Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Úr unglingalandsliðinu í ofbeldisglæpi: „Hann var bara ofboðslega blíður og góður strákur“

Gabríel Douane Boama
Gabríel Douane Boama Mynd: Instagram-skjáskot

Gabríel Douane Boama hefur á baki sér langan ofbeldis­feril þó hann sé einungist tvítugur að aldri. En áður en hann fetaði grýttan veg ofbeldis­glæpa var hann meðal efnilegustu körfu­knattleiks­mönnum Íslands og er óhætt að segja að flestir sem til hans þekkja eru í sjokki yfir þeirri stöðu sem hann hefur nú komið sér í. Mannlíf skoðaði lauslega sögu Gabríels.

Langur og ljótur afbrotaferill

DV fór nýlega yfir ofbeldis­feril Gabríels. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Gabríel verið viðriðin fjölda ofbeldis­brota en hann var ekki nema sextán ára er hann var ákærður fyrir sérstak­lega hættulega líkams­árás í nóvember 2018, ásamt tveimur öðrum fyrir utan Hagkaup í Skeifunni. Réðust þremenningarnir að tveimur mönnum og lömdu þá hvað eftir annað í höfuð og búk auk þess að sparka í líkama þeirra eftir að þeir féllu í jörðina. Fórnar­lömbin hlutu ýmsa áverka, það á meðal úlnliðs­brot.

Gabríel var svo ákærður fyrir brot gegn vald­stjórninni þegar hann hótaði ítrekað lögreglu­mönnum við skyldu­störf líkams­meiðingum og lífláti við Hótel Apótek í Austurstæti. Var það í september 2019. Hótanir Gabríels héldu svo áfram á leiðinni á lögreglu­stöðina við Hverfis­götu og einnig innandyra á stöðinni.

Blóðug árás Gabríels í Borgar­holtsskóla í janúar í fyrra vakti óhug hjá þjóðinni enda ekki á hverjum degi sem slíkt gerist í framhalds­skóla hér á landi en Gabríel notaði bæði hafnabolta­kylfu og hníf í árásinni. Fjórir nemendur voru fluttir á slysa­deild eftir árásina en enginn var alvarlega slasaður.

Aðeins hálfu ári síðar var Gabríel kærður fyrir aðra líkams­árás í félagi við annan mann. Veittust þeir að öðrum manni og slógu hann í andlitið með kylfu og var hann einnig ákærður fyrir að hafa slegið annan mann í lærið með kylfunni í kjölfar hinnar árásarinnar.

Ljósmynd sem Gabríel birti af sér á Instagram á meðan hans var leitað af lög­regl­unni.

Þá birti DV myndband af hrottalegri árás en þar réðist mikill fjöldi fólks, með Gabríel fremstan í flokki, að einum manni við Dalveg í Kópavogi í ágúst 2021. Var Gabríel ákærður fyrir að slá manninn í nokkur skipti í höfuð, taka hann hálstaki og fyrir að halda honum á meðan aðrir slógu í andlit hans, fella hann í jörðina og slá og sparka nokkrum sinnum í höfuð mannsins og búk. Fórnar­lambið hlaut af þessu innkýlt brot í nefbeinum, opið sár á vör og í munnholi, sár og mar á eyra sem og mar í kringum auga.

Aukreitis var Gabríel ákærður fyrir að ráðast á 22 ára stúlku á Prikinu í október 2021 og slegið hana í andlitið. Þar að auki hefur hann verið ákærður fyrir vörslu á fíkni­efnum og fyrir að stela úr Vínbúðinni.

Málið sem tekið var fyrir í Héraðsdóm Reykja­víkur er Gabríel slapp úr haldi lögreglu, snýr að ráni sem átti sér stað í júlí 2021 en þar þvingaði hann, ásamt fjórum öðrum, einstakling til að millafæra tæplega 900.000 krónur af banka­reikningi sínum með hótunum um líkams­meiðingar og lífláti.

Ekki hefur Mannlíf heimildir fyrir því að dæmt hafi verið í fyrri málum Gabríels, enn sem komið er.

Einn efnilegast körfuboltamaður Íslands

Gabríel var af mörgum talinn einn allra efnilegasti körfubolta­maður landsins en uppeldis­félag hans var Valur. Mannlíf talaði við Ágúst Björgvinsson sem þjálfaði Gabríel í um nokkurra ára skeið og þekkir hann vel. Var Ágúst algjör­lega miður sín yfir því hvernig er komið fyrir honum. „Þegar ég kynnist honum er hann 10 ára gamall sko, jafnvel yngri. Ég hef sem sagt þekkt hann síðan hann var barn og hann var bara ofboðs­lega blíður og góður strákur. Hann var alveg extra blíður sko. Hann var það blíður að hann var að passa strákana mína og hann hafði gaman af því að vera með börnum. Hann var alveg yndis­legur drengur. Hann til dæmis faðmar mig enn þann dag í dag, í hvert skipti sem hann sér mig. Og hann gerir það sama við strákana mína þegar hann sér þá. En svo árin á eftir grunn­skóla villist hann eitthvað af leið en þá er ég hættur að þjálfa hann. Þá slitna tengslin svolítið við hann, ég var ekki í daglegum samskiptum við hann. Og ég veit ekkert hvað gerist nákvæmlega eftir það.“

Aðspurður hvort honum þyki þetta ekki sorglegt játar Ágúst því: „Jú, þetta er mjög sorglegt. Það er eiginlega ekki hægt að lýsa því hversu svakalegt þetta er. Hann var náttúru­lega mjög efnilegur í körfunni en það sem skiptir meira máli, þá var hann virkilega góður drengur. Og er það í grunninn. En hefur villst af braut. Ég finn bara ofboðs­lega til með honum og hans foreldrum, ég þekki þau mjög vel. Ég vona bara að hann fái þá hjálp sem hann þarf á að halda og nái að komast á beinu brautina.“

Gabríel ásamt félögum úr ung­linga­lands­lið­inu.

Gabríel hætti hjá Val árið 2018 og fer þá yfir í ÍR en þaðan flosnar hann upp úr körfunni. 2021 snéri Gabríel aftur í körfu­boltann en þá hóf hann að æfa með Selfossi. Entist hann ekki nema í nokkrar vikur áður en hann hætti. Mannlíf ræddi við formann Körfu­knattleiks­félags Selfoss, Gylfa Þorkelsson: „Hann kom í haust einhverntímann og við ákváðum að gefa honum tækifæri og hann æfði hjá okkur í nokkrar vikur. En síðan skrapp hann í bæinn og kom ekki aftur og við höfum bara ekkert heyrt frá honum aftur. Hann ætlaði sér að innrita sig í skólann á Selfossi eftir áramót og fara í Körfubolta­akademíuna hjá okkur. En það fór eins og það fór. Þessar fáu vikur sem hann var hjá okkur var hann bara til fyrir­myndar, ekkert vesen á honum eða neitt.“

Gabríel var einn efnilegasti körfu­knattleiks­maður Íslands á sínum yngri árum en hann var í unglinga­landsliðinu á tímabili. Þá var hann valinn besti leikmaður Norður­landa í sínum aldurs­flokki í Scania Cup árið 2017 en það er óopinbert Norðurlandaamót félags­liða í körfu­knattleik fyrir ungt körfu­knattleiks­fólk. Meðal fyrri leikmanna sem hlotið hafa þann titil eru þau Jón Arnar Stef­ánsson og Helena Sverris­dóttir.

Ágúst Björgvinsson þjálfari Gabríels á árum áður, sagði í lok símtalsins við Mannlíf orð sem passa ágætlega sem lokaorð þessarar yfir­ferðar: „Hann er ennþá bara tuttugu ára, hann getur ennþá snúið þessu við.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá