Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Steini í Quarashi stofnaði fyrsta bandið 9 ára: „Það er taktur í mér og tónlist“

Steinar Fjeldsted
Steinar Fjeld­sted

Nýjasti gestur bræðranna Gunnars og Davíðs Wiium er engin annar en skeitarinn og tónilstarmógúllinn Steinar Fjelsted eða Steini í Quarashi eins og hann er gjarnan kallaður.

Steinar Fjeld­sted

Steini byrjaði að skeita og búa til tónlist ungur. Hann talaði um að hafa stofnað sínu fyrstu hljómsveit, Alkoholic Brothas þegar hann var aðeins níu ára. Það má segja að þetta Urban vibe hafi náð að fanga Steina frá byrjun, einhver taktur sem hann segir að hann hafi fundið þá bæði í skeitinu sem og í beatinu eða takti hip hopsins. „Það er taktur í mér og tónlist, ég hef rosalega þörf fyrir að gera eitthvað creative, á hverjum einasta degi.“

„Ég stofnaði mína fyrstu hljómsveit 9 ára, Alcoholic Brothas,“ segir hann hlæjandi. Gunnar spyr hann hvort nafnið átti eftir að rætast og hann svaraði því játandi.

En hvernig kviknaði áhuginn á rappi?

„Þetta byrjaði samt bara mest með Public Enemy og NWA,“ sagði Steini og bætti svo við: 

„Ég man ennþá eftir þessu í dag, þegar að Check Your Head með Beastie Boys kom út, það breytti bara öllu, tónlistar­lega séð, tískulega séð, hugsunar­hætti, bara tónlist, breytti bara öllu, heimurinn fór á hliðina. Þetta er örugglega eins og þegar fyrsta Bítla­platan kom út.“

Gunnar spurði Steina hver fyrsti íslenski rapparinn hefði verið og hann sagðist halda „að það væri bara Einar Örn eða eitthvað, í Sykurmounum, hann var basicly bara að rappa.“ Þess ber að geta að gamni að eitt fyrsta rapplag heims­sögunnar er stundum talið vera lagið Lax, lax, lax með Guðmundi Jónssyni

Steini öðlaðist lands­frægð og á tíma var hann á barmi heims­frægðar. Það var í kringum aldamótin sem meðlimur hljóm­sveitarinnar Quarashi. Þeir tóku upp sína fyrstu plötu í bílskúr og enginn vildi gefa hana út. Það varð til þess að þeir fengu lán til þess að geta gefið út 500 eintök. Það seldist upp nánast jafn­dægurs og þá komu útgáfurnar og plötu­búðirnar í hrönnum og vildu vera með, þeir sem nokkru áður vísuðu þeim Quarashi mönnum á dyr með orðunum „Íslenskt rapp mun aldrei verða að veruleika.“

Quarashi náði nokkurri heims­frægð eftir að hafa skrifað undir samning við útgáfu­risana Sony og Colombia. Samningurinn hljómaði upp á útgáfu á fimm plötum og fullt af pening. Þeir túruðu um heiminn, fóru í viðtöl, léku í tónlistar­myndböndum og sukkuðu grimmt.

Quarashi var gríð­ar­lega vin­sæl á sínum tíma

„Svo er bara gert allt fyrir þig, ég þarf ekki að gera neitt nema bara að vera í góðu standi að búa til tónlist og spila tónlist. Það er management sem er með alla passana, signar alla inn á alla flugvelli og blablabla. Við löbbum bara inn, tónleikar, allar græjur komnar inn og svo um morguninn er ég bara vakinn inn á hóteli, umboðs­maðurinn segir bara að það pikki mig bíll upp eftir hálftíma. Þú ert að fara viðtal hérna svo er matur, þú ferð út að borða með þessu liði, svo er soundcheck og svo er fjórir tímar þangað til þú spilar og í þessum fjórum tímum ferð þú í myndatöku, ég kem svo með mat, bara borða og svo bara gigg, tjillum klukku­tíma á eftir, upp í rútu, lets go,“ segir Steinar í lýsingum á túrnum.

Þeir náðu aldrei að uppfylla þessa fimm plötur og samningnum varð rift eftir mikil ósætti sem myndaðist hafði í hljóm­sveitinni, hægt og rólega, sem varð til að Hössi, einn lykil­maður hljóm­sveitarinnar gekk út. Quarashi leystist upp og þar með lauk þessu ævintýri sem virtist engan enda ætla að taka.

„Nei, nei, þegar menn eru búnir að vera saman 24/7 í kannski 6 ár, túra heiminn á fullu og fleiri ár og fleiri ár, þetta er ekkert fyrir alla, það eru ekkert allir sem höndla þetta.”

Hægt er að sjá allt viðtalið hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt