stríð kenni okkur sé að vera góð við náungann og bera virðingu fyrir hvert öðru. Það er ekki lengur kúl að vera ofbeldis­fullur og leyfa hatri að stjórna sér. Það er ekki lengur málið. Það geta allir hagnast af því að vinna saman og vera góðir við hvern annan.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá