Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Ingó segist ekki vera ofbeldismaður: „Ég er svo sannarlega breyskur maður“

,,Allir sem þekkja mig og mitt fólk vita að ég er ekki ofbeldis­maður,’’ skrifar Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð í aðsendum pistli sem birtist á Vísi í dag. Þar segist hann hafa verið borinn þungum sökum undan­farna mánuði og skaðinn sé óafturkræfur og rekur hann söguna í stuttu máli en pistillinn hefur þegar vakið hörð viðbrögð.

,, Áróðurs­herinn hefur fengið mikið pláss í fjöl­miðlum og í kommenta­kerfum viðhöfðu ýmsir aðilar, sem ég þekki ekki og hef aldrei hitt, hræðileg ummæli um mig. Ég læt nú reyna á það gagnvart löggjafanum hvort saka megi menn opinber­lega um nauðganir og barnaníð. Það er ekki gert í fjárhags­legum tilgangi en er um leið það kostnaðar­samt að það er nánast ómögulegt að verja sig með þessum hætti,’’ skrifar Ingó en pistilinn má lesa í heild sinni hér að neðan og á vef Vísis.

Kæru vinir!

Undan­farna mánuði hef ég verið borinn þungum sökum sem ekki eiga sér stoð í raun­veru­leikanum og setið undir ósannindum af ýmsu tagi. Ég hef til að mynda verið kallaður ofbeldis­maður, nauðgari og barna­níðingur þó það gæti ekki verið fjær sann­leikanum. Það er sárt að vera borinn slíkum sökum og geta í raun ekki varist þeim þar sem sann­leikurinn virðist engu máli skipta. Þar að auki hefur verið ráðist af mikilli hörku á fyrirtæki sem ég starfa fyrir, X-Mist, og flesta þá sem hafa bókað mig til að syngja við sína viðburði.

Skaðinn sem mér hefur verið unnin er óafturkræfur en ég get ekki lengur setið hjá og horft á annað saklaust fólk þjást fyrir þessa aðför að mér. Ég hef því ákveðið að láta af störfum mínum fyrir X-Mist. Fyrir­tækið var byggt upp af heilindum og hugsjón aðila sem t.d. sáu það sem öflugt verkfæri í barátt­unni gegn Covid 19 ásamt því að varan hefur hjálpað fólki við að leysa marg­vísleg vandamál.

Ég óska fólkinu sem starfar fyrir fyrir­tækið góðs gengis án þess utan­aðkomandi áreitis sem þau hafa orðið fyrir vegna þess eins að vera kollegar mínir.

Ég er svo sannarlega breyskur maður og hef gert mín mistök á löngum ferli eflaust sýnt af mér dónaskap og ekki komið nægjanlega vel fram við alla en ofbeldis­maður og þaðan af verra er ég ekki. Þess vegna finnst mér mikilvægt að segja alla söguna.

Sagan mín

Mál mitt byrjar þannig að ég fæ símtal frá blaða­manni Mannlífs og er ég spurður hvort ég vilji láta hafa eitthvað eftir mér varðandi ummæli aðila sem að ég átti að hafa nauðgað fyrir 15 árum. Stuttu áður hafði góð vinkona mín sagt mér að ,,ég væri næstur og það væri verið að skipuleggja að taka mig fyrir næst‘‘. Ég kem eðlilega af fjöllum enda gæti ég ekki gert svo svívirðilegan hlut að nauðga þó byssu væri miðað að höfðinu á mér. Við nánari eftirgrennslan kemur í ljós að á ferðinni er kona sem ég fór á nokkur stefnumót með fyrir 15 árum síðan. Stuttu áður hafði hún sagt að erfitt væri að setja sig í spor einhvers sem hefði verið nauðgað þar sem hún hefði ekki lent í slíku.

Sann­kallaður áróðursher fer í kjölfarið af stað síðasta sumar og kallar eftir sögum um mig. Þar virðist sann­leikurinn engu skipta og ekki er leitað eftir heimildum eða stað­festingum á sannleiks­gildi sagnanna. Í því sambandi má benda á að kona nokkur hefur viðurkennt að hafa sent inn nokkrar sögur sem voru uppspuni frá rótum, til þess eins að sjá hvort þær fengjust birtar. Þær voru allar birtar. Nafnlaust. Ég styð heilshugar baráttu gegn kynferðis­brotum og ofbeldi en aðförin að mér, minni persónu og atvinnu, tel ég ekki framlag í þeirri baráttu.

Áróðurs­herinn hefur fengið mikið pláss í fjöl­miðlum og í kommenta­kerfum viðhöfðu ýmsir aðilar, sem ég þekki ekki og hef aldrei hitt, hræðileg ummæli um mig. Ég læt nú reyna á það gagnvart löggjafanum hvort saka megi menn opinber­lega um nauðganir og barnaníð. Það er ekki gert í fjárhags­legum tilgangi en er um leið það kostnaðar­samt að það er nánast ómögulegt að verja sig með þessum hætti.

Árásir gegn mér hafa verið marg­víslegar og meðal annars hefur Instagram reikningur minn verið eyði­lagður og aðilar villt á sér heimildir inni á miðlinum Snapchat undir notenda­nöfnunum ingo_vedurgud, ivedurgud og mögulega fleirum sem ég veit ekki af. Þannig hafa óprúttnir aðilar sent skilaboð í mínu nafni. Hópur kvenna, sem ég þekki ekki neitt, ákvað að mótmæla því að ég syngi á þjóðhátið í Vestmanna­eyjum og fengu sínu framgengt.

Að auki var því svo slegið upp í fréttum að ég væri einhverra hluta vegna ekki bókaður að syngja fyrir ákveðna hópa en á sama tíma á ég í mínum bókum um 50 skipti þar sem ég hef komið fram fyrir slíka hópa undan­farin ár.

Áhrifin á fjölskyldu og vini

Allir sem þekkja mig og mitt fólk vita að ég er ekki ofbeldis­maður. Ég hef alltaf staðið með þeim sem hafa orðið fyrir einelti og ofbeldi og getur fólk frá skólaárum mínum vottað fyrir það. Nú hef ég setið undir margvislegum ósannindum þar sem öllu er grautað saman og ég hef enga leið haft til þess að verja mig.

Þá hafa þeir sem standa mér næst, fjöl­skylda og vinir, fengið að finna fyrir aðförinni gegn mér. Auk þess sem þeim þykir sárt að hlusta á ósannindi um mig hafa þau orðið fyrir grófum árásum sjálf vegna mín, svo grófum að kærasta mín þurfti til að mynda að hætta í vinnu sinni. Þetta er eitthvað sem enginn sér og fólk áttar sig kannski ekki á. Ásakanir sem þessar bitna því oft mest á saklausu fólki sem á það síst skilið.

Benda ber á að árásar­herinn er ekki fjölmennur. Þvert á móti er hann mjög fámennur en hávær hópur sem fjöl­miðlar veita mikið pláss. Margir hafa haft samband við mig persónu­lega og lýst yfir stuðningi við mig. Oft er þetta fólk sem ég ekki þekki en þorir ekki að stíga fram og tjá sig opinber­lega af ótta við hefndar­aðgerðir. Ástæða þess er eðlileg, því þeir örfáu sem hafa gert það og sett spurningar­merki við aðferðina sem notuð er hafa heldur betur fengið að heyra það. Því fólki sem hefur lýst yfir stuðningi við mig og jafnvel tekið mínum málstað er ég óendanlega þakklátur.

Áhrif á störf mín

Í kjölfar alls þessa hefur starf mitt sem tónlistar­maður verið lagt í rúst. Þannig voru í framhaldi nánast öll mín gigg afbókuð, tónlist mín tekin úr spilun og mörg stór verkefni sem búið var að skipuleggja tekin af dagskrá. Ástæðan er ekki sú að viðkomandi aðilar trúi hinum nafnlausu frásögnum, treysti mér ekki til starfsins eða geri athuga­semdir við mig, heldur sú að þeir óttast að lenda sjálfir í árásar­hernum. Er sá ótti enda á rökum reistur þar sem ráðist hefur verið opinber­lega á þá sem ég hef giggað hjá frá því aðförin gegn mér hófst.

Auk þess að ráðast á starfs­feril minn hefur árásar­herinn gert mér ómögulegt að reka fyrir­tækið X-mist sem ég rak ásamt góðum vini mínum. Fyrir­tækið hefur sætt slíkum árásum að ég sé mér ekki lengur fært að starfa við það enda hefur þessi vinur minn og fjöl­skylda hans liðið mest fyrir linnulausar árásir. Það er í raun ótrúlegt að upplifa hvað sumt fólk er tilbúið að ganga langt í óhróðri og lygum til þess að ná sínu fram. Tilgangurinn virðist helga meðalið og þá skiptir engu hvaða aðferðum er beitt.

Við félagarnir höfum verið stoltir af þessu litla fyrirtæki, vörurnar eru í hæsta gæða­flokki, viðskipta­vinirnir eru ánægðir og fjöldi fólks hefur tekið þátt í uppbyggingu fyrir­tækisins sem nú er ráðist gegn. Haft hefur verið samband við fyrirtæki og verslanir með hreinum og klárum hótunum um að þessir aðilar hafi verra af ef viðskiptunum er haldið áfram. Allt er þetta gert til að koma í veg fyrir að vörur frá X- mist séu til sölu. Svo langt hefur þetta framferði gengið að haft hefur verið samband við eigendur samstarfs­fyrirtækis í Bretlandi og ég sakaður um að vera nauðgari og barna­níðingur! Svo það sé tekið fram hef ég aldrei verið svo mikið sem ákærður hvað þá sakfelldur fyrir ofbeldis­brot af nokkru tagi.

Þessi hópur og fólkt tengt honum ann sér ekki hvíldar fyrr en hann er orðinn fullviss um að fyrir­ætlanir á nýjum starfs­vettvangi utan sviðs­ljóssins séu einnig orðnar að engu, allt í nafni réttlætis.

Undir þessum kringum­stæðum er ekki annað hægt en að velta fyrir sér raun­verulegum tilgangi þeirra sem ganga hvað harðast fram. Sumir hafa til að mynda haft fjárhags­lega hagsmuni af því að kalla fram bita­stæðar frásagnir, allt í nafni málstaðarins væntanlega.

Að lokum um baráttuna

Eins og áður sagði er ég mistækur en ég get staðið við allt sem ég hef sagt og gert gegnum tíðina. Því miður get ég ekki orða bundist þegar óviðeigandi hegðun, dónaskap eða skeytingar­leysi er skeytt saman við jafn vondan hlut og kynferðis­ofbeldi, nauðganir og barnaníð.

Kannski þarf ég að sætta mig við að vera hluti af hópi sem hent er undir lestina og þó logið sé upp á einn og einn þá sé baráttan mikil­vægari. Ég get þó ekki samþykkt það þegar um svona alvarlegar ásakanir er að ræða.

Ég er á móti hverskyns ofbeldi og finn til með þeim sem hafa orðið fyrir nauðgunum og kynferðis­ofbeldi. Eðlilegt er að berjast gegn ofbeldi og kynferðis­brotum og bæta kerfið okkar þannig að það hlúi sem best að þolendum. Ég vona að hófstillt fólk taki yfir þessa baráttu og skilji að það að saka fólk um eitthvað sem að það hefur ekki gert mun ekki hjálpa málstaðnum. Þegar baráttan er rekin af fólki sem nýtir það til að fá athygli eða fólki sem vill sjá blóð vinnst ekki neitt. Hverjar eru annars lausnirnar sem verið er að boða?

Virðingar­fyllst,

Ingólfur Þórarinsson.

Höfundur er tónlistar­maður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá