Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Bíll með 37 farþega festist á Geitlandi: „Það getur alltaf komið fyrir að bílar festist á jökli“

Einn af bílum Into the glacier.
Einn af bílum Into the glacier. Mynd: intotheglacier.is

Í gær festist bíll í krapi með 37 farþega á Geitlandi en hópurinn var á leið upp á Langjökul. Öryggis­bíll sem fylgdi hópnum, festist einnig.

Skessu­horn segir frá málinu í dag. Þar kemur fram að bíllinn sé frá ferða­þjónustu­fyrirtækinu Into the glacier og að hann hafi verið á ferð upp í ísgöng í Langjökli í gær, með 37 ferðamenn og leið­sögufólki þegar hann festir í krapa í Geitlandi. Hefur Skessu­horn eftir Birgittu Björgu Jóns­dóttur rekstrar­stjóra Into the glacier, að öryggis­bíll sé alltaf hafðu með í för í slíkum ferðum. Hann hafi hins vegar einnig fest sig.

Var þá brugðið á það ráð að hringja eftir þriðja bílinn til að sækja farþegana. „En sá var á leið niður með farþega og því var bið eftir honum,“ sagði Birgitta við Skessu­horn og bætti því við að lögreglu hafi verið gert viðvart um stöðuna. Sagði hún enga hættu hafi skapast enda veðrið gott og bílarnir vel búnir. „Í samráði við lögreglu var ákveðið að kalla út björgunar­sveitir í nágrenninu klukkan 21 þar sem búist var við versnandi veðri,“ sagði Birgitta og bætti því við að á svipuðum tíma hafi öryggis­bíllinn losnað og farþegar ferjaðir yfir í þriðja bílinn og því hægt að leggja af stað til byggða. Var björgunar­sveitin aftur­kölluð um klukkan 22:00.

„Við komuna í Húsafell var farþegum boðið upp á áfalla­hjálp sem enginn þáði,“ sagði Birgitta og sagði ennfremur að farþegarnir hefðu fengið upplýsingar um það hvernig ætti að bera sig að ef óskað yrði eftir hjálp síðar. „Í samræmi við öryggis­reglur okkar metum við alltaf aðstæður áður en haldið er af stað. Það var ekki ófært í gær en það getur alltaf komið fyrir að bílar festist á jökli. Við erum með frábært starfs­fólk og í góðu sambandi við viðbragðs­aðila, sem við erum þakklát fyrir, sagði Birgitta að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Annars staðar má víða búast við skúrum eða slydduéljum

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ